Fræðslunefnd, fundur 27
20. apríl 2016, kl. 16:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Aðalheiður Vilbergsdóttir, formaður
- Magni Þór Harðarson, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Kjartan Glúmur Kjartansson, aðalmaður
- Þóroddur Helgason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 470 liður 19
Fundargerð fræðslunefndar frá 20. apríl sl. lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 199 liður 8
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 27 frá 20.apríl 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
Bæjarráð, fundur 187 liður 9
Fundargerð lögð fram.
Dagskrá
-
1. Kennslutímamagn til grunnskóla 2016-2017
Mál 1604072 Allur ferill málsins
Framlagt er minnisblað fræðslustjóra þar sem gerð er grein fyrir mati skólastjóra grunnskólanna í Fjarðabyggð á áhrifum úthlutunarreglna sem samþykktar voru í desember 2014. Í minnisblaðinu kemur fram að skólastjórarnir séu að mestu sáttir við reglurnar og að þeir leggi ekki til breytingar á þeim. Fyrir fundinum liggur tillaga fræðslustjóra um útdeilingu kennslutímamagns til grunnskólanna í Fjarðabyggð skólaárið 2016-2017. Úthlutunin byggir á fyrrgreindum reglum. Fræðslustjóri fór yfir kennslutímamagn hvers skóla fyrir skólaárið 2016-2017 og tímamagn til annarra starfa innan skóla. Í úthlutuninni er gert ráð fyrir um 645 grunnskólanemendum sem er u.þ.b. 30 nemenda fjölgun frá núverandi skólaári. Gert er ráð fyrir u.þ.b. 45 kennslustunda aukningu á kennslutímamagni á næsta skólaári. Gert var ráð fyrir þessari fjölgun í fjárhagsáætlun ársins 2016. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.
-
2. Skóladagatöl 2016-2017
Mál 1604071 Allur ferill málsins
Fyrir liggja skóladagatöl leik-, grunn- og tónlistarskóla í Fjarðabyggð þar sem sést hvernig starfs-, skipulags- og vetrarfrídagar raðast niður á almanaksárið. Reynt er að samræma frídaga nemenda í hverjum byggðarkjarna eftir því sem kostur er. Fræðslunefnd samþykkir skóladagatölin.
-
3. Viðmiðunarreglur um úthlutun stöðugildi til leikskóla í Fjarðabyggð
Mál 1603038 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri fór yfir þá vinnu sem framkvæmd hefur verið við gerð viðmiðunarreglna. Farið var yfir næstu skref í vinnunni og stefnt að því að hægt verði að leggja fyrir drög að reglum á fundi nefndarinnar í júní.
-
4. Þjóðarsáttmáli um læsi barna í grunnskólum og samningur um bættan námsárangur í læsi og stærðfræði
Mál 1507135 Allur ferill málsins
Farið var efnislega yfir þjóðarsáttmála um læsi barna í grunnskólum og samninga um bættan námsárangur í læsi og stærðfræði í leik- og grunnskólunum í Fjarðabyggð. Fram kom í máli fræðslustjóra að unnið væri markvisst að framgangi samninganna og skólarnir nytu þar góðs af kennsluráðgjöfum Skólaskrifstofu Austurlands, sem annast mælingar og ráðgjöf. Fræðslunefnd lýsir ánægju með framgang verkefna og óskar nemendum og starfsliði skóla velfarnaðar í áframhaldandi vinnu.