Hafnarstjórn, fundur 161
29. mars 2016, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
- Gísli Benediktsson, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 468 liður 13
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 161 frá 29.mars 2016, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 198 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 161 frá 29.mars 2016, lögð fram til samþykktar.
Dagskrá
-
1. Fundargerðir CI á árinu 2016
Mál 1601011 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland dags. 22. janúar 2016 lögð fram til kynningar
-
2. 735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna
Mál 1603089 Allur ferill málsins
Fyrir hafnarstjórn lá fundargerð frá fundi um hafnarmál á Eskifirði þann 26. febrúar 2016.
Hafnarstjórn samþykkir að fela framkvæmdastjóra að skoða mögulega útfærslu á hafnaraðstöðu á Eskifirði.
-
3. Grjótvarnir í Fjarðabyggð
Mál 1503195 Allur ferill málsins
Verkefnaáætlun vegna grjót- og flóðavarna á Eskifirði. Framkvæmdastjóri lagði fram minnisblað vegna málsins þar sem gert er ráð fyrir að þeir kaflar sem teknir verða fyrir í þessum áfanga vinnist á árinu 2016 og 2017.
Hafnarstjórn samþykkir að hefja vinnu skv. því sem lagt er til í minnisblaðinu.
-
4. Norðfjörður - Netagerðarbryggja viðgerð skolun undan landvegg
Mál 1402054 Allur ferill málsins
Umræða um viðgerð á netagerðarbryggjunni á Norðfirði. Siglingasvið Vegagerðarinnar hefur unnið tillögu að viðgerð á bryggjunni.
Hafnarstjórn samþykkir að farið verði í verðkönnun og viðgerð á bryggjunni.
-
5. Umsókn um styrk til menningarstarfssemi
Mál 1603071 Allur ferill málsins
Erindi dags. 10. mars 2016 frá aðstandendum bæjarhátíðar á Stöðvarfirði. Þar sem óskað er eftir styrk til að halda bæjarhátíðina í sumar, en Stöð í Stöð var síðast haldin 2006.
Hafnarstjórn frestar málinu til næsta fundar.
-
6. Gerð viðbragðsáætlunar vegna bráðamengunar í höfnum
Mál 1509001 Allur ferill málsins
Erindi frá Umhverfisstofnun dags. 31. ágúst 2015 þar sem bent er á að höfnum beri að skila inn viðbragðsáætlun vegna bráðamengunar. Fyrir fundinum liggja drög að viðbragðsáætun fyrir Fjarðabyggðarhafnir og samþykkir hafnarstjórn drögin og vísar til staðfestingar bæjarráðs.