Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 160

4. mars 2016, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 467 liður 16

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 160 frá 8. mars 2016, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 197 liður 4

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 8. mars s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2016

    Mál 1601010 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 382 dags. 24. febrúar 2016 lögð fram til kynningar.

  2. 2. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir capt. Sergey Kurevlev

    Mál 1602075 Allur ferill málsins

    Erindi frá Thor Ship dags. 12. febrúar 2016 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Sergey Kurevlev skipstjóra á Mv Marmakira að og frá Mjóeyrarhöfn.

    Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Sergey Kurevlev skipstjóra á Mv. Marmakira.

  3. 3. Eskifjörður - Rampur fyrir smábáta

    Mál 1603026 Allur ferill málsins

    Erindi frá Gísla Benediktssyni dags. 6. febrúar þar sem spurst er fyrir um endurbætur á upptökurampi fyrir smábáta á Eskifirði. Samþykkt að hreinsa og laga rampinn sem fyrst.

    Marinó Stefánsson sviðsstjóri framkvæmda- umhverfis- og veitusviðs sat þennan dagskrárlið.

  4. 4. Iceland fishing EXPO 2016

    Mál 1602066 Allur ferill málsins

    Erindi frá Ritsýn sf dags. 11. febrúar sl. þar sem kynnt er fyrirhuguð sjávarútvegssýning sem halda á 28. til 30. september 2016 í Laugardalshöll. Hafnarstjórn samþykkir að taka þátt í sýningunni.

  5. 5. Óveðurstjón í desember 2015

    Mál 1512096 Allur ferill málsins

    Farið yfir samantektir og skýrslur sem liggja fyrir, en ekki eru allar lokaskýrslur komnar í hús.

    Marinó Stefánsson sviðsstjóri framkvæmda- umhverfis- og veitusviðs sat þennan dagskrárlið.

  6. 6. Tjón á Norðfirði - Scombrus siglir á tunnu á skjólgarði

    Mál 1511125 Allur ferill málsins

    Unnið er að undirbúningi fyrir viðgerð á tunnunni á Norðfirði sem skemmdist í nóvember sl.

    Óskað heimildar til að hefja verkið og láta verktaka byrja viðgerð við fyrsta tækifæri.

    Hafnarstjórn samþykkir að veita heimild til að hefja verkið og felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram.

  7. 7. Veðurstöðvar á hafnir

    Mál 1602049 Allur ferill málsins

    Athugun á kostnaði við uppsetningu á veðurathugunarstöð á Mjóeyrarhöfn lögð fram. Hafnarstjórn samþykkir að setja upp veðurathugunarstöð við Mjóeyrarhöfn. Framkvæmdastjóra falið að ganga til samninga.

  8. 8. Ósk um styrk vegna námskeiðs í staðarleiðsögn.

    Mál 1602065 Allur ferill málsins

    Erindi frá Austurbrú dags. 11. febrúar 2016 þar sem óskað er eftir styrk upp á 200.000 kr. til kynningar á staðarleiðsögunámskeiði í Fjarðabyggð.

    Hafnarstjórn samþykkir að veita styrk að upphæð 150.000 kr. til kynningar á námskeiðinu.

  9. 9. Fyrirhuguð bygging frystigeymslu á Fáskrúðsfirði

    Mál 1505078 Allur ferill málsins

    Fyrir fundinum liggur minnisblað dags. 3. mars 2016 frá siglingasviði Vegagerðarinnar varðandi Strandarbryggju á Fáskrúðsfirði ásamt teikningu. Unnið er að gerð frekari gagna vegna verksins. Óskað er heimildar til að panta það efni sem hafnarsjóður þarf að útvega vegna verksins. Hafnarstjórn samþykkir að heimila efniskaupin. Hafnarstjórn vísar jafnframt framhaldi verksins til endurskoðunar fjárhagsáætlunar í apríl nk.