NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 140
21. mars 2016, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Ragnar Sigurðsson, varaformaður
- Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Valur Sveinsson, embættismaður
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 468 liður 12
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 140 frá 21.mars 2016, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 198 liður 4
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 140 frá 21.mars 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. 740 Hafnargata 17 - byggingarleyfi
Mál 1602144 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Vigfúsar Vigfússonar, dagsett 17. febrúar 2016, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 63 m2 glerskála við hús hans að Hafnarbraut 17 á Norðfirði. Afgreiðslu frestað á 139. fundi nefndarinnar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að afla frekari gagna þar sem deiliskipulag gerir ráð fyrir að um víkjandi byggingu sé að ræða.
-
2. 740 Strandgata 72 - Byggingarleyfi - rífa hús
Mál 1603077 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Marinós Stefánssonar fh. Fjarðabyggðar, dagsett 14. mars 2016, þar sem sótt er um leyfi til að rífa húsið sem stendur á lóðinni að Strandgötu 72 á Norðfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
4. 735 Fossgata 3 - Byggingarleyfi - rífa bílskúr
Mál 1603107 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Marinós Stefánssonar fh. Fjarðabyggðar, dagsett 21. mars 2016, þar sem sótt er um leyfi til að rífa bílskúr sem stendur á lóðinni að Fossgötu 3 á Eskifirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
5. Umsókn um lóð undir frístundarhús(sumarhús)
Mál 1603082 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Gunnars Th. Gunnarssonar og Ástu Ásgeirsdóttur, dagsett 15. mars 2016, þar sem sótt er um lóð undir frístundahús austan og neðan við Haga í Reyðarfirði, milli Hagalækjar og Ljósár.
Umrætt svæði er samkvæmt Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 að hluta til innan þynningarsvæðis álvers, landbúnaðarsvæðis og þéttbýlisuppdráttar fyrir Reyðarfjörð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki fallist á úthlutun lóðar undir frístundahús á svæðinu vegna fjarlægðar frá sjó og vegi og áður nefndra atriða.
-
6. Umsögn vegna kaupa á jörðinni Hvamm; 750
Mál 1603057 Allur ferill málsins
Lagt fram ódagsett bréf Erlings Bjarts Oddssonar og Sigurðar Oddssonar, skráðra eiganda mannvirkja og ræktunar á ríkisjörðinni Hvammi í Fáskrúðsfirði, þar sem óskað eftir meðmælum Fjarðabyggðar á kaupum þeirra á jörðinni.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í erindið og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarráðs.
-
7. Umsókn um framlengingu á stöðuleyfi fyrir gámaeiningar á Hrauni 3.
Mál 1603068 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf frá Launafli, dagsett 11. mars 2016, Þar sem sótt er um framlengingu á stöðuleyfi fyrir gámaeiningar á lóð fyrirtækisins að Hrauni 3.
Nefndin samþykkir framlengingu á stöðuleyfinu til 12 mánaða.
-
8. Lögreglusamþykkt fyrir Fjarðabyggð - nr. 325/1999
Mál 1602082 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa dagsett 3. mars 2016. Samkvæmt reglugerð um lögreglusamþykktir nr. 1127/2007 er lögreglusamþykkt Fjarðabyggðar fallin úr gildi. Reglugerðin nær meðal annars til ökutækja, umferðar ofl.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að svæði fyrir vinnuvélar og stóra bíla verði á lóðinni númer 58 við Naustahvamm. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að skoða önnur svæði á Norðfirði. Á Eskifirði verði stæði fyrir stóra bíla á lóðinni númer 34 við Strandgötu. Á Reyðarfirði verði stæði fyrir stóra bíla á óbreyttum stað. Á Fáskrúðsfirði verið stæði fyrir stóra bíla við Grímseyri. Á Stöðvarfirði verði svæði fyrir stóra bíla á óbreyttum stað. Tekið fyrir á næsta fundi nefndarinnar.
-
9. Fyrirliggjandi verkefni í veitum 2016
Mál 1602093 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað til kynningar, dagsett 3. mars 2016, varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir hjá hitaveitur Eskifjarðar.
-
10. Hrossabeit í landi Kollaleiru
Mál 1504164 Allur ferill málsins
Beiðni um aðgerðir vegna vörslu hesta á svæði norðan þjóðvegar á skilgreindu íþrótta- og útivistarsvæði innan Aðalskipulagssvæðis á Reyðarfirði. Golfvallarsvæði og nágrenni.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra FUV að vinna að lausn á málinu.
-
11. Íþróttavöllurinn í Neskaupstað og aðstaða
Mál 1503055 Allur ferill málsins
Tillögur vallanefndar um framtíðarskipulag á Norðfjarðarvelli og umhverfi hans.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd vísar tillögum vallarnefndar til skipulags- og byggingafulltrúa.
-
12. Stofnun starfshóps um göngu- og hjólreiðastíga
Mál 1510014 Allur ferill málsins
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra að vinna drög að framtíðar uppbyggingarferli göngu- og hjólastíga.
-
13. Varðar umhverfi í Dalnum - íbúðahverfi á Eskifirði
Mál 1603056 Allur ferill málsins
Varðar umhverfið í dalnum, íbúðarhverfi á Eskifirði.
Eigna- skipulags- og umhverfismálanefnd þakkar bréfritara ábendinguna og felur sviðstjóra FUV að vinna að úrlausn og skoða aðstæður.
-
14. Verkefni framkvæmda- umhverfis- og veitusviðs 2016
Mál 1601209 Allur ferill málsins
verkefni framkvæmda- umhverfis- og veitusviðs. lagt fram til kynningar.