Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Heimsókn samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Mál 1410115 Fyrst á dagskrá 17. nóvember 2014, síðast 7. september 2017. 31 færsla í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, Hafnarstjórn.

Í heiti málsins: Neskaupstaður og NorðfjörðurSamgöngur

Í hnotskurn

Málið snýst um endurbætur og klæðningu Norðfjarðarflugvallar. Framkvæmdin er fjármögnuð af ríkinu, Fjarðabyggð, hafnarsjóði og fyrirtækjum á svæðinu20. Síðasta skráða skref var að hafnarstjórn styrkti gerð flughlaðs um 2,5 millj. kr. til að ljúka fjármögnun þess, og bæjarstjórn staðfesti það2829.

Staðan

Gögnin greina ekki frá verklokum; síðasta skráða afgreiðsla er staðfesting bæjarstjórnar á fundargerð bæjarráðs frá heimsókn samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra31.

Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna. Leiðin er löng, dragðu hana til hliðar.
  1. 2014

    Bæjarráð, fundur 406 liður 6

    Norðfjarðarflugvöllur

    Bæjarráð fór yfir málefni flugvallarins vegna hækkunar á vatnsborði leirunnar við völlinn og vísaði minnisblaði Mannvits til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn og til úrvinnslu á framkvæmdasviði.

    Endursögn gervigreindar

    Farið var yfir málefni Norðfjarðarflugvallar vegna hækkunar á vatnsborði leirunnar við völlinn. Lagt fram minnisblað Mannvits frá 14.nóvember. Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn og til framkvæmdasviðs til úrvinnslu.

  2. Bæjarstjórn, fundur 167 liður 4.6

    Fundargerðin „Bæjarráð - 406“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Norðfjarðarflugvöllur

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Hafnarstjórn, fundur 141 liður 3

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Minnisblað Mannvits var lagt fram og framkvæmdastjóra falið að fylgja málinu eftir.

    Endursögn gervigreindar

    Lagt fram minnisblað Mannvits frá 14.nóvember er varðar málefni Norðfjarðarflugvallar vegna hækkunar á vatnsborði leirunnar við völlinn. Til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn. Framkvæmdastjóra falið að fylgja málinu eftir.

  4. Bæjarstjórn, fundur 168 liður 12.3

    Fundargerðin „Hafnarstjórn - 141“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  5. 2016

    Bæjarráð, fundur 474 liður 8

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Bæjarráð samþykkti drög að viljayfirlýsingu um framkvæmdir við flugvöllinn og fól bæjarstjóra að undirrita hana og gera samning við Innanríkisráðuneytið.

    Endursögn gervigreindar

    Framlögð drög að viljayfirlýsingu um framkvæmdir við Norðfjarðarflugvöll.

    Bæjarráð samþykkir drög að viljayfirlýsingu og felur bæjarritara að koma ábendingum vegna hennar á framfæri. Bæjarráð felur bæjarstjóra undirritun viljayfirlýsingarinnar og gerð samnings við Innanríkisráðuneyti um framkvæmdir.

  6. Bæjarstjórn, fundur 201 liður 1.8

    Fundargerðin „Bæjarráð - 474“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  7. Bæjarráð, fundur 476 liður 10

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Bæjarráð samþykkti drög að samningi við Innanríkisráðuneytið um endurbætur á flugvellinum, með fyrirvara um staðfestingu bæjarstjórnar.

    Endursögn gervigreindar

    Framlögð drög að samningi um framkvæmdir við endurbætur á Norðfjarðarflugvelli milli Innanríkisráðuneytisins og Fjarðabyggðar. Drögin eru með vísan til viljayfirlýsingar milli aðila.

    Bæjarráð samþykkir samning með fyrirvara um staðfestingu bæjarstjórnar.

  8. Bæjarráð, fundur 477 liður 6

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Bæjarráð fór yfir málefni flugvallarins og útboð vegna klæðningar hans, ásamt fjármálastjóra og sviðsstjóra framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs.

