Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

Umsókn um lóð undir frístundarhús(sumarhús)

Mál 1603082 Fyrst á dagskrá 21. mars 2016, síðast 7. apríl 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Lóðir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2016

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 140 liður 5

    Lagt fram bréf Gunnars Th. Gunnarssonar og Ástu Ásgeirsdóttur, dagsett 15. mars 2016, þar sem sótt er um lóð undir frístundahús austan og neðan við Haga í Reyðarfirði, milli Hagalækjar og Ljósár.

    Umrætt svæði er samkvæmt Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 að hluta til innan þynningarsvæðis álvers, landbúnaðarsvæðis og þéttbýlisuppdráttar fyrir Reyðarfjörð.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki fallist á úthlutun lóðar undir frístundahús á svæðinu vegna fjarlægðar frá sjó og vegi og áður nefndra atriða.

  2. Bæjarstjórn, fundur 198 liður 4.5

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 140“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is