Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 197

17. mars 2016, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður
  • Guðjón Björn Guðbjartsson, varamaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, varamaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Kristín Gestsdóttir, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, varamaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 466

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 466 og nr. 467 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Ragnar Sigurðsson.

    Fram lögð bókun Fjarðalistans.

    Bæjarfulltrúar Fjarðalistans fagna þeim árangri að launamunur kynjanna sé nánast enginn hjá sveitarfélaginu. Þessi árangur kallar á að horft verði til framtíðar og stefna að auknu jafnrétti kynjanna í sveitarfélaginu á fleiri sviðum starfsmannamála. Við blasir að jafna þarf hlut kynjanna í sviðsstjórastöðum en þar hallar nú verulega á konur því aðeins ein kona starfar sem sviðsstjóri en fimm karlar. Slíkt hlutfall er óásættanlegt og eðlilegt næsta verkefni verði að breyta því.

    Fundargerð bæjarráðs frá 7. mars s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Fjarðabyggð til framtíðar - Trúnaðarmál1411075
    2. 1.2 Fjármál 20161602076
    3. 1.3 Fjárhagsáætlun 2016 - Héraðsskjalasafn Austfirðinga1602128
    4. 1.4 Umsókn um styrk til greiðslu á fasteignaskatti 20161602107
    5. 1.5 Samningur um sjúkraflutninga 20161601246
    6. 1.6 Safnaleiðsagnarkerfi1511076
    7. 1.7 Áhersluverkefni í byggðamálum 20161602151
    8. 1.8 Sóknaráætlun Austurlands 2015 - 20191506017
    9. 1.9 Landsþing sambandsins 8. apríl1603013
    10. 1.10 50.ára afmæli Sambands sveitarfélaga á Austurlandi1603027
    11. 1.11 Jafnlaunaúttekt1508035
    12. 1.12 Erindi frá Yrkjusjóði - ósk um stuðning - 20161602152
    13. 1.13 Ósk um stuðning við Nótuna - uppskeruhátíð tónlistarskóla í formi styrktarlínu.1603015
    14. 1.14 Fundargerðir - samtaka svf á köldum svæðum1602154
    15. 1.15 Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 20161603017
    16. 1.16 Menningar- og safnanefnd - 211602014F
  2. 2. Bæjarráð - 467

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 466 og nr. 467 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 14. mars s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES1411143
    2. 2.2 Fjölskyldustefna Fjarðabyggðar1411001
    3. 2.3 Gjaldskrá Fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna við fötluð börn1602068
    4. 2.4 Ferðaþjónusta fatlaðra - reglur1602069
    5. 2.5 Safnaleiðsagnarkerfi1511076
    6. 2.6 Birtingaráætlun Austurbrúar 2016 og markaðsáætlun1601066
    7. 2.7 Endurgreiðsluhlutfall Fjarðabyggðar vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar1603048
    8. 2.8 Kaupréttarákvæði 2016 um Melgerði 13 Reyðarfirði1603023
    9. 2.9 Umsókn um framlengingu á stöðuleyfi fyrir gámaeiningar á Hrauni 3.1603068
    10. 2.10 Ofanflóðavarnir í Neskaupstað - Urðarteigur 371312074
    11. 2.11 735 Leirubakki 4 - umsókn um lóð1603035
    12. 2.12 735 Leirubakki 7 - umsókn um lóð1603036
    13. 2.13 Nefndaskipan Framsóknarflokks 2014 - 20181406123
    14. 2.14 Fundargerðir félagsmálanefndar 20161601210
    15. 2.15 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1391603004F
    16. 2.16 Hafnarstjórn - 1601603003F
    17. 2.17 Fræðslunefnd - 261603006F
  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 139

