Skólamáltíðir í leik- og grunnskólum í Fjarðabyggð
Mál 1611106 Fyrst á dagskrá 12. desember 2016, síðast 15. desember 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Bæjarráð, fundur 501 liður 9
Fræðslunefnd tók til umræðu á síðasta fundi, fyrirkomulag á skólamáltíðum í skólum Fjarðabyggðar. Meðal annars var rætt hvort samræma ætti matseðla, hvort og hvernig yrði staðið að útboði á skólamáltíðum í grunnskólum. Fræðslunefnd lagði til að matseðlar verði samræmdir og þá litið til Akureyrar sem fyrirmyndar. Fræðslunefnd lagði jafnframt til að skólamáltíðir í grunnskólunum á Stöðvarfirði, Reyðarfirði, Eskifirði og Norðfirði verði boðnar út ásamt ávaxtanesti í vor. Bæjarráð felur fjármálastjóra og fræðslustjóra að vinna útboðsgögn og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
-
Bæjarstjórn, fundur 213 liður 2.9
Fundargerðin „Bæjarráð - 501“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.