Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 470

25. apríl 2016, kl. 09:00 til 00:00, Nesskóla í Neskaupstað. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, varamaður
  • Valdimar O Hermannsson, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 199 liður 4

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 469, nr. 470 og nr. 471 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Valdimar O. Hermannsson, Einar Már Sigurðarson og Gunnar Jónsson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 470 frá 25. apríl 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2015

    Mál 1604032 Allur ferill málsins

    Trúnaðarmál.

    Þennan dagskrárlið sátu fjármálastjóri og endurskoðandi sveitarfélagsins.

    Kynnt drög að endurskoðunarskýrslu. Bæjarráð vísar ársreikningi fyrir Fjarðabyggð og stofnanir til fyrri umræðu í bæjarstjórn 28. apríl nk. Ársreikningur verður undirritaður á fundi bæjarráðs fimmtudaginn 28. apríl fyrir bæjarstjórnarfund.

  2. 2. Ársreikningur Búseta 2015

    Mál 1604115 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Ársreikningur Húsnæðissamvinnufélagsins Búseta fyrir árið 2015 lagður fram til áritunar.

    Bæjarstjóri staðfestir ársreikning með undirritun sinni.

  3. 3. Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf.

    Mál 1604114 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. fyrir árið 2015 lagður fram til áritunar.

    Bæjarráð staðfestir ársreikning með undirritun sinni.

  4. 4. Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 2015

    Mál 1604112 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar fyrir árið 2015 lagður fram til áritunar.

    Bæjarráð staðfestir ársreikning með undirritun sinni.

  5. 5. Ársreikningur Rafveitu Fjarðabyggðar 2015

    Mál 1604113 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Ársreikningur Rafveitu Reyðarfjarðar fyrir árið 2015 lagður fram til áritunar.

    Bæjarráð staðfestir ársreikning með undirritun sinni.

  6. 6. Forsetakosningar 2016

    Mál 1604094 Allur ferill málsins

    Framlögð viljayfirlýsing Sambands íslenskra sveitarfélaga og Innanríkisráðuneytis um utankjörfundaratkvæðagreiðslur. Jafnframt tölvupóstur Sýslumannsins á Austurlandi um utankjörfundaratkvæðagreiðslur.

    Bæjarráð tekur vel í erindið og samþykkir að leggja til húsnæði bókasafna undir utankjörfundaratkvæðagreiðslur að því gefnu að húsnæði uppfylli viðmið fyrir utankjörfundaratkvæðagreiðslu.

    Bæjarritara falið að fylgja málinu eftir.

  7. 7. Ósk um kaup á steinum í eigu Fjarðabyggðar

    Mál 1604054 Allur ferill málsins

    Framlag bréf Péturs Þ Sörenssonar f.h. Steinasafn Sörens og Sigurborgar þar sem óskað er eftir að kaupa steina í eigu Fjarðabyggðar til sýninga í safninu.

    Bæjarráð óskar eftir umsögn Náttúrustofu Austurlands um erindið og vísar því jafnframt til umsagnar í menningar- og safnanefnd.

  8. 8. Heimildarmynd um snjóflóðið í Neskaupstað 1974

    Mál 1604118 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Þórarins Hávarðssonar um gerð heimildarmyndar um snjóflóðin í Neskaupstað 1974. Óskað er eftir framlagi til verkefnisins að fjárhæð 1. milljón kr.

    Bæjarráð tekur vel í erindið og samþykkir að vísa því til fjárhagsáætlunargerðar 2017. Styrkveitingar verði greiddar út í upphafi verks og þegar því er lokið, hálfri milljón í hvort skipti.

  9. 9. Launakjör hlutastarfandi sjúkraflutningamanna

    Mál 1503101 Allur ferill málsins

    Framlögð samantekt á málum og kostnaði sveitarfélagsins vegna dómsmála tengdum starfsmannamálum síðustu tíu ára.

