Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 203

23. júní 2016, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Svanhvít Yngvadóttir, varamaður
  • Jón Kristinn Arngrímsson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Ævar Ármannsson, varamaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, varamaður
  • Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, varamaður
  • Sigurbergur Ingi Jóhannsson, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 478

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Valdimar O Hermannsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 20. júní s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Rekstur málaflokka 2016 - TRÚNAÐARMÁL1602052
    2. 1.2 Fjármál 20161602076
    3. 1.3 Kjara- og launamál 20161606106
    4. 1.4 Leikskóli Neseyri - lóðar- og gatnaframkvæmdir1510088
    5. 1.5 Norðfjarðarflugvöllur - klæðning1410115
    6. 1.6 Innkaupareglur Fjarðabyggðar - endurskoðun 20161606075
    7. 1.7 Fasteignamat 20171606085
    8. 1.8 Gjaldskrá sölu frá 1.7.20161606089
    9. 1.9 Tilkynning vegna umsókna sveitarfélaga um framlög vegna sölu félagslegra íbúða á almennum markaði1606076
    10. 1.10 740 Mýrargata við íþróttavöll - umsókn um lóð1604157
    11. 1.11 715 Þingholtsvegur 5 - kauptilboð1606043
    12. 1.12 Skilti og merkingar1508030
    13. 1.13 Endurskoðun starfsmannastefnu Fjarðabyggðar1106083
    14. 1.14 Launakjör hlutastarfandi sjúkraflutningamanna1503101
    15. 1.15 Hjúkrunarheimilin í Fjarðabyggð1511045
    16. 1.16 Forsetakosningar 20161604094
    17. 1.19 Beiðni um umsögn - endurskoðun laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/20001606090
    18. 1.20 Skuggakosningar1606039
    19. 1.21 Samningur um þjónustu við olíuleit á Drekasvæði1606093
    20. 1.22 Aðalfundur Veiðifélags Dalsárs 10.júní 20161606086
    21. 1.23 Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 20161603017
    22. 1.24 Fundargerðir barnaverndarnefndar 20161603122
    23. 1.25 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1471606005F
    24. 1.26 Hafnarstjórn - 1641606004F
  2. 2. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 147

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 16. júní s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 715 Úrskurður í kærumáli - Fjörður 1 í Mjóafirði1502071
    2. 2.2 750 Notkun fjöleignarhússins að Búðavegi 351510182
    3. 2.3 730 - Deiliskipulag aksturs- og skotíþróttasvæða vestan Bjarga1109100
    4. 2.4 730 Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting - stækkun akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði1403113
    5. 2.5 740 - Deiliskipulag Kirkjuból, hesthúsa og búfjársvæði1306026
    6. 2.6 740 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting - stækkun reits O5 á Kirkjubólseyrum í Norðfirð1510155
    7. 2.7 740 Deiliskipulag miðbæjar Neskaupstaðar - breyting innan íþróttasvæðis1605098
    8. 2.8 740 Mýrargata við íþróttavöll - umsókn um lóð1604157
    9. 2.9 740 Mýrargata 4- byggingarleyfi - vallarhús1606079
    10. 2.10 730 Heiðarvegur 37- Byggingarleyfi- skilti1606048
    11. 2.11 730 Stekkjarholt 25 - pallur,girðing og geymslukofi1606044
    12. 2.12 730 Tungumelur 6-Byggingarleyfi, sólpallur1606005
    13. 2.13 730 Tungumelur 8-Byggingarleyfi,sólpallur1606006
    14. 2.14 735 Lambeyrarbraut 8 - Byggingarleyfi,stækkun á svölum1606001
    15. 2.15 735 Strandgata 86b - byggingarleyfi - rífa bryggjuhús1606046
    16. 2.16 735 Strandgata 96- Byggingarleyfi- rífa bragga1606047
    17. 2.17 740 Mýrargata 10- Byggingarleyfi- Vrkmenntaskóli Austurlands1606066
    18. 2.18 750 Skólavegur 12 -Byggingarleyfi- sólpallur og skjólveggur1606082
    19. 2.19 715 Þingholtsvegur 5 - kauptilboð1606043
    20. 2.20 Almenningssamgöngur - ungmennaráð1606037
    21. 2.21 Ástand gamla skólans á Eskifirði1410077
    22. 2.22 Endurbætur á girðingu inní "Krók" Eskifirði1606050
    23. 2.23 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20171605024
    24. 2.24 Leikskóli Neseyri - lóðar- og gatnaframkvæmdir1510088
    25. 2.25 Malbikun og kantsteinar1606062
    26. 2.26 Óveðurstjón í desember 20151512096
    27. 2.27 Seeds og Veraldarvinir1605158
    28. 2.28 Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs -óskað eftir upplýsingum um vinnu1602140
    29. 2.29 Snjóflóðavarnir Tröllagili Norðfirði0903071
    30. 2.30 740 Urðarbotnar, Nes- og Bakkagil - ofanflóðavarnir1606084
    31. 2.31 Gjaldskrá sölu frá 1.7.20161606089
  3. 3. Hafnarstjórn - 164

