Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

Kennslutímamagn til grunnskóla 2016-2017

Mál 1604072 Fyrst á dagskrá 20. apríl 2016, síðast 28. apríl 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2016

    Fræðslunefnd, fundur 27 liður 1

    Framlagt er minnisblað fræðslustjóra þar sem gerð er grein fyrir mati skólastjóra grunnskólanna í Fjarðabyggð á áhrifum úthlutunarreglna sem samþykktar voru í desember 2014. Í minnisblaðinu kemur fram að skólastjórarnir séu að mestu sáttir við reglurnar og að þeir leggi ekki til breytingar á þeim. Fyrir fundinum liggur tillaga fræðslustjóra um útdeilingu kennslutímamagns til grunnskólanna í Fjarðabyggð skólaárið 2016-2017. Úthlutunin byggir á fyrrgreindum reglum. Fræðslustjóri fór yfir kennslutímamagn hvers skóla fyrir skólaárið 2016-2017 og tímamagn til annarra starfa innan skóla. Í úthlutuninni er gert ráð fyrir um 645 grunnskólanemendum sem er u.þ.b. 30 nemenda fjölgun frá núverandi skólaári. Gert er ráð fyrir u.þ.b. 45 kennslustunda aukningu á kennslutímamagni á næsta skólaári. Gert var ráð fyrir þessari fjölgun í fjárhagsáætlun ársins 2016. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.

  2. Bæjarstjórn, fundur 199 liður 8.1

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 27“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is