Beiðni um umsögn - endurskoðun laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000
Mál 1606090 Fyrst á dagskrá 20. júní 2016, síðast 4. júlí 2016. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Umhverfi og veitur
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Bæjarráð, fundur 478 liður 19
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur skipað starfshóp sem er m.a. ætlað að koma með tillögu að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Áætlað er að starfshópurinn skili tillögu að frumvarpi til innleiðingar á tilskipun 2014/52/ESB þann 15. september nk. Enn fremur er áætlað að starfshópurinn skili greinargerð eða tillögu að frumvarpi til breytinga á öðrum tilteknum ákvæðum laga nr. 106/2000 þann 1. desember 2016 og ljúki þar með störfum. Óskar starfshópurinn eftir tillögum eða ábendingum um breytingar sem talið er að þurfi að gera á ákvæðum laga nr. 106/2000 um sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum, tímalengd ákvarðana um matsskyldu, endurskoðun matsskýrslu, innheimtu Skipulagsstofnunar á kostnaði vegna málsmeðferðar. Óskað er eftir að ábendingar berist ráðuneytinu í síðasta lagi þann 1. júlí nk.
Lesa alla bókunina (12 orð til viðbótar)
Lagt fram til kynningar. Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
Bæjarstjórn, fundur 203 liður 1.19
Fundargerðin „Bæjarráð - 478“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 148 liður 2
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir