Hafnarstjórn, fundur 163
19. maí 2016, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Gísli Benediktsson, varamaður
- Árni Þórhallur Helgason, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 475 liður 9
Fundargerð hafnarstjórnar frá 19. maí lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 201 liður 4
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 19. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2016
Mál 1601010 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 384 dags. 29. apríl 2016 lögð fram til kynningar.
-
2. Boðun á hafnarsambandsþing 13. - 14. október 2016 á Ísafirði
Mál 1605039 Allur ferill málsins
Boðun á hafnasambandsþing 13. til 14. október 2016 á Ísafirði.
Hafnarstjórn samþykkir að gera ráð fyrir að aðalmenn fari á hafnasambandsþingið.
-
3. Framkvæmdir við hafnir og hlutverk Samgöngustofu
Mál 1605040 Allur ferill málsins
Erindi frá Hafnarsambandinu dags. 4. maí 2016 þar sem kynnt er erindi sem því barst frá Samgöngustofu er varðar framkvæmdir við hafnir og hlutverk Samgöngustofu. Lagt fram til kynningar.
-
4. Aðstöðuhús við smábátahafnir
Mál 1503148 Allur ferill málsins
Ævar yfirgaf fundinn undir þessum dagskrárlið. Lögð fram drög að verksamningi vegna smíði þjónustuhúss við smábátahöfnina á Stöðvarfirði. Samningsupphæð er 9.632.040 kr. og skal verki lokið 31. ágúst 2016.
Hafnarstjórn samþykkir samninginn og felur framkvæmdastjóra að ganga frá honum.
Ævar kom að nýju inn á fundinn.
-
5. Beiðni um styrk vegna efniskaupa.
Mál 1604124 Allur ferill málsins
Tekið fyrir erindi Björgunarsveitarinnar Gerpis sem frestað var á síðasta fundi þar sem óskað var eftir styrk til efniskaupa í bryggju við björgunarsveitarhúsið.
Hafnarstjórn samþykkir að styrkja sveitina um efniskostnað allt að 8 millj.kr. og greiðist framlagið eftir framvindu verks og framlögðum efniskaupareikningum. Tekið af liðnum óráðstafað.