Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 467

14. mars 2016, kl. 17:00 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Kristín Gestsdóttir, varamaður
  • Elvar Jónsson, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 197 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 466 og nr. 467 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 14. mars s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES

    Mál 1411143 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fór yfir fund sinn með Mílu sem haldinn var í síðustu viku.

    Fyrir liggur tilboð Eflu verkfræðistofu hf. í næsta áfanga undirbúningsvinnu vegna lagningar ljósleiðara, forhönnun kerfis, gerð útboðsgagna o.fl. í dreifbýli í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Eflu um verkefnið og þeim verði falið fyrst að skoða sérstaklega mögulega samlegð við önnur fjarskiptafyrirtæki. Bæjarstjóra falið að undirrita samninga þar að lútandi og áfangaskiptingu verkefnisins.

  2. 2. Fjölskyldustefna Fjarðabyggðar

    Mál 1411001 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd og félagsmálanefnd hafa tekið fjölskyldustefnuna til umfjöllunar á fundum sínum 10. febrúar sl. sem og íþrótta- og tómstundanefnd á fundi 26.febrúar og stefnunni vísað til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Fyrir liggur forgangsröðun frá fjölskyldusviði og kostnaðargreining. Gerð er tillaga í minnisblaði um aukna fjárheimild á árinu 2016 að fjárhæð 2,7 milljónir kr. sem tengist m.a. forvarnarmálum.

    Bæjarráð samþykkir að kostnaði verði mætt af liðnum óráðstafað 21690. Fjármögnun stefnunnar að öðru leyti vísað til fjárhagsáætlunar 2017.

    Bæjarráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  3. 3. Gjaldskrá Fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna við fötluð börn

    Mál 1602068 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd samþykkti á fundi sínum þann 7. mars sl. uppfærslu á gjaldskrá vegna stuðningsfjölskyldna til handa fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra og vísaði henni til umræðu og afgreiðslu í bæjarráði. Lagt fram minnisblað félagsmálastjóra.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána.

  4. 4. Ferðaþjónusta fatlaðra - reglur

    Mál 1602069 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd samþykkti á fundi sínum þann 7. mars sl. tillögur til breytinga á reglum um ferðaþjónustu fatlaðs fólks og vísaði til umræðu og afgreiðslu bæjarráðs. Lagt fram minnisblað félagsmálastjóra.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  5. 5. Safnaleiðsagnarkerfi

    Mál 1511076 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sátu markaðs- og upplýsingafulltrúi og forstöðumaður menningar- og safnamála.

    Frá síðasta fundi. Framlagt minnisblað um uppsetningu safnaleiðsögukerfis (app) í Stríðsárasafninu á Reyðarfirði sem fyrsta áfanga í sjálfbærri safnaleiðsögn. Tilgangur með innleiðingu á safnaleiðsögukerfi er að bæta þjónustu við gesti safnanna og þá sérstaklega þá sem eru af erlendu bergi brotnir og verður kerfið með íslensku og ensku tali. Snalltækjavæðing er notuð til að miðla efni og verður snjalltæki afhent gestum en þeir geta líka notað eigin snjalltæki. Kerfið eykur afkastagetu safnanna og styður starfsmenn þeirra í að taka við gestum og veita þeim þjónustu óháð hversu margir koma í söfnin eða af hvaða þjóðerni gestir eru.Ljóst er að menningar- og safnanefnd hefur ekki fjármagn til úthlutunar í verkefnið i málaflokki 05, en nefndin er hlynnt ofangreindum hugmyndum sem lið í frekari þjónustu og markaðssókn safnanna.

    Bæjarráð samþykkir að farið verði í verkefnið og kostnaði mætt af lið 13610.

  6. 6. Birtingaráætlun Austurbrúar 2016 og markaðsáætlun

    Mál 1601066 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sátu markaðs- og upplýsingafulltrúi og forstöðumaður menningar- og safnamála.

    Birtingaráætlun Austurbrúar 2016 lögð fram til kynningar ásamt því að farið var yfir ráðstafanir í markaðsmálum á árinu 2016, áherslur og forgangsröðun.

  7. 7. Endurgreiðsluhlutfall Fjarðabyggðar vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar

    Mál 1603048 Allur ferill málsins

    Tekið fyrir bréf Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga um endurgreiðsluhlutfall á B deild Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar en lagt er til að endurgreiðsluhlutfallið verði óbreytt á milli ára og verði 66% á árinu 2016.

    Bæjarráð samþykkir tillögu að endurgreiðsluhlutfalli.

  8. 8. Kaupréttarákvæði 2016 um Melgerði 13 Reyðarfirði

    Mál 1603023 Allur ferill málsins

    Samkvæmt leigusamningi um Melgerði 13 Reyðarfirði er opinn kaupréttur að húsnæðinu þann 1.maí 2016. Lagt fram minnisblað fjármálastjóra.

    Bæjarstjóra falið að hefja viðræður við Eik fasteignafélag um nýtingu kaupréttar eignarinnar.

  9. 9. Umsókn um framlengingu á stöðuleyfi fyrir gámaeiningar á Hrauni 3.

    Mál 1603068 Allur ferill málsins

    Sótt er um framlengingu á stöðuleyfi fyrir gámaeiningu austan við byggingu Launafls að Hrauni 3.

    Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  10. 10. Ofanflóðavarnir í Neskaupstað - Urðarteigur 37

    Mál 1312074 Allur ferill málsins

    Framlögð matsgerð og drög að kaupsamningi að höfðu samráði og samþykki Ofanflóðasjóðs vegna uppkaupa á fasteigninni að Urðarteigi 37 Neskaupstað. Uppkaupin eru vegna ofanflóðavarna en fasteignin er á skilgreindu hættusvæði.

    Ofanflóðasjóður greiðir 90% kaupverðs sem er 15,5 milljónir kr.

    Vísað frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd til endanlegrar ákvörðunar í bæjarráði.

    Bæjarráð samþykkir að kaupa eignina. Bæjarstjóra falið að undirrita skjöl sem tengjast kaupum eignarinnar og frágangi við Ofanflóðasjóð.

  11. 11. 735 Leirubakki 4 - umsókn um lóð

    Mál 1603035 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Þorsteins Kristjánssonar fh. Eskju hf, dagsett 7. mars 2016, þar sem sótt er um lóðina Leirubakka 4 á Eskifirði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta Eskju lóðinni að Leirubakka 4 og vísaði umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta Eskju hf. lóðinni Leirubakka 4 til Eskju hf.

  12. 12. 735 Leirubakki 7 - umsókn um lóð

    Mál 1603036 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Þorsteins Kristjánssonar fh. Eskju hf, dagsett 7. mars 2016, þar sem sótt er um lóðina Leirubakka 7 á Eskifirði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta Eskju lóðinni að Leirubakka 7 og vísaði umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta Eskju hf. lóðinni Leirubