Bæjarráð, fundur 476
30. maí 2016, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, varaformaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 202 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs nr. 476 og 477 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 30. maí s.l. samþykkt með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017
Mál 1605024 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Framlögð tillaga að úthlutun ramma við fjárhagsáætlunargerð í samræmi við reglur um fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2017.
Bæjarráð samþykkir að vísa fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsrömmum til nefnda.
-
2. Endurskoðun samnings um útvistun rekstrar Skíðasvæðisins í Oddsskarði
Mál 1605102 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Framhald umræðu um endurskoðun samnings við Austurríki um rekstur SKO frá síðasta fundi.
Bæjarstjóra og fjármálastjóra falið að vinna áfram að gerð samnings og leggja fyrir bæjarráð til staðfestingar.
-
3. Bæjarstjórnarfundir - skipulag
Mál 1506137 Allur ferill málsins
Framlögð minnisblöð um skipulag og fyrirkomulag færanlegra funda bæjarstjórnar milli bæjarkjarna.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að fundir bæjarstjórnar verði bæði haldnir í bæjarkjörnum og fundarsal bæjarstjórnar. Fyrst til að byrja með verði þeir haldnir einu sinni í hverjum bæjarkjarna á tímabilinu september 2016 til júní 2017. Tillaga um staðsetningu verður nánar útfærð í tillögu forseta bæjarstjórnar um fundaskipulag. Fundir haldnir utan fundarsalar verða ekki teknir upp. Vísað til bæjarstjórnar.
-
4. Endurskoðun starfsmannastefnu Fjarðabyggðar
Mál 1106083 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat forstöðumaður stjórnsýslu.
Lögð fram drög sem vinnugögn að reglum um áreitni og einelti á vinnustað, drög að reglum um heilsu- og vinnuvernd og drög að reglum um vinnuverndarmál auk minnisblaðs.
Bæjarráð fór yfir gögnin og vísar þeim til áframhaldandi vinnu í bæjarráði.
-
5. Rekstur Félagslundar 2016
Mál 1605020 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat forstöðumaður stjórnsýslu.
Framlagt minnisblað merkt trúnaður vegna umsókna um rekstur Félagslundar.
Bæjarráð samþykkir að viðræðum verði haldið áfram með það að leiðarljósi að húsið verði rekið sem menningarhús.
-
6. Svanssjóhús - framtíðarplan
Mál 1605121 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar gögn um hugmyndir um framtíð sjóhússins að Strandgötu 58 Eskifirði.
Bæjarráði lýst vel á framkomnar hugmyndir Veraldarvina og hvetur til að framkvæmdum verði flýtt sem kostur er.
Vísað til menningar- og safnanefndar.
-
7. Ástand gamla skólans á Eskifirði
Mál 1410077 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar greinargerð um stöðu framkvæmda við Gamla barnaskólann á Eskifirði.
Fram kemur í greinargerð að miklar framkvæmdir hafa verið innandyra og áætlanir um utanhússframkvæmdir.
Bæjarráð lýst vel á þær framkvæmdir sem komnar eru og hvetur til þess að verki verði hraðað eins og kostur er.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
8. Framtíð tjaldsvæðis á Eskifirði
Mál 1605143 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Íbúasamtakanna á Eskifirði er varðar framtíðar tjaldsvæði á Eskfirði.
Bæjarráð skipaði hóp til að skoða málið á síðasta ári. Jens Garðar Helgason formaður bæjarráðs leiðir starf hópsins.
-
9. Uppgröftur í Stöð
Mál 1509028 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fór yfir fund sem hann átti með áhugamannafélagi um fornleifarannsóknir á Stöðvarfirði og forstöðumanni menningar- og safnamála.
Bæjarstjóri leggur til að framlag sveitarfélagsins verði í formi forvörslu muna allt að 400.000 kr. og 400.000 kr. til standa straum að kostnaði við aðstöðusköpun fyrir aðila sem annast rannsóknir á árinu 2016. Tekið af liðnum óráðstafað 21690.
-
10. Norðfjarðarflugvöllur - klæðning
Mál 1410115 Allur ferill málsins
Framlögð drög að samningi um framkvæmdir við endurbætur á Norðfjarðarflugvelli milli Innanríkisráðuneytisins og Fjarðabyggðar. Drögin eru með vísan til viljayfirlýsingar milli aðila.
Bæjarráð samþykkir samning með fyrirvara um staðfestingu bæjarstjórnar.
-
11. Hjúkrunarheimilin í Fjarðabyggð
Mál 1511045 Allur ferill málsins
Trúnaðarmál.
Bæjarritara falið að svara erindi í samráði við sviðsstjóra fjölskyldusviðs.
-
12. Óveðurstjón í desember 2015
Mál 1512096 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað sviðsstjóra framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs. Farið yfir bætur sem fengust vegna tjóna sem urðu í desember vegna óveðurs og ráðstöfun þeirra. Bætur námu 46,3 milljónum kr. en metið tjón nemur 71,3 milljónum kr.
Forgangsröðun verkefna vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar til kynningar.
-
13. Bíla- og tækjakaup 2016
Mál 1605166 Allur ferill málsins
Farið yfir tækja- og bílamál sveitarfélagsins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara yfir endurnýjun tækja og bíla sveitarfélagsins innan heimilda fjárhagsáætlunar 2016 með sviðsstjóra framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs og framkvæmdastjóra hafna.