Hafnarstjórn, fundur 162
27. apríl 2016, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Gísli Benediktsson, varamaður
- Árni Þórhallur Helgason, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 472 liður 17
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 162 frá 27.apríl 2016, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 200 liður 8
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 162 frá 27.apríl 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2016
Mál 1601010 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 383 dags. 1. apríl 2016 lögð fram til kynningar.
-
2. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2016
Mál 1601010 Allur ferill málsins
Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 19. apríl 2016 þar sem lagður er fram ársreikningur hafnasambandsins fyrir árið 2015 til kynningar. Athugasemdafrestur er til 12. maí 2016. Ársreikningurinn lagður fram til kynningar.
-
3. Aðalfundur Cruise Iceland haldinn á Akureyri 27. maí 2016
Mál 1601224 Allur ferill málsins
Boð á aðalfund Cruise Iceland þann 27. maí nk. á Akureyri. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vera fulltrúi Fjarðabyggðarhafna á fundinum.
-
4. Ljósmál - heimildamynd um sögu vita á Íslandi
Mál 1603130 Allur ferill málsins
Erindi frá Dúa Landmark dags. 23. mars 2016 þar sem óskað er eftir styrk frá Hafnarsjóð Fjarðabyggðar vegna gerðar heimildamyndar um vita á Íslandi. Hafnarstjórn hafnar erindinu.
-
5. Sjávarútvegsskóli Austurlands 2016
Mál 1603073 Allur ferill málsins
Erindi frá Háskólanum á Akureyri dags. 31. mars 2016 vegna styrkumsóknar fyrir Sjávarútvegsskólann 2016, en óskað er eftir 500 þ.kr. framlagi líkt og á síðasta ári. Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðinn styrk.
-
6. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu Samskip Hoffell 1. apríl 2016
Mál 1604002 Allur ferill málsins
Erindi frá Samskip dags. 1. apríl 2016 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Artem Chaykov skipstjóra á Samskip Hoffelli.
Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Artem Chaykov skipstjóra á Samskip Hoffelli.
-
7. Umsókn um undanþágur frá lóðsskyldu fyrir Capt. Akobiy Volodymyr Mv Marmaui
Mál 1604073 Allur ferill málsins
Erindi frá Thor Shipping dags. 15.apríl 2016 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Akobiy Volodymyr skipstjóra á Mv. Marmaui að og frá Mjóeyrarhöfn.
Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Akobiy Volodymyr skipstjóra á Mv. Marmaui
-
8. Aðgengið að ós við Norfjarðará
Mál 1604033 Allur ferill málsins
Erindi frá Kristni V. Jóhannssyni dags. 6. apríl 2016 þar sem verið er að óska eftir að hlið og skilti sem sett hefur verið á akstursleiðina út á eyrina utan við flugvöllinn verði fjarlægt hið fyrsta.
Hafnarstjórn fer ekki með málefni flugvallarins og vísar því málinu til umfjöllunar og afgreiðslu hjá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.
-
9. Beini um styrk vegna efniskaupa í bryggju.
Mál 1604124 Allur ferill málsins
Erindi frá Björgunarsveitinni Gerpi dags. 22. apríl 2016 þar sem óskað er eftir styrk til efniskaupa í smíði bryggju við björgunarsveitarhús félagsins á Norðfirði.
Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið, en fer fram á sundurliðaða kostnaðaráætlun fyrir bryggjuna.
-
10. Mjóifjörður - Sigling skemmtiferðarskipa um fjörðinn
Mál 1604041 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir máli er varðar siglingu lítilla skemmtiferðaskipa, leiðangursskipa, inn í Mjóafjörð og umræðu sem er að fara í gang vegna siglinga slíkra skipa um fáfarna firði og eyðifirði.
-
11. Umsókn um styrk til Stöð í stöð
Mál 1603071 Allur ferill málsins
Erindi frá aðstandendum bæjarhátíðar á Stöðvarfirði dags. 10. mars 2016. Málið tekið fyrir á síðasta fundi hafnarstjórnar en ákvörðun frestað til næsta fundar. Hafnarstjórn samþykkir að veita styrk til bæjarhátíðarinnar upp á 200.000 kr. Framkvæmdastjóra falið að ræða breytt fyrirkomulag styrkveitinga hafnarsjóðs til bæjarhátíða við viðkomandi sviðsstjóra.
-
12. 638.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun 2015-2018
Mál 1604117 Allur ferill málsins
Framlögð til umsagnar þingsályktunartillaga um fjögurra ára samgönguáætlun 2015 til 2018. Lagt er til að á árunum 2015 -2018 skuli unnið að samgöngumálum í samræmi við eftirfarandi verkefnaáætlun sem er hluti af og innan ramma samgönguáætlunar fyrir árin 2011 - 2022 þar sem mörkuð er stefna og markmið sett fyrir allar greinar samgangna á gildistíma áætlunarinnar.
Hafnarstjórn fagnar því að í tillögunni er gert ráð fyrir auknu fjármagni til hafnamála á næstu árum en telur þó að meira þurfi að koma til miðað við framkvæmdaþörf á höfnum landsins. Hafnarstjórn telur einnig að nauðsynlegt sé að auka fjármagn til sjóvarna af fenginni reynslu í óveðri því sem gekk yfir Austurland í lok síðasta árs og þeirri staðreynd að brýnt er að verja meiru fé til þessara varna til að minnka líkur á frekara tjóni í náinni framtíð. Hafnarstjórn bendir á í því sambandi umsóknir sem Fjarðabyggðarhafnir sendu inn í mars 2015, þegar unnið var að gerð samgönguáætlunar 2015 til 2018, vegna sjóvarna á Eskifirði og Norðfirði og ljóst að brýn nauðsyn sé á að endurskoða framlög til þeirra. Framkvæmdastjóra falið að veita umsögn í samræmi við umræðu á fundinum.
-
13. Þjónusta við olíuleit á Drekasvæði - kynningarmál
Mál 1210103 Allur ferill málsins
Farið yfir mál sem framkvæmdastjóra var falið að vinna áfram skv. vinnuskjali á fundi hafnarstjórnar 9. febrúar.
Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram.
-
14. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2016 ásamt langtímaáætlun
Mál 1508040 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu fyrstu þriggja mánaða ársins 2016, trúnarðamál. Kynnt.