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 14. júní s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20161601010
    2. 3.2 Aðalfundur Cruise Iceland haldinn á Akureyri 27. maí 20161601224
    3. 3.3 Umsókn um undanþágur frá lóðsskyldu fyrir Capt. Vladimir Glushkow1605138
    4. 3.4 735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna1603089
    5. 3.5 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20171605024
    6. 3.6 Norðfjarðarflugvöllur - klæðning1410115
    7. 3.7 Þjónusta við olíuleit á Drekasvæði - Trúnaðarmál1210103
    8. 3.8 Norðfjörður - Fylling og stálþil á þróunarsvæði1503131
    9. 3.9 Óveðurstjón í desember 20151512096
    10. 3.10 Fyrirhuguð bygging frystigeymslu á Fáskrúðsfirði1505078
  4. 4. Kosning forseta bæjarstjórnar kjörtímabilið 2014-2018

    Mál 1406062 Allur ferill málsins

    Tillaga bæjarstjórnar um kosningu forseta bæjarstjórnar til eins árs.

    Tilnefndur er Jón Björn Hákonarson.

    Samþykkt með 9 atkvæðum.

  5. 5. Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar kjörtímabilið 2014-2018

    Mál 1406063 Allur ferill málsins

    Tillaga bæjarstjórnar um kosningu 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar til eins árs.

    Tilnefndir eru Jens Garðar Helgason og Elvar Jónsson.

    Samþykkt með 9 atkvæðum

  6. 6. Kosning bæjarráðs kjörtímabilið 2014-2018

    Mál 1406064 Allur ferill málsins

    Tillaga bæjarstjórnar um skipan aðalmanna í bæjarráði til eins árs sbr. samþykktir um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar. Varamenn skipa sæti eftir 39. gr. samþykkta sveitarfélagsins.

    Tilnefnd eru Jens Garðar Helgason formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður og Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Samþykkt með 9 atkvæðum. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að skipan bæjarráðs verði óbreytt fram til 1. ágúst 2016 þegar Jens Garðar Helgason snýr aftur úr leyfi.

  7. 7. Kjör 2016 í nefndir og ráð til eins árs

    Mál 1606068 Allur ferill málsins

    Kosning fulltrúa og varamanna á aðalfund SSA sem haldinn verður 7. og 8. október á Seyðisfirði.

    Tillaga bæjarstjórnar.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að eftirfarandi einstaklingar verði fulltrúar Fjarðabyggðar á aðalfundi SSA.

    Aðalmenn: Jón Björn Hákonarson (B), Pálína Margeirsdóttir (B), Svanhvít Yngvadóttir (B), Hulda Sigrún Guðmundsdóttir (B), Jens Garðar Helgason (D), Valdimar O. Hermannsson (D), Kristín Gestsdóttir (D), Dýrunn Pála Skaftadóttir (D), Ragnar Sigurðsson (D), Elvar Jónsson (L), Eydís Ásbjörnsdóttir (L), Esther Ösp Gunnarsdóttir (L), Einar Már Sigurðarson (L), Páll Björgvin Guðmundsson. Varamenn:Tinna Hrönn Smáradóttir (B), Þuríður Lillý Sigurðardóttir (B), Jón Kristinn Arngrímsson (B) Einar Björnsson (B), Borghildur Stefánsdóttir (D), Birkir Hauksson (D), Sævar Guðjónsson (D), Sigurbergur Ingi Jóhannsson (D), Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir (L), Ævar Ármannsson (L), Marsibil Erlendsdóttir (L), Stefán Már Guðmundsson (L), Sigríður Margrét Guðjónsdóttir (L), Þórdís Jóna Guðmundsdóttir (L).

  8. 8. 730 Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting - stækkun akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði

    Mál 1403113 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi aðalskipulagi úr hlaði.

    Til máls tók Valdimar O Hermannson.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að breytingartillagan verði auglýst að nýju. Gert er ráð fyrir mótvægisaðgerðum vegna skipulagsins í starfshóp um göngu- og hjólreiðastíga. Mótvægisaðgerðir felist í tengingu göngustíga, göngustígagerðar og áningastaða innan Búðarár. Þá verða áformin kynnt fyrir Skógræktarfélagi Reyðarfjarðar áður en til auglýsingar kemur.

