Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 202

9. júní 2016, kl. 16:00 til 16:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, varamaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 476

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 476 og 477 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 30. maí s.l. samþykkt með 8 atkvæðum.

    1. 1.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20171605024
    2. 1.2 Endurskoðun samnings um útvistun rekstrar Skíðasvæðisins í Oddsskarði1605102
    3. 1.3 Bæjarstjórnarfundir - skipulag1506137
    4. 1.4 Endurskoðun starfsmannastefnu Fjarðabyggðar1106083
    5. 1.5 Rekstur Félagslundar 20161605020
    6. 1.6 Svanssjóhús - framtíðarplan1605121
    7. 1.7 Ástand gamla skólans á Eskifirði1410077
    8. 1.8 Framtíð tjaldsvæðis á Eskifirði1605143
    9. 1.9 Uppgröftur í Stöð1509028
    10. 1.10 Norðfjarðarflugvöllur - klæðning1410115
    11. 1.11 Hjúkrunarheimilin í Fjarðabyggð1511045
    12. 1.12 Óveðurstjón í desember 20151512096
    13. 1.13 Bíla- og tækjakaup 20161605166
  2. 2. Bæjarráð - 477

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 476 og 477 teknar til afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 6. júní s.l. samþykkt með 8 atkvæðum.

    1. 2.1 Endurskoðun samnings um útvistun rekstrar Skíðasvæðisins í Oddsskarði1605102
    2. 2.2 Endurskoðun starfsmannastefnu Fjarðabyggðar1106083
    3. 2.3 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - Bæjarráð1605179
    4. 2.4 Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 20161603017
    5. 2.5 Neskóli viðhaldsmál1605022
    6. 2.6 Norðfjarðarflugvöllur - klæðning1410115
    7. 2.7 Aðalfundur SSA 20161605076
    8. 2.8 Svæðisskipulag fyrir Austurland1602151
    9. 2.9 Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austfirðinga 20161602127
    10. 2.10 Tímabundin gisting í húsnæði gömlu Hulduhlíðar1601272
    11. 2.11 Dekkjakurl á spark- og knattspyrnuvöllum í Fjarðabyggð1602155
    12. 2.12 Þjónusta við eldri borgara og öryrkja1605173
    13. 2.13 Fundargerðir félagsmálanefndar 20161601210
    14. 2.14 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1461605013F
    15. 2.15 Menningar- og safnanefnd - 231605014F
    16. 2.16 Íþrótta- og tómstundanefnd - 231605015F
    17. 2.17 Fræðslunefnd - 281605011F
  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 146

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 30. maí s.l. samþykkt með 8 atkvæðum.

    1. 3.1 735 - Deiliskipulag Hlíðarenda1502042
    2. 3.2 730 Vallagerði 15 - Byggingarleyfi,sólpallur1605146
    3. 3.3 735 Túngata 8 - Byggingarleyfi,bílskúr1605130
    4. 3.4 750 Skólavegur 84 Byggingarleyfi - Sólpallur1605096
    5. 3.5 Umsókn um stöðuleyfi - gámur1605136
    6. 3.6 750 Notkun fjöleignarhússins að Búðavegi 351510182
    7. 3.7 735 Strandgata 12 - lóðamál1301195
    8. 3.8 Eskjutún - tenging við rafmagn1605125
    9. 3.9 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - eigna-,skipulags og umhverfisnefndar1605156
    10. 3.10 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands árið 20161602074
    11. 3.11 Setubekkur við göngustíg á Eskifirði1605124
    12. 3.12 Umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 20151510008
  4. 4. Fræðslunefnd - 28

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 1. júní s.l. samþykkt með 8 atkvæðum.

    1. 4.1 Framlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda 20161509070
    2. 4.2 Þjóðarsáttmáli um læsi barna í grunnskólum og samningur um bættan námsárangur í læsi og stærðfræði1507135
    3. 4.3 Viðmiðunarreglur um úthlutun stöðugildi til leikskóla í Fjarðabyggð1603038
    4. 4.4 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034
    5. 4.5 Styrking verklegrar kennslu í skólum Fjarðabyggðar1304104
    6. 4.6 Neskóli viðhaldsmál1605022
    7. 4.7 Ósk um launalaust leyfi1605152
    8. 4.8 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - fræðslunefnd1605157
  5. 5. Menningar- og safnanefnd - 23

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 1. júní s.l. samþykkt með 8 atkvæðum.

    1. 5.1 Framtíðarmöguleikar Sköpunarmiðstöðinnar
    2. 5.2 Ósk um kaup á steinum í eigu Fjarðabyggðar
    3. 5.3 Saga Stöðvarfjarðar
    4. 5.4 Umsókn um styrk til Stöð í Stöð
    5. 5.5 Ársskýrsla 2015 - Minjavernd hf
    6. 5.6 735 Strandgata 58 - Svanssjóhús, framtíðarplan
    7. 5.7 230 ára afmæli Eskifjarðarkaupstaðar
    8. 5.8 Umsókn um styrk til að halda bryggjuhátíð og hernámsdaginn 2016
    9. 5.9 Fjárheimilidir í fjárhagsáætlun 2017 - Menningar- og safnanefnd
    10. 5.10 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017
  6. 6. Íþrótta- og tómstundanefnd - 23

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku: Pálína Margeirsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 2. júní s.l. samþykkt með 8 atkvæðum.

    1. 6.1 Endurskoðun samnings um útvistun rekstrar Skíðasvæðisins í Oddsskarði
    2. 6.2 Námskeið í sjósporti 2.-9.júlí
    3. 6.3 Starfs- og fjárhagsáætlun 2017 í íþrótta- og tómstundamálum
    4. 6.4 Dekkjakurl á spark- og knattspyrnuvöllum í Fjarðabyggð
  7. 7. Fundargerðir félagsmálanefndar 2016

    Mál 1601210 Allur ferill málsins

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 30. maí s.l. samþykkt með 8 atkvæðum.

  8. 8. Bæjarstjórnarfundir - skipulag

    Mál 1506137 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.

    Framlögð minnisblöð um skipulag og fyrirkomulag færanlegra funda bæjarstjórnar milli bæjarkjarna.

    Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að fundir bæjarstjórnar verði bæði haldnir í bæjarkjörnum og fundarsal bæjarstjórnar á Reyðarfirði. Fyrst til að byrja með verði þeir haldnir að lágmarki einu sinni í hverjum bæjarkjarna á tímabilinu september 2016 til júní 2017. Tillaga um staðsetningu verður nánar útfærð í tillögu forseta bæjarstjórnar um fundaskipulag. Fundir haldnir utan fundarsalar verða ekki sendir út.

    Til máls tóku: Einar Már Sigurðarson, Elvar Jónsson.

    Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs með 8 atkvæðum

  9. 9. Endurskoðun samnings um útvistun rekstrar Skíðasvæðisins í Oddsskarði

    Mál 1605102 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi samningi úr hlaði.

    Lögð fram drög að endurskoðuðum samningi um útvistun rekstrar skíðasvæðisins.

    Til máls tók Valdimar O Hermannsson.

    Samningur samþykkur með 8 atkvæðum.

  10. 10. Fjárhagsáætlun 2016 - viðauki 1

    Mál 1606036 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka úr hlaði.

    Framlagður viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2016 í samræmi við samþykkt bæjarráðs 6. júní 2016 ásamt minnisblað sviðsstjóra framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs um framkvæmdir við vesturálmu Nesskóla. Áætlað er að kostnaður við framkvæmdirnar verði um kr. 55.000.000. Lagt til að viðhaldsliður Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. í deild 37-111 verði hækkaður um kr. 55.000.000 í fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2016. Enn fremur er lagt til að fjármagna þennan aukna rekstrarkostnað af eigin fé Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. og mun viðskiptastaða félagsins við Aðalsjóð breytast sem því nemur.

    Handbært fé aðalsjóðs mun lækka um kr. 55.000.000 til samræmis við ofangreint og verða kr. 308.013.000 í árslok 2016.

    Bæjarráð hefur samþykkt að semja beint við verktaka þar sem tími er naumur og framboð á vinnuafli lítið.

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Bæjarstjórn samþykkir viðauki nr. 1 vegna ársins 2016 með 8 atkvæðum.

  11. 11. Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Mál 1410115 Allur ferill málsins

    Dagskrárliður er trúnaðarmál.

    Foreti bæjarstjórnar fylgdi máli úr hlaði.

    Fyrir liggur samningur um framkvæmdir við endurbætur á Norðfjarðarflugvelli milli Innanríkisráðuneytisins og Fjarðabyggðar.

    Til máls tóku: Valdimar O Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson.

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar staðfestir samninginn með 8 atkvæðum og felur bæjarstjóra að undirrita hann ásamt því að gera samninga vegna framkvæmdanna við hlutaðeigandi aðila sem tengjast framkvæmdinni og Innanríkisráðuneytinu. Samningar verði lagðir fyrir bæjarráð til staðfestingar ásamt viðauka við fjárhagsáætlun 2016 vegna framkvæmdanna.

  12. 12. Svæðisskipulag fyrir Austurland

    Mál 1602151 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.

    Bæjarráð vísar tillögum starfshóps um svæðisskipulag á Austurlandi til staðfestingar bæjarstjórnar. Framlögð er tillaga hópsins um þær áherslur og þau verkefni sem hafa skal að leiðarljósi við svæðisskipulagsgerð fyrir Austurland allt og talið er að samstaða sé um. Tillagan er send til sveitarfélaganna og þess óskað að þau taki afstöðu til hennar hið fyrsta.

    Til máls tók Páll Björgvin Guðmundsson.

    Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum tillögu starfshópsins.

  13. 13. Kaup á snjótroðara 2016

    Mál 1606064 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi máli úr hlaði.

    Fram lögð tillaga um kaupa á snjótroðara fyrir skíðasvæðið í Oddsskarði sbr. minnisblað frá íþrótta- og tómstundafulltrúa.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum að fela bæjarstjóra að ganga til samninga um kaup á notuðum troðara og leggja fyrir bæjarráð samning til staðfestingar.