740 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting - stækkun reits O5 á Kirkjubólseyrum í Norðfirð
Mál 1510155 Fyrst á dagskrá 5. nóvember 2015, síðast 15. desember 2016. 12 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Skipulag
Í hnotskurn
Málið snýst um breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 sem stækkar svæði fyrir aðstöðu hestamanna á Kirkjubólseyrum í Norðfirði um 11,6 hektara8. Bæjarstjórn samþykkti breytinguna 15. desember 2016 og ákvað að málsmeðferð yrði í samræmi við 32. gr. skipulagslaga10.
Staðan
Bæjarstjórn hefur samþykkt aðalskipulagsbreytinguna og næsta skref er málsmeðferð í samræmi við 32. gr. skipulagslaga10
Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Bæjarstjórn, fundur 189 liður 4
Bæjarstjórn samþykkti með 9 atkvæðum skipulagslýsingu vegna stækkunar reitsins, en eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hafði áður samþykkt hana fyrir sitt leyti
Endursögn gervigreindar
Forseti bæjarstjórnar fylgdi skipulagslýsingu úr hlaði.
Lögð fram skipulagslýsing vegna stækkunar á reit O5 á Kirkjubólseyrum á Norðfirði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti skipulagslýsinguna fyrir sitt leyti og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum skipulagslýsingu vegna stækkunar á reit 05 á Kirkjubólseyrum á Norðfirði.
-
2016
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 147 liður 6
Nefndin samþykkti að tillaga að aðalskipulagsbreytingunni yrði kynnt almenningi og umsagnaraðilum í samræmi við skipulags- og matslýsingu
Endursögn gervigreindar
Lögð fram til kynningar tillaga að breytingu Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027, vegna stækkunar reits O5 á Kirkjubólseyrum í Norðfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að tillagan verði kynnt almenningi og umsagnaraðilum í samræmi við skipulags- og matslýsingu.
-
Bæjarstjórn, fundur 203 liður 2.6
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 147“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 149 liður 1
Nefndin samþykkti fyrir sitt leyti að tillagan, sett fram á uppdrætti og í greinargerð dagsettri 13. júní 2016, yrði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga og vísaði endanlegri afgreiðslu til bæjarstjórnar
Endursögn gervigreindar
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, breyting vegna stækkunar reits O5 á Kirkjubólseyrum í Norðfirði til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti og greinargerð dagsett 13. júní 2016. Tillagan verði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga.
Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
-
Bæjarráð, fundur 482 liður 6
Bæjarráð samþykkti breytinguna í umboði bæjarstjórnar, í framhaldi af samþykkt nefndarinnar um að tillagan yrði auglýst
Endursögn gervigreindar
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, breyting vegna stækkunar reits O5 á Kirkjubólseyrum í Norðfirði til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti og greinargerð dagsett 13. júní 2016. Tillagan verður auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga. Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar, samþykkir breytingu á Aðalskipulagi vegna stækkunar á reit 05 á Kirkjubólseyrum í Norðfirði.
-
Bæjarstjórn, fundur 204 liður 4.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 482“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 162 liður 12
Greint var frá því að auglýsingartíma væri lokið og að ein athugasemd hefði borist, og var hún lögð fram til kynningar
Endursögn gervigreindar
Auglýsingartími er liðinn. Ein athugasemd barst. Athugasemd lögð fram til kynningar.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 163 liður 7
Nefndin fór yfir athugasemd ábúenda á jörðinni Kirkjubóli, sem er í eigu sveitarfélagsins, og umsögn skipulags- og byggingafulltrúa, taldi ekki unnt að verða við mótmælunum og mælti með því að bæjarstjórn samþykkti breytinguna óbreytta
Endursögn gervigreindar
Auglýsingartími er liðinn. Ein athugasemd barst frá ábúendum Kirkjubóls. Aðalskipulagsbreytingin var auglýst frá og með 14. október 2016 til og með 25. nóvember 2016. Athugasemdarfrestur var til sama tíma.
Lesa alla bókunina (326 orð til viðbótar)
Athugasemd hefur borist frá lögmanni ábúenda að Kirkjubóli í Norðfjarðarsveit, Ólafíu Einarsdóttur og Axels Jónssonar, dagsett. 23. nóvember 2016. Áður höfðu borist athugasemdir frá sömu aðilum sem tengdust þessu máli, sjá bréf dags. 28. júlí 2016 og 25. nóvember 2015. Þá höfðu áður verið samskipti milli sveitarfélagsins og ábúenda Kirkjubóls á grundvelli ábúðarsambands þeirra, en sveitarfélagið er eigandi jarðarinnar Kirkjubóls, sjá bréf sveitarfélagsins dags. 6. mars 2015 og bréf lögmanns ábúenda 18. mars 2015 og fundargerð frá fundi aðila þann 29. apríl 2015. Þá sendu ábúendur sjálfir bréf vegna málsins dags. 20. júlí 2016.
Fjallað er um athugasemdir ábúenda að Kirkjubóli. Farið er yfir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa, dagsett 2. desember 2016 og fjallað um hverja athugasemd fyrir sig.
Fyrir liggur að eigi síðar en 1998 var ákveðið að byggja upp aðstöðu fyrir hestamenn á Norðfirði á því svæði sem hér um ræðir og gengur tillaga að breytingu á aðalskipulagi út á að stækka það svæði um 11,6 ha. til að mæta þörfum þeirra sem nú nýta svæðið og skapa svigrúm fyrir frekari þróun og vöxt hestaíþróttar¬innar. Eftir að hafa skoðað athugasemdir ábúenda og þeirra sjónarmið um áhrif aðalskipulagsbreytinga á búskap þeirra og þess sem fram kom á fundi með ábúendum 29. apríl 2015 um raunveruleg áhrif, þá telur nefndin að ekki sé gengið lengra í breytingu aðalskipulags en þörf er á til að ná þeim markmiðum sem stefnt er að með því.
Af athugasemdum ábúenda verður ráðið að lagst er gegn gildistöku breytinga aðalskipulags í heild sinni, en ekki eru gerðar sérstakar kröfur um breytingar á því. Fram hefur komið að áður en tillagan var sett fram hafi verið fundað með ábúendum og í framhaldi af því leitast við að taka tillit til þeirra sjónarmiða, að því marki sem slíkt var talið unnt.
Með vísan til þessa og áðurnefnds minnisblaðs er það afstaða nefndarinnar að ekki sé unnt að verða við mótmælum ábúenda. Mælir nefndin með því að bæjarstjórn samþykki breytingartillögu á aðalskipulagi án breytinga.
-
Bæjarráð, fundur 501 liður 17.12
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 162“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 213 liður 12
Bæjarstjórn samþykkti með 9 atkvæðum breytinguna, það er skipulagsuppdrátt, greinargerð og umhverfisskýrslu dagsett 19. ágúst 2016, og taldi ekki gengið lengra en þörf væri á til að ná markmiðum breytingarinnar
Endursögn gervigreindar
Forseti bæjarstjórnar fylgdi aðalskipulagsbreytingunni úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Ein athugasemd barst frá ábúendum Kirkjubóls.
Að teknu tilliti til athugasemda ábúenda og þeirra sjónarmiða um aðalskipulagsbreytinga þá telur bæjarstjórn að ekki sé gengið lengra í breytingu aðalskipulags en þörf er á til að ná þeim markmiðum sem stefnt er að.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum breytingar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, stækkun reits O5 á Kirkjubólseyrum í Norðfirði skipulagsuppdráttur, greinargerð og umhverfisskýrsla, dagsett 19. ágúst 2016. Málsmeðferð verði í samræmi við 32. gr. skipulagslaga.
-
Bæjarstjórn, fundur 213 liður 3.12
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 162“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 213 liður 4.7
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 163“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.