  9. 9. 730 - Deiliskipulag aksturs- og skotíþróttasvæða vestan Bjarga

    Mál 1109100 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagi úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa deiliskipulagstillögu að nýju. Gert verði ráð fyrir mótvægisaðgerðum vegna skipulagsins í starfshóp um göngu- og hjólreiðastíga. Mótvægisaðgerðir felist í tengingu göngustíga, göngustígagerðar og áningastaða innan Búðarár.

  10. 10. 740 Deiliskipulag miðbæjar Neskaupstaðar - breyting innan íþróttasvæðis

    Mál 1605098 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Neskaupstaðar þar sem gert er ráð fyrir vallarhúsi ofan íþróttavallar sbr. skipulagsuppdrátt með greinargerð dagsettur 6. júní 2016.

    Grenndarkynningu er lokið með samþykki nágranna.

    Málsmeðferð verði í samræmi við 43. gr. skipulagslaga.

  11. 11. Innkaupareglur Fjarðabyggðar - endurskoðun 2016

    Mál 1606075 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi reglunum úr hlaði.

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson, Ævar Ármannsson, Páll Björgvin Guðmundsson,

    Framlagt minnisblað fjármálastjóra um að halda óbreyttum viðmiðunarfjárhæðum í innkaupareglum Fjarðabyggðar sbr. 34. grein reglnanna um endurskoðun þeirra. Jafnframt er lögð fram tillaga vegna samfélagslegrar ábyrgðar um að stuðst verði við samþykkt í útboðum sveitarfélagsins.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum tillögu fjármálastjóra um að viðmiðunarfjárhæðir verði óbreyttar. Jafnframt er samþykkt að eftirfarandi texti skuli vera hluti af öllum útboðsgögnum og verksamningum Fjarðabyggðar og stofnana:

    "Bjóðandi mun tryggja að allir starfsmenn sem koma munu að verkinu, hvort sem er sem starfsmenn bjóðanda eða undirverktaka, fái laun og starfskjör í samræmi við gildandi kjarasamninga hverju sinni og aðstæður þeirra séu í samræmi við löggjöf á sviði vinnuverndar. Hvenær sem er á samningstíma mun bjóðandi geta sýnt verkkaupa fram á að öll réttindi og skyldur gagnvart þessum starfsmönnum séu uppfyllt. Bjóðandi samþykkir að ef hann getur ekki framvísað gögnum eða sýnt eftirlitsmanni verksins fram á að samningsskyldur séu uppfylltar innan 5 daga frá því ósk um slíkt er borin fram af verkkaupa getur verkkaupi rift verksamningi án frekari fyrirvara eða ákveðið að beita dagsektum sem nemur 0,1% af samningsupphæð fyrir hvern dag sem umbeðnar upplýsingar skortir. Beiting þessara vanefndaúrræða hefur ekki áhrif á gildi verktryggingar."

  12. 12. 715 Þingholtsvegur 5 - kauptilboð

    Mál 1606043 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.

    Bæjarráð vísar til bæjarstjórnar tillögu um að fasteignir að Þingholtsveg 3 og 5 í Mjóafirði verði settar á sölulista íbúðarhúsnæðis og auglýstar til sölu í framhaldi.

    Fyrir liggur kauptilboð í fasteignina að Þingholtsveg 5 sem eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggst ekki gegn sölu á. Þar sem fasteignin er ekki á lista yfir eignir sem bæjarstjórn hefur samþykkt til sölu er lögð fram tillaga um að eignum verði bætt á sölulista og þær auglýstar.

    Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs með 9 atkvæðum. Jafnframt er samþykkt að eignirnar verði bundnar þeirri kvöð að þær verði ekki fluttar af upprunalegri staðsetningu sinni í Mjóafirði.

  13. 13. Fjárhagsáætlun 2016 - viðauki 2

    Mál 1606118 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka 2 úr hlaði.

    Enginn tók til máls:

    Viðauki 2 við fjárhagsáætlun ársins 2016

    Um færslu fjárheimilda vegna framkvæmda við umferðaröryggi við nýjan leikskóla í Neskaupstað, framlag Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar við klæðningu flugvallar á Norfirði og vegna áhrifa nýrra kjarasamninga á launakostnað Fjarðabyggðar

    A.