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 7. mars s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 730 Hraun 1 - skilti - Byggingarleyfi1603018
    2. 3.2 735 - Deiliskipulag Hlíðarenda1502042
    3. 3.3 740 Hafnargata 17 - byggingarleyfi1602144
    4. 3.4 740 Mýrargata 20 - upphækkun á og þaki á lyftustokk - Byggingarleyfi1603022
    5. 3.5 740 Naustahvammur 45 - Byggingarleyfi - endurnýjun á klæðningu1603012
    6. 3.6 Lögreglusamþykkt fyrir Fjarðabyggð - nr. 325/19991602082
    7. 3.7 Skipulagsmál í Fjarðabyggð1603001
    8. 3.8 735 Leirubakki 4 - umsókn um lóð1603035
    9. 3.9 735 Leirubakki 7 - umsókn um lóð1603036
    10. 3.10 Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs -óskað eftir upplýsingum um vinnu1602140
    11. 3.11 Almenningssamgöngur 20161602039
    12. 3.12 Ályktanir af aðalfundi NAUST 20151512066
    13. 3.13 Áskorun um að skipta út gúmmíi á gervigrasvöllum sveitarfélagsins1509177
    14. 3.14 Fjarðabyggð til framtíðar1411075
    15. 3.15 150.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um uppbyggingu áningarstaða Vegagerðarinnar við þjóðvegi.1603030
    16. 3.16 Fjármál 20161602076
    17. 3.17 Fundargerðir - samtaka svf á köldum svæðum1602154
    18. 3.18 Ofanflóðavarnir í Neskaupstað - Urðarteigur 371312074
    19. 3.19 Óveðurstjón í desember 20151512096
    20. 3.20 Ofanflóðavarnir á Norðfirði ? Urðarbotn og Sniðgil og Urðabotna og Bakkagil. Mat á umhverfisáhrifum. Drög að frummatsskýrslu.1509179
  4. 4. Hafnarstjórn - 160

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 8. mars s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20161601010
    2. 4.2 Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir capt. Sergey Kurevlev1602075
    3. 4.3 Eskifjörður - Rampur fyrir smábáta1603026
    4. 4.4 Iceland fishing EXPO 20161602066
    5. 4.5 Óveðurstjón í desember 20151512096
    6. 4.6 Tjón á Norðfirði - Scombrus siglir á tunnu á skjólgarði1511125
    7. 4.7 Veðurstöðvar á hafnir1602049
    8. 4.8 Ósk um styrk vegna námskeiðs í staðarleiðsögn.1602065
    9. 4.9 Fyrirhuguð bygging frystigeymslu á Fáskrúðsfirði1505078
  5. 5. Fræðslunefnd - 26

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 10. mars s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Forvarnir - Málþing um geðheilbrigði1603034
    2. 5.2 Styrktarsjóður EBÍ 20161602136
    3. 5.3 Viðmiðunarreglur um úthlutun kennslutímamagns1409039
    4. 5.4 Viðmiðunarreglur um úthlutun stöðugildi til leikskóla í Fjarðabyggð1603038
  6. 6. Menningar- og safnanefnd - 21

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 1. mars staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 6.1 Aðalfundur Sjóminjasafns Austurlands
    2. 6.2 Uppbygging sýningarsvæðis í útbæ Eskifjarðar
    3. 6.3 Leiga/ rekstur á Félagslundi á Reyðarfirði
    4. 6.4 Safnaleiðsagnarkerfi
    5. 6.5 Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2016
    6. 6.6 Fjárhagsáætlun 2016 - Héraðsskjalasafn Austfirðinga
    7. 6.7 Menningarstyrkir menningar- og safnanefndar 2016
  7. 7. Fundargerðir félagsmálanefndar 2016

    Mál 1601210 Allur ferill málsins

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 7. mars s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

  8. 8. 735 - Deiliskipulag Hlíðarenda

    Mál 1502042 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagstillögunni úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Hlíðarenda. Tillagan er sett fram á uppdrætti og í greinargerð dags. 2. mars 2016 ásamt umhverfisskýrslu og felur meðal annars í sér að núverandi lóðir og lóðarstærðir á svæðinu verði afmarkaðar, skilgreinir öruggar umferðarleiðir fyrir, akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur, skilgreinir safnasvæði sjóminja og ofanflóðavarnir í Ljósá og Hlíðarendaá. Tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.

  9. 9. Ferðaþjónusta fatlaðra - reglur

    Mál 1602069 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi úr hlaði breytingum á reglum um ferðaþjónustu.

    Enginn tók til máls:

    Félagsmálanefnd samþykkti á fundi sínum þann 7. mars sl. tillögur til breytinga á reglum um ferðaþjónustu fatlaðs fólks. Bæjarráð vísaði þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Bæjarstjórn samþykkir breytingar á reglum um ferðaþjónustu fatlaðs fólk með 9 atkvæðum.

  10. 10. Fjölskyldustefna Fjarðabyggðar

    Mál 1411001 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi fjölskyldustefnunni úr hlaði.

    Til máls tók Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fræðslunefnd, félagsmálanefnd ásamt íþrótta- og tómstundanefnd hafa fjallað um fjölskyldustefnuna en fyrir liggur forgangsröðun frá fjölskyldusviði og kostnaðargreining. Lögð er til stefnunnar aukin fjárheimild á árinu 2016 að fjárhæð 2,7 milljónir kr. sem tengist m.a. forvarnarmálum. Bæjarráð hefur samþykkt stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

    Bæjarstjórn samþykkir fjölskyldustefnu Fjarðabyggðar með 9 atkvæðum.