638.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun 2015-2018
Mál 1604117 Fyrst á dagskrá 25. apríl 2016, síðast 12. maí 2016. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Hafnarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Bæjarráð, fundur 470 liður 10
Framlögð til umsagnar þingsályktunartillaga um fjögurra ára samgönguáætlun 2015 til 2018. Lagt er til að á árunum 2015 -2018 skuli unnið að samgöngumálum í samræmi við eftirfarandi verkefnaáætlun sem er hluti af og innan ramma samgönguáætlunar fyrir árin 2011 - 2022 þar sem mörkuð er stefna og markmið sett fyrir allar greinar samgangna á gildistíma áætlunarinnar.
Lesa alla bókunina (103 orð til viðbótar)
Bæjarráð fagnar því að þingsályktunartillagan geri ráð fyrir fullnaðarfjármögnun á Norðfjarðargöngum og þau verði tekin í notkun á árinu 2017. Þá er jafnframt fagnaðarefni að tryggt sé fjármagn til rannsókna á jarðgöngum til Seyðisfjarðar. Þó vekur vonbrigði að ekki sé gert ráð fyrir fjármagni til endurbóta á Suðurfjarðavegi enda löngu tímabært að ráðist sé í þær. Þá vill bæjarráð vekja athygli á því að nauðsynlegt sé að veita aukið fjármagn til innanlandsflugs þannig að það geti sinnt hlutverki sínu sem hluti af almenningssamgöngum þeirra sem búa á landsbyggðinni.
Bæjarritara falið að veita umsögn í samræmi við umræðu fundarins.
Vísað til kynningar í hafnarstjórn.
-
Hafnarstjórn, fundur 162 liður 12
Framlögð til umsagnar þingsályktunartillaga um fjögurra ára samgönguáætlun 2015 til 2018. Lagt er til að á árunum 2015 -2018 skuli unnið að samgöngumálum í samræmi við eftirfarandi verkefnaáætlun sem er hluti af og innan ramma samgönguáætlunar fyrir árin 2011 - 2022 þar sem mörkuð er stefna og markmið sett fyrir allar greinar samgangna á gildistíma áætlunarinnar.
Lesa alla bókunina (132 orð til viðbótar)
Hafnarstjórn fagnar því að í tillögunni er gert ráð fyrir auknu fjármagni til hafnamála á næstu árum en telur þó að meira þurfi að koma til miðað við framkvæmdaþörf á höfnum landsins. Hafnarstjórn telur einnig að nauðsynlegt sé að auka fjármagn til sjóvarna af fenginni reynslu í óveðri því sem gekk yfir Austurland í lok síðasta árs og þeirri staðreynd að brýnt er að verja meiru fé til þessara varna til að minnka líkur á frekara tjóni í náinni framtíð. Hafnarstjórn bendir á í því sambandi umsóknir sem Fjarðabyggðarhafnir sendu inn í mars 2015, þegar unnið var að gerð samgönguáætlunar 2015 til 2018, vegna sjóvarna á Eskifirði og Norðfirði og ljóst að brýn nauðsyn sé á að endurskoða framlög til þeirra. Framkvæmdastjóra falið að veita umsögn í samræmi við umræðu á fundinum.
-
Bæjarstjórn, fundur 199 liður 4.10
Fundargerðin „Bæjarráð - 470“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 200 liður 8.12
Fundargerðin „Hafnarstjórn - 162“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.