Hafnarstjórn, fundur 164
14. júní 2016, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 478 liður 26
Fundargerð hafnarstjórnar frá 14. júní s.l. lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 203 liður 3
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 14. júní s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2016
Mál 1601010 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 385 dags. 17. maí 2016 lögð fram til kynningar.
-
2. Aðalfundur Cruise Iceland haldinn á Akureyri 27. maí 2016
Mál 1601224 Allur ferill málsins
Ársskýrsla Cruise Iceland fyrir árið 2015 lögð fram til kynningar. Framkvæmdastjóri gerið einnig grein fyrir heimsókn fulltrúa frá fjórum skemmtiferðaskipafélögum til Fjarðabyggðar og aðalfundi Cruise Europe.
-
3. Umsókn um undanþágur frá lóðsskyldu fyrir Capt. Vladimir Glushkow
Mál 1605138 Allur ferill málsins
Erindi frá Thor Shipping dags. 25. maí 2016 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Vladimir Glushkow skipstjóra á Mv. Marmaui og Marmolokai að og frá Mjóeyrarhöfn.
Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Vladimir Glushkow skipstjóra á Marmaui og Marmolokai.
-
4. 735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna
Mál 1603089 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri fór yfir fyrstu frumdrög að hugmynd um nýjan kant á Eskifirði. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinnamálið áfram.
-
5. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017
Mál 1605024 Allur ferill málsins
Farið yfir reglur og tímaáætlun vegna fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2017. Framkvæmdastjóra falið að hefja vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017 ásamt langtímaáætlun.
-
6. Norðfjarðarflugvöllur - klæðning
Mál 1410115 Allur ferill málsins
Í umræðu er að fara í endurbætur á Norðfjarðarflugvelli til að gera hann öruggari fyrir sjúkra- og neyðarþjónustu.
Hafnarstjórn samþykkir að leggja til Norðfjarðarflugvallar allt að 25. millj. kr. framlag til að efla það öryggi sem fæst með viðgerð á vellinum m.a. í þágu sjófarenda sem fara um hafnir sveitarfélagsins.
-
7. Þjónusta við olíuleit á Drekasvæði - Trúnaðarmál
Mál 1210103 Allur ferill málsins
Fyrir liggja drög að samningi við ASB (Artic Supply Base) um aðstöðu á hafnarsvæði vegna þjónustu við rannsóknar á hafsvæðinu norðan Íslands. Framkvæmdastjóri hafna gerði grein fyrir vinnu við samningsdrögin í samræmi við vinnuskjal sem honum í samráði við bæjarstjóra var falið að vinna áfram á fundi hafnarstjórnar 9.feb og 28.apríl sl. Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti samningsdrögin og vísar þeim til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarráði.
-
8. Norðfjörður - Fylling og stálþil á þróunarsvæði
Mál 1503131 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri fór yfir minnisblað sem lá fyrir fundinum og gerði grein fyrir stöðu mála og vinnu framundan. Unnið verður áfram við verkið. Hafnarstjórn heimilar útboð á gerð hafnarkants þegar útboðsgögn liggja fyrir.
-
9. Óveðurstjón í desember 2015
Mál 1512096 Allur ferill málsins
Á fundi bæjarráðs þann 30. maí 2016 var fjallað um framlagt minnisblað sviðsstjóra framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs. Farið yfir bætur sem fengust vegna tjóna sem urðu í desember vegna óveðurs og ráðstöfun þeirra. Bætur námu 46,3 milljónum kr. en metið tjón nemur 71,3 milljónum kr. Forgangsröðun verkefna vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar til kynningar.
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við skiptinguna og mun það fjármagn sem fellur í hlut hafnarsjóðs verða nýtt til að endurbyggja grjótvarnir á Eskifirði og lagfæringa á smábátahöfnunum á Eskifirði og Fáskrúðsfirði.
-
10. Fyrirhuguð bygging frystigeymslu á Fáskrúðsfirði
Mál 1505078 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu framkvæmda við Strandarbryggju á Fáskrúðsfirði, en unnið er að gerð útboðsgagna og verða þau væntanlega tilbúin innan skamms. Hafnarstjórn heimilar útboð á gerð hafnarkants þegar útboðsgögn liggja fyrir.