    Endursögn gervigreindar

    Þennan lið sátu fjármálastjóri og sviðsstjóri framkvæmda- umhverfis- og veitusviðs. Farið yfir málefni Norðfjarðarflugvallar og útboð vegna klæðningar vallarins. Samningur um kostnaðarskiptingu milli ríkisins og Fjarðabyggar er á dagskrá næsta fundar bæjastjórnar.

  9. Bæjarstjórn, fundur 202 liður 11

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Bæjarstjórn staðfesti samninginn við Innanríkisráðuneytið með 8 atkvæðum og fól bæjarstjóra að undirrita hann og gera samninga við aðra aðila framkvæmdarinnar.

    Endursögn gervigreindar

    Dagskrárliður er trúnaðarmál.

    Foreti bæjarstjórnar fylgdi máli úr hlaði.

    Fyrir liggur samningur um framkvæmdir við endurbætur á Norðfjarðarflugvelli milli Innanríkisráðuneytisins og Fjarðabyggðar.

    Til máls tóku: Valdimar O Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson.

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar staðfestir samninginn með 8 atkvæðum og felur bæjarstjóra að undirrita hann ásamt því að gera samninga vegna framkvæmdanna við hlutaðeigandi aðila sem tengjast framkvæmdinni og Innanríkisráðuneytinu. Samningar verði lagðir fyrir bæjarráð til staðfestingar ásamt viðauka við fjárhagsáætlun 2016 vegna framkvæmdanna.

  10. Bæjarstjórn, fundur 202 liður 1.10

    Fundargerðin „Bæjarráð - 476“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  11. Bæjarstjórn, fundur 202 liður 2.6

    Fundargerðin „Bæjarráð - 477“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  12. Hafnarstjórn, fundur 164 liður 6

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Hafnarstjórn samþykkti allt að 25 millj. kr. framlag til flugvallarins, meðal annars í þágu öryggis sjófarenda.

    Endursögn gervigreindar

    Í umræðu er að fara í endurbætur á Norðfjarðarflugvelli til að gera hann öruggari fyrir sjúkra- og neyðarþjónustu.

    Hafnarstjórn samþykkir að leggja til Norðfjarðarflugvallar allt að 25. millj. kr. framlag til að efla það öryggi sem fæst með viðgerð á vellinum m.a. í þágu sjófarenda sem fara um hafnir sveitarfélagsins.

  13. Bæjarráð, fundur 478 liður 5

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Bæjarráð staðfesti tillögu hafnarstjórnar og fól fjármálastjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun 2016 vegna framlagsins.

    Endursögn gervigreindar

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Hafnarstjórn samþykkir að leggja til Norðfjarðarflugvallar allt að 25. millj. kr. framlag til að efla öryggi í þágu sjófarenda sem fara um hafnir sveitarfélagsins.

    Bæjarráð staðfestir tillögu hafnarstjórnar og felur fjármálastjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun 2016 vegna framlagsins.

  14. Bæjarstjórn, fundur 203 liður 1.5

    Fundargerðin „Bæjarráð - 478“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  15. Bæjarstjórn, fundur 203 liður 3.6

    Fundargerðin „Hafnarstjórn - 164“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  16. Bæjarráð, fundur 481 liður 7

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Kynntar voru viðræður við tilboðsgjafa og verkáætlanir, og bæjarráð samþykkti drög að samningi um framkvæmdirnar og fól bæjarstjóra að útfæra hann og undirrita.

    Endursögn gervigreindar

    Þennan lið dagskrár sat sviðsstjóri framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs.

    Kynntar viðræður við tilboðsgjafa um endurbætur á flugvelli í Neskaupstað og verkáætlanir vegna framkvæmdanna.

    Bæjarráð samþykkir með vísan til samþykktar bæjarstjórnar frá 9. júní s.l. drög að samningi um framkvæmdir við Norðfjarðarflugvöll og felur bæjarstjóra að útfæra samning og undirrita.

  17. Bæjarráð, fundur 483 liður 4

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Endanleg samningsdrög milli Fjarðabyggðar og Isavia voru lögð fram til kynningar og var stefnt að verklokum í júlí 2017.

