NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 139
7. mars 2016, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Ragnar Sigurðsson, varaformaður
- Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Valur Sveinsson, embættismaður
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 467 liður 15
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 139 frá 7. mars 2016, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 197 liður 3
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 7. mars s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. 730 Hraun 1 - skilti - Byggingarleyfi
Mál 1603018 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Jóns Ólafs Ólafssonar hjá TBL architects. fh. Alcoa Fjarðaáls, dagsett 2. mars 2016, þar sem sótt er um leyfi til að setja upp skilti með merki Alcoa við aðalinngang stjórnunarbyggingar fyrirtækisins að Hrauni 1 á Reyðarfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
2. 735 - Deiliskipulag Hlíðarenda
Mál 1502042 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, tillögu að deiliskipulagi Hlíðarenda á Eskifirði ásamt umhverfisskýrslu til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti og í greinargerð dags. 2. mars 2016 og felur meðal annars í sér að núverandi lóðir og lóðarstærðir á svæðinu verði afmarkaðar, skilgreinir öruggar umferðarleiðir fyrir, akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur, skilgreinir safnasvæði sjóminja og ofanflóðavarnir í Ljósá og Hlíðarendaá. Tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
-
3. 740 Hafnargata 17 - byggingarleyfi
Mál 1602144 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Vigfúsar Vigfússonar, dagsett 17. febrúar 2016, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 63 m2 glerskála við hús hans að Hafnarbraut 17 á Norðfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að að afla frekari gagna varðandi áform húseiganda og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.
-
4. 740 Mýrargata 20 - upphækkun á og þaki á lyftustokk - Byggingarleyfi
Mál 1603022 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Jóns Hrafns Hlöðverssonar. fh. Ríkiseigna, dagsett 3. mars 2016, þar sem sótt er um leyfi til að hækka þak ofan við lyftuhús nýrri hluta Fjórðungssjúkrahússin í Neskaupstað. Teikningar eru frá Mansard teiknistofu ehf, hönnuður er Jón Hrafn Hlöðversson.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingaráformin og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
5. 740 Naustahvammur 45 - Byggingarleyfi - endurnýjun á klæðningu
Mál 1603012 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Gunnars Larssonar. fh. Síldarvinnslunnar hf, dagsett 1. mars 2016, þar sem sótt er um leyfi til að endurnýja klæðningu utanhúss ásamt því að setja nýja aksturshurð á vesturstafn húsnæðis fyrirtækisins að Hafnarnausti 45 á Norðfirði. Teikningar eru frá Mannvit hf, hönnuður er Gunnar Larsson.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingaráformin og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
6. Lögreglusamþykkt fyrir Fjarðabyggð - nr. 325/1999
Mál 1602082 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa dagsett 3. mars 2016. Samkvæmt reglugerð um lögreglusamþykktir nr. 1127/2007 er lögreglusamþykkt Fjarðabyggðar fallin úr gildi. Reglugerðin nær meðal annars til ökutækja, umferðar ofl.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að yfirfara þau svæði þar sem gert er ráð fyrir geymslu stórra bíla og kynna á næsta fundi nefndarinnar.
-
7. Skipulagsmál í Fjarðabyggð
Mál 1603001 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa dagsett 1. mars 2016 um stöðu skipulagsmála í Fjarðabyggð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd mun ræða stöðu skipulagsmála á næstu fundum sínum. Jafnframt mun nefndin í samráði við bæjarráð boða til íbúafundar á Reyðarfirði 30. mars næstkomandi þar sem farið verður yfir skipulagsáætlanir aksturs- og skotsvæðis vestan Bjarga.
-
8. 735 Leirubakki 4 - umsókn um lóð
Mál 1603035 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Þorsteins Kristjánssonar fh. Eskju hf, dagsett 4. mars 2016, þar sem sótt er um lóðina Leirubakka 4 á Eskifirði.Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta Eskju lóðinni að Leirubakka 4 og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
9. 735 Leirubakki 7 - umsókn um lóð
Mál 1603036 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Þorsteins Kristjánssonar fh. Eskju hf, dagsett 4. mars 2016, þar sem sótt er um lóðina Leirubakka 7 á Eskifirði.Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta Eskju lóðinni að Leirubakka 7 og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
10. Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs -óskað eftir upplýsingum um vinnu
Mál 1602140 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað um svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2005 - 2020.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra framkvæmda- umhverfis- og veitusviðs að afla frekari gagna fyrir næsta fund og boða verkefnastjóra umhverfismála á næsta fund
-
11. Almenningssamgöngur 2016
Mál 1602039 Allur ferill málsins
yfirlit yfir rekstur almenningssamgangna á árinu 2015 lagt fram til kynningar.
-
12. Ályktanir af aðalfundi NAUST 2015
Mál 1512066 Allur ferill málsins
Ályktanir af aðalfundi NAUST 2015 sem eiga við Fjarðabyggð og bókun frá fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar NAUST.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir með NAUST að sveitarfélög séu í góðu samstarfi við náttúruverndarsamtök á svæðinu.
-
13. Áskorun um að skipta út gúmmíi á gervigrasvöllum sveitarfélagsins
Mál 1509177 Allur ferill málsins
Gervigrasvelli í Fjarðabyggð. mat á kostnaði vegna endurnýjunar á gervigrasi og eða endurnýjunar á gúmmíkurli á sparkvöllum í Fjarðabyggð lagt fram til kynningar.
Einga- skipulags- og umhverfisnefnd í samvinnu við Íþrótta- og tómstundanefnd vinnur áfram í áætlunum að útskiptingu á gúmmíkurli.
-
14. Fjarðabyggð til framtíðar
Mál 1411075 Allur ferill málsins
listi yfir fasteignir Fjarðabyggðar lagður fram til kynningar.
-
15. 150.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um uppbyggingu áningarstaða Vegagerðarinnar við þjóðvegi.
Mál 1603030 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar
-
16. Fjármál 2016
Mál 1602076 Allur ferill málsins
Eigna- skipulags- og umhverfismálanefnd felur sviðstjóra að skoða málið frekar
-
17. Fundargerðir - samtaka svf á köldum svæðum
Mál 1602154 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar, fundargerðir - samtaka svf á köldum svæðum
-
18. Ofanflóðavarnir í Neskaupstað - Urðarteigur 37
Mál 1312074 Allur ferill málsins
Framlögð matsgerð og drög að kaupsamningi að höfðu samráði og samþykki Ofanflóðasjóðs vegna uppkaupa á fasteigninni að Urðarteigi 37 Neskaupstað. Uppkaupin eru vegna ofanflóðavarna en fasteignin er á skilgreindu hættusvæði. Ofanflóðasjóður greiðir 90% kaupverðs.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd vísar málinu til endanlegrar ákvörðunar í bæjarráði.
-
19. Óveðurstjón í desember 2015
Mál 1512096 Allur ferill málsins
Skýrsla Viðlagatryggingar hefur verið skilað til Forsætisráðuneytis. Beðið er niðustöðu frá nefndinni með frekari úrvinnslu mála.
-
20. Ofanflóðavarnir á Norðfirði ? Urðarbotn og Sniðgil og Urðabotna og Bakkagil. Mat á umhverfisáhrifum. Drög að frummatsskýrslu.
Mál 1509179 Allur ferill málsins
Ofanflóðavarnir á Norðfirði Urðarbotn og Sniðgil sem og Urðabotna og Bakkagil. Mat á umhverfisáhrifum. Drög að frummatsskýrslu. til kynningar
Kynningarfundur verður fyrir eigna- skipulags- og umhverfisnefnd og bæjarstjórn 17 mars næstkomandi og kynningarfundur fyrir íbúa sama dag.