Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 477

6. júní 2016, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Kristín Gestsdóttir, varamaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 202 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 476 og 477 teknar til afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 6. júní s.l. samþykkt með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Endurskoðun samnings um útvistun rekstrar Skíðasvæðisins í Oddsskarði

    Mál 1605102 Allur ferill málsins

    Drög að endurskoðuðum samningi um útvistun rekstrar skíðasvæðisins lögð fram, auk minnisblaðs íþrótta- og tómstundafulltrúa vegna kaupa á snjótroðara. Bæjarstjóri gerði grein fyrir breytingum á samningi.

    Bæjarráð samþykkir samning og felur bæjarstjóra undirritun hans.

    Bæjarráð samþykkir jafnframt tillögu í minnisblaði um kaup á nýlegum og nýuppgerðum troðara fyrir skíðasvæðið í Oddsskarði.

    Kostnaði vegna kaupa á snjótroðara vísað til fjárhagsáætlunar 2017.

    Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. 2. Endurskoðun starfsmannastefnu Fjarðabyggðar

    Mál 1106083 Allur ferill málsins

    Lögð fram frekari gögn í tengslum við vinnu við mannauðsstefnu. Um er að ræða:

    Drög að reglum um auglýsingu starfa og ráðningu starfsmanna

    Drög að ráðningarferli

    Drög að reglum um móttöku nýrra starfsmanna

    Drög að reglum um skil launagagna

    Drög að leiðbeiningum stjórnenda og verklag við skil á launagögnum í viðverukerfi

    Drög að reglum um viðveruskráningu

    Drög að reglum um sveigjanlegan vinnutíma

    Drög að reglum um launalaus leyfi eða lækkað starfshlutfall

    Bæjarráð fór yfir gögnin og vísar þeim til áframhaldandi vinnu í bæjarráði.

  3. 3. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - Bæjarráð

    Mál 1605179 Allur ferill málsins

    Bréf bæjarstjóra vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2017 lagt fram til kynningar.

  4. 4. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2016

    Mál 1603017 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Sambandsins nr. 839 frá 27.maí 2016, lögð fram til kynningar.

  5. 5. Neskóli viðhaldsmál

    Mál 1605022 Allur ferill málsins

    Þennan lið sátu fjármálastjóri og sviðsstjóri framkvæmda- umhverfis- og veitusviðs. Framlagt minnisblað sviðsstjóra framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs um framkvæmdir við vesturálmu Nesskóla. Bæjarráð samþykkir að semja beint við verktaka þar sem tími er naumur og framboð á vinnuafli lítið. Fjármálastjóra falið að útbúa viðauka vegna framkvæmdanna og leggja fyrir bæjarstjórn.

  6. 6. Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Mál 1410115 Allur ferill málsins

    Þennan lið sátu fjármálastjóri og sviðsstjóri framkvæmda- umhverfis- og veitusviðs. Farið yfir málefni Norðfjarðarflugvallar og útboð vegna klæðningar vallarins. Samningur um kostnaðarskiptingu milli ríkisins og Fjarðabyggar er á dagskrá næsta fundar bæjastjórnar.

  7. 7. Aðalfundur SSA 2016

    Mál 1605076 Allur ferill málsins

    Tillögur til umræðu og afgreiðslu í nefndum á aðalfundi SSA í haust. Bæjarstjóra falið að koma tillögum áfram til SSA.

  8. 8. Svæðisskipulag fyrir Austurland

    Mál 1602151 Allur ferill málsins

    Starfshópur um svæðisskipulag hefur lokið störfum. Framlögð er tillaga hópsins um þær áherslur og þau verkefni sem hafa skal að leiðarljósi við svæðisskipulagsgerð fyrir Austurland allt og talið er að samstaða sé um. Tillagan er send til sveitarfélaganna og þess óskað að þau taki afstöðu til hennar hið fyrsta. Bæjarráði lýst vel á tillögur starfshópsins um sameiginleg verkefni við gerð svæðisskipulags. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  9. 9. Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2016

    Mál 1602127 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnarfundar Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 31. maí 2016 auk draga að fjárhagsáætlun og rekstrarframlögum ársins 2017, lagt fram til kynningar.

  10. 10. Tímabundin gisting í húsnæði gömlu Hulduhlíðar

    Mál 1601272 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur tölvupóstur frá Páli Snorrasyni framkvæmdastjóra fjármála- og rekstrarsviðs Eskju, um tímabundna leigu á húsnæði gömlu Hulduhlíðar til 1.nóvember, í tengslum við byggingu á uppsjávarfrystihúsi félagsins. Bæjarráð samþykkir að heimila leigu af húsnæðinu að því gefnu að öll tilskilin leyfi liggi fyrir og að annað gistirými á Eskifirði og nágrenni sé fullnýtt. Leigutekjur renni til viðhalds hússins. Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi. Þá ítrekar bæjarráð að nauðsynlegt er að velferðarráðuneytið gefi skýr svör um framtíð hússins.

  11. 11. Dekkjakurl á spark- og knattspyrnuvöllum í Fjarðabyggð

    Mál 1602155 Allur ferill málsins

    Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd. Lögð fram verkáætlun um framkvæmdir við sparkvelli í Fjarðabyggð auk minnisblaðs íþrótta- og tómstundafulltrúa. Bæjarráð felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að ræða við umhverfis- og auðlindaráðuneytið um útfærslu á samþykkt Alþingis um bann við dekkjakurli.

  12. 12. Þjónusta við eldri borgara og öryrkja

    Mál 1605173 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað fræðslustjóra um garðslátt og snjómokstur fyrir eldri borgara. Bæjarráð felur fræðslustjóra að útbúa drög að reglum um garðslátt, í svipuðum dúr og reglur um fasteignaskatt eldri borgara og öryrkja, í samráði við fjármálastjóra og leggja að nýju fyrir bæjarráð.

  13. 13. Fundargerðir félagsmálanefndar 2016

    Mál 1601210 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 84 frá 30.maí 2016, lögð fram til kynningar.

  14. 14. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 146

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 146 frá 30.maí 2016, lögð fram til kynningar.

  15. 15. Menningar- og safnanefnd - 23

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 23 frá 1.júní 2016, lögð fram til kynningar.

  16. 16. Íþrótta- og tómstundanefnd - 23

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 23 frá 2.júní 2016, lögð fram til kynningar.

  17. 17. Fræðslunefnd - 28

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 28 frá 1.júní 2016, lögð fram til kynningar.