    Endursögn gervigreindar

    Lögð fram til kynningar endanleg samningsdrög milli Fjarðabyggðar og Isavia. Stefnt er að verklokum í júlí 2017.

  18. Bæjarstjórn, fundur 204 liður 3.7

    Fundargerðin „Bæjarráð - 481“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  19. Bæjarstjórn, fundur 204 liður 5.4

    Fundargerðin „Bæjarráð - 483“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  20. Bæjarráð, fundur 485 liður 4

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Samningar um framlög heimaaðila, framlög ríkisins og verksamningur Isavia og Héraðsverks lágu fyrir til undirritunar, og bæjarráð samþykkti bókun um fjármögnun verksins og fyrirhugaða lokun NA/SV-brautar Reykjavíkurflugvallar.

    Endursögn gervigreindar

    Samningar um klæðningu Norðafjarðarflugvallar liggja fyrir til undirritunar.

    Um er að ræða samning heimaaðila, Fjarðabyggðar, Samvinnufélags Útgerðarmanna í Neskaupstað og Síldvarvinnslunar um framlög heimaaðila til framkvæmdarinnar. Samningur Innanríkisráðuneytisins og Fjarðabyggðar um framlög til klæðningar vallarins. Verksamningur Isavia og Héraðsverks um framkvæmdina.

    Ólöf Nordal innanríkisráðherra undirritaði samning við Fjarðabyggð um framkvæmdina á Norðfjarðarflugvelli í flugstöðinni.

    Lesa alla bókunina (309 orð til viðbótar)

    Bæjarráð samþykkir eftirfarandi bókun.

    Undirritaður verður í dag, á Norðfjarðarflugvelli, samningur á milli sveitarfélagsins Fjarðabyggðar og Innanríkisráðuneytisins um fjármögnun á framkvæmdum á Norðfjarðarflugvelli, sem gera munu flugvellinum kleift að sinna betur öryggishlutverki sínu, sem hluti af samgöngukerfi landsins. Bæjarráð vill koma á framfæri sérstöku þakklæti til Samvinnufélags Útgerðamanna í Neskaupstað og Síldarvinnslunnar hf. vegna aðkomu þessara aðila að fjármögnun verkefnisins með sveitarfélaginu. Þá vill bæjarráð þakka aðkomu Innanríkisráðuneytisins og alþingis að verkefninu, sem tryggir rúman helming fjármagns til framkvæmdarinnar. Bæjarráð áréttar þó, að þátttaka sveitarfélagsins og milliganga um fjármögnun verksins, sem er að öllu leyti á forræði ríkisins, er ekki til eftirbreytni. Ríkisvaldinu ber að tryggja þá innviði samfélagsins sem snúa að öryggi- og heilbrigðismálum landsmanna og skýtur skökku við að sveitarfélögum og fyrirtækjum sé ætluð aðild að slíkum verkefnum.

    Þá mótmælir bæjarráð Fjarðabyggðar harðlega þeirri fyrirætlun borgarstjórnar Reykjavíkur að loka NA/SV neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar og lýsir jafnframt vonbrigðum með aðgerðarleysi ríkisvaldsins en óumdeilt er, að þessi ákvörðun Reykjavikurborgar skerðir þjónustu við íbúa þeirra sveitarfélaga, sem treysta verða á sjúkraflug til höfuðborgarinnar í neyðartilvikum. Það hlýtur jafnframt að teljast undrunarefni, að á sama tíma og sveitarfélag á borð við Fjarðabyggð leita allra leiða til að tryggja aðstöðu fyrir sjúkraflug, kýs sveitarfélagið Reykjavíkurborg að loka mikilvægri öryggisflugbraut fyrir sjúkraflug á Reykjavíkurflugvelli. Réttur sveitarfélaga er óumdeildur þegar kemur að skipulagsmálum. Borgarstjórn Reykjavíkur má þó vera ljóst, að sjúkraflug liggur til höfuðborgarinnar, þar sem stjórnvöld hafa byggt upp miðlæga sjúkraþjónustu landsins og hátæknisjúkrahús.

    Bæjarráð telur brýnt að sveitarfélög víki sér ekki undan því að leita lausna í almannaþágu, sem nýst geta fleirum en hverju og einu þeirra. Ríkisstjórn landsins studdi enn fremur á sínum tíma ákvörðun borgaryfirvalda um lokun brautarinnar og hlýtur af þeim sökum að axla ábyrgð á afleiðingum þess með mótvægisaðgerðum. Fjarðabyggð leggur þunga áherslu á að Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga og ríkisvaldið komist að ásættanlegri niðurstöðu í þessu brýna almannaöryggismáli."

  21. Bæjarstjórn, fundur 205 liður 1.4

    Fundargerðin „Bæjarráð - 485“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  22. 2017

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 170 liður 23

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Fundargerð nr. 3 vegna verksins var lögð fram til kynningar.

    Endursögn gervigreindar

    Lögð fram til kynningar fundargerð nr 3

  23. Bæjarstjórn, fundur 219 liður 2.23

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 170“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  24. Bæjarráð, fundur 521 liður 7

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Minnisblað um stöðu framkvæmda var lagt fram og sviðsstjóra falið að vinna áfram að málinu.

    Endursögn gervigreindar

    Framlagt minnisblað um stöðu framkvæmda við klæðningu Norðfjarðarflugvallar.

    Sviðsstjóra falið að vinna áfram að málinu.

  25. Bæjarstjórn, fundur 223 liður 2.7

    Fundargerðin „Bæjarráð - 521“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  26. Bæjarráð, fundur 523 liður 5

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Bæjarráð samþykkti klæðningu flughlaðs, sem metin var á um tíu milljónir kr., og fól bæjarstjóra að ganga frá fjármögnun í samstarfi við samráðsaðila.

    Endursögn gervigreindar

    Framlögð kostnaðaráætlun fyrir klæðningu flughlaðs Norðfjarðarflugvallar. Búið er að fara yfir hönnun og gera smávægilegar breytingar á uppbyggingu sem hafa ekki áhrif á gæði flughlaðsins. Kostnaður er metinn um tíu milljónir kr.

    Bæjarráð samþykkir að ráðist verði í framkvæmdina og felur bæjarstjóra að ganga frá fjármögnun verkefnisins í samstarfi við samráðsaðila. Þá þakkar bæjarráð Héraðsverki framlag sitt í gerð flughlaðs vegna þessa mikilvæga verkefnis í heilbrigðisþjónustu fjórðungsins.

  27. Bæjarstjórn, fundur 224 liður 2.5

    Fundargerðin „Bæjarráð - 523“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  28. Hafnarstjórn, fundur 181 liður 6

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Hafnarstjórn samþykkti að styrkja gerð flughlaðs um 2,5 millj. kr. af þeim um 15 millj. kr. sem vantaði.

    Endursögn gervigreindar

    Erindi frá bæjarstjóra Fjarðabyggðar dags.1. júní 2017 þar sem gerð er grein fyrir að um 15 millj.kr. vanti til að ljúka við gerð flughlaðs á Norðfjarðarflugvelli, en hluti kemur úr verkinu eða 5 millj.kr. Héraðsverk styrkir verkið um 5 millj.kr. 2,5 millj.kr. koma frá SÚN og stand þá eftir 2,5 millj.kr. Óskað er eftir að hafnarsjóður fjármagni þær 2,5 millj.kr sem útaf standa.

    Hafnarstjórn samþykkir að verða við beiðninni og styrkja gerð flughlaðs um 2,5 millj.kr.

  29. Bæjarstjórn, fundur 225 liður 8.6

    Fundargerðin „Hafnarstjórn - 181“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  30. Bæjarráð, fundur 530 liður 1

    Í heimsókn samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra var farið yfir málaflokka ráðuneytisins og málefni sveitarfélagsins.

    Endursögn gervigreindar

    1)Farið yfir málaflokka Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og málefni sveitarfélagsins.

    2)Farið yfir málefni sveitarfélagsins sem snúa að samgöngu- og sveitarstjórnarmálum.

  31. Bæjarstjórn, fundur 227 liður 1.1

    Fundargerðin „Bæjarráð - 530“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is