    Um endurskoðun á launaáætlun ársins 2016 vegna áhrifa nýrra kjarasamninga (mál nr. 1606106)

    Áhrif nýrra kjarasamninga sem flestir hafa einnig afturvirka leiðréttingu í för með sér eru metin þannig að launaútgjöld Fjarðabyggðar muni aukast um kr. 93.914.000 frá núverandi áætlun um launakostnað. Um kr. 13.079.000 falla á B hluta stofnanir og kr. 80.835.000 falla á A hluta stofnanir Fjarðabyggðar. Heildarlaunakostnaður með launatengdum gjöldum mun því hækka um samsvarandi upphæð og verða kr. 3.084.212.000 á árinu 2016.

    Lagt er til að launaliðir verði hækkaðir um sem nemur kr. 93.914.000 í fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2016. Enn fremur er lagt til að fjármagna þennan aukna rekstrarkostnað af eigin fé Fjarðabyggðar. Viðskiptastaða stofnana og félaga við Aðalsjóð mun breytast sem því nemur þar sem það á við.

    B.

    Um tilfærslu á fjárfestingu við gatnagerð við Nesgötu í Neskaupstað vegna nýs leikskóla (mál nr. 1510088)

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti á fundi sínum 15. júní 2016 að framkvæmdum yrði flýtt um eitt ár sem bæjarráð samþykkti einnig á fundi sínum 20. júní 2016. Kostnaður við gatnagerðina og umferðaröryggismál við nýjan leikskóla í Neskaupstað við Nesgötu var áætlaður 39 milljónir króna.

    Lagt er til að framkvæmdir Eignasjóðs á árinu 2016 verði hækkaðar sem nemur kr. 39.000.000 í fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2016. Enn fremur er lagt til að fjármagna þennan aukna framkvæmdakostnað af eigin fé Eignasjóðs og mun viðskiptastaða sjóðsins við Aðalsjóð breytast sem því nemur.

    C.

    Um klæðningu Norðfjarðarflugvallar (mál nr. 1410115)

    Í samræmi við samþykkt hafnarstjórnar 14. júní 2016 og samþykkt bæjarráðs 20. júní 2016 til að gera flugvöllinn öruggari fyrir sjúkra- og neyðarþjónustu er hér lagt til að Hafnarsjóður Fjarðabyggðar leggi til Norðfjarðarflugvallar framlag allt að kr. 26.000.000.

    Lagt er til að fjármagna framlag til viðhaldsframkvæmda af eigin fé Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar og mun viðskiptastaða sjóðsins við Aðalsjóð breytast sem því nemur.

    Handbært fé Aðalsjóðs mun lækka um kr. 158.914.000 til samræmis við ofangreint og verða kr. 149.099.000 í árslok 2016.

    Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 2 með 9 atkvæðum.

  14. 14. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017

    Mál 1605024 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi tillögu úr hlaði.

    Fram lögð tillaga bæjarstjóra að breytingu á dagsetningum í reglum um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017 til 2020.

    Enginn tók til máls.

    Tillagan samþykkt með 9 atkvæðum.

  15. 15. Forsetakosningar 2016

    Mál 1604094 Allur ferill málsins

    Forseti fylgi kjörskrárstofni úr hlaði.

    Framlagður kjörskrárstofn fyrir Fjarðabyggð vegna forsetakosninga 25. júní nk.

    Karlar 1.699

    Konur 1.479

    Alls: 3.178

    Sundurliðun eftir kjördeildum.

    Eskifjörður - 656

    Fáskrúðsfjörður - 470

    Norðfjörður - 1.012

    Mjóifjörður - 19

    Reyðarfjörður - 870

    Stöðvarfjörður - 151

    Bæjarstjóri hefur umboð bæjarráðs frá fundi 20. júní sl. til að afgreiða til fullnustu verkefni vegna forsetakosninga sem fram eiga að fara 25. júní nk. og úrskurða um breytingar á kjörskrá og ráða til lykta öðrum málum, sem kunna að heyra undir verksvið bæjarstjórnar í sambandi við kosningar. Bæjarstjóri getur ávallt vísað úrskurðum um ágreiningsmál til bæjarráðs.

    Kjörskrárstofn og umboð bæjarstjóra samþykkt með 9 atkvæðum.

  16. 16. Sumarleyfi bæjarstjórnar 2016

    Mál 1606067 Allur ferill málsins

    Tillaga forseta bæjarstjórnar.

    Lagt er til að bæjarstjórn taki sumarfrí í júlí og ágúst sbr. 7. gr. samþykkta Fjarðabyggðar og komi saman að nýju eftir sumarfrí, fimmtudaginn 18. ágúst 2016.

    Einnig er lagt til að bæjarráði verði falið ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðsla mála bæjarstjórnar meðan á sumarfríi stendur.

    Enginn tók til máls.

    Tillaga samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.