  10. 10. 638.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun 2015-2018

    Mál 1604117 Allur ferill málsins

    Framlögð til umsagnar þingsályktunartillaga um fjögurra ára samgönguáætlun 2015 til 2018. Lagt er til að á árunum 2015 -2018 skuli unnið að samgöngumálum í samræmi við eftirfarandi verkefnaáætlun sem er hluti af og innan ramma samgönguáætlunar fyrir árin 2011 - 2022 þar sem mörkuð er stefna og markmið sett fyrir allar greinar samgangna á gildistíma áætlunarinnar.

    Bæjarráð fagnar því að þingsályktunartillagan geri ráð fyrir fullnaðarfjármögnun á Norðfjarðargöngum og þau verði tekin í notkun á árinu 2017. Þá er jafnframt fagnaðarefni að tryggt sé fjármagn til rannsókna á jarðgöngum til Seyðisfjarðar. Þó vekur vonbrigði að ekki sé gert ráð fyrir fjármagni til endurbóta á Suðurfjarðavegi enda löngu tímabært að ráðist sé í þær. Þá vill bæjarráð vekja athygli á því að nauðsynlegt sé að veita aukið fjármagn til innanlandsflugs þannig að það geti sinnt hlutverki sínu sem hluti af almenningssamgöngum þeirra sem búa á landsbyggðinni.

    Bæjarritara falið að veita umsögn í samræmi við umræðu fundarins.

    Vísað til kynningar í hafnarstjórn.

  11. 11. Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2014 - 2018

    Mál 1406124 Allur ferill málsins

    Jens Garðar Helgason óskar eftir leyfi frá störfum í bæjarráði og bæjarstjórn frá 1. maí til 31. júlí nk. vegna starfa sinna á vegum Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

    Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að Jón Björn Hákonarson verði formaður bæjarráðs og Valdimar O Hermannsson verði varaformaður bæjarráðs í fjarveru Jens Garðar Helgasonar. Jafnframt taki Dýrunn Pála Skaptadóttir sæti sem varamaður í bæjarráði og verði aðalfulltrúi í bæjarstjórn. Þá taki Elvar Jónsson sæti sem 1. varaforseti bæjarstjórnar og Kristín Gestsdóttir sem 2. varaforseti bæjarstjórnar þennan tíma.

  12. 12. Ósk um tilnefningar í stjórn Austurbrúar ses.

    Mál 1604084 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf starfsháttarnefndar Austurbrúar þar sem óskað er tilnefninga stofnaðila í stjórn stofnunarinnar fyrir 26. apríl en um er að ræða tilnefningar af vettvangi atvinnulífs, menningar og menntunar.

    Óskað er tilnefningar karls og konu af þessum vettvöngum.

    Vísað til fulltrúaráðsfundar.

  13. 13. Sjálfbærniverkefni Alcoa og Landsvirkjunar 2016

    Mál 1604064 Allur ferill málsins

    Framlagt fundarboð ársfundar Sjálfbærniverkefnis Alcoa Fjarðaáls og Landsvirkjunar á Austurlandi sem haldinn verður 3.maí nk. milli kl 14:00 og 18:00 í Valaskjálf á Egilsstöðum.

    Lagt fram til kynningar og vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  14. 14. Ársfundur Starfsendurhæfingar Austurlands - 29. apríl kl. 14

    Mál 1604081 Allur ferill málsins

    Framlagt ársfundarboð Starfsendurhæfingar Austurlands en boðað er til fundar 29. apríl nk. kl 14:00 í húsnæði Afls, að Búðareyri 1 á Reyðarfirði.

    Bæjarráð felur Eydísi Ásbjörnsdóttur að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum og formaður félagsmálanefndar sæki jafnframt fundinn.

  15. 15. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2016

    Mál 1602064 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands frá 1. apríl 2016.

  16. 16. Fundargerðir stjórnar SSA 2016

    Mál 1601213 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi frá 19. apríl 2016.

  17. 17. Menningar- og safnanefnd - 22

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 14. apríl lögð fram til kynningar.

  18. 18. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 142

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 18. apríl sl. lögð fram til kynningar.

  19. 19. Fræðslunefnd - 27

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar frá 20. apríl sl. lögð fram til kynningar.