Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 469

11. apríl 2016, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, varamaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 199 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 469, nr. 470 og nr. 471 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Valdimar O. Hermannsson, Einar Már Sigurðarson og Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 469 frá 11. apríl 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2015

    Mál 1604032 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins auk Magnúsar Jónssonar endurskoðanda Fjarðabyggðar sem gerði grein fyrir vinnu við ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2015.

  2. 2. Rekstur málaflokka 2016 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1602052 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sat fjármálastjóri. Framlagt sem trúnaðarmál, málaflokkayfirlit um rekstur málaflokka og framkvæmdir janúar - febrúar 2016, launakostnað og skatttekjur janúar - mars 2016.

  3. 3. Svæðisskipulag Austurlands

    Mál 1602151 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 1.fundar starfshóps á vegum Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, um svæðisskipulag fyrir Austurland. Starfshópurinn hefur óskað eftir yfirlýsingu, um að sveitarfélögin á Austurlandi, lýsi yfir vilja til þáttöku í verkefni um svæðisskipulag Austurlands. Bæjarráð er tilbúið að vinna áfram að verkefninu náist samkomulag á milli sveitarfélaganna, um þá þætti sem skipulagið á að ná til. Ræddir voru ýmsir mögulegir þættir sem verkefnið gæti náð til. Bæjarstjóra falið að koma áherslum bæjarins á framfæri við starfshópinn.

  4. 4. Endurskipulagning starfsemi heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga

    Mál 1604021 Allur ferill málsins

    Möguleg endurskipulagning á starfsemi heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Af hálfu sambandsins er einkum óskað eftir því að fá fram sem skýrasta afstöðu sveitarstjórnarmanna til þess hvort þeir telji æskilegt að hafin verði formleg vinna við að endurskipuleggja starfsemi heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga á þann hátt sem lýst er í framlögðu bréfi sambandsins frá 31.mars.

    Vísað til umræðu í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  5. 5. Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir

    Mál 1602108 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að bréfi til Ofanflóðasjóðs vegna framkvæmda við Ljósá Eskifirði. Bæjarráð samþykkir að óska eftir við sjóðinn að framkvæmdin verði boðin út svo hún geti hafist sem fyrst.

  6. 6. Skýrsla starfshóps sambandsins um úrgangsmál - til kynningar og umræðu

    Mál 1604022 Allur ferill málsins

    Lokaskýrsla starfshóps um úrgangsmál lögð fram til kynningar og vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.

  7. 7. Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs 4.maí 2016

    Mál 1604028 Allur ferill málsins

    Ársfundur Stapa verður haldinn miðvikudaginn 4.maí nk. kl. 14:00 í Hofi Akureyri. Lagt fram til kynningar og vísað til afgreiðslu hjá bæjarritara.

  8. 8. Málstofa í Háskólanum á Akureyri um samvinnu sveitarfélaga föstudaginn 29. apríl kl. 13-15

    Mál 1604023 Allur ferill málsins

    Málstofa um samvinnu sveitarfélaga "Samstarf, sameining eða þriðja stjórnsýslustigið ?" verður haldin í Háskólanum á Akureyri föstudaginn 29.apríl nk. frá kl. 13:00 - 15:00. Lagt fram til kynningar og forstöðumanni stjórnsýslu falið a kanna hvort ekki er hægt að fylgjast með málþinginu á netinu.

  9. 9. Aðalfundur Sprisjóðs Austurlands hf - fundarboð

    Mál 1604020 Allur ferill málsins

    Boðað er til aðalfundar Sparisjóðs Austurlands 12.apríl 2016 kl. 16:00 í Safnahúsinu. Bæjarstjóra falið að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.

  10. 10. Fundargerðir félagsmálanefndar 2016

    Mál 1601210 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 82 frá 5. apríl 2016, lögð fram til kynningar.

  11. 11. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2016

    Mál 1603122 Allur ferill málsins

    Fundargerð Barnaverndarnefndar nr. 62 frá 31.mars 2016, lögð fram til kynningar.

  12. 12. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 141

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 141 frá 4. apríl 2016, lögð fram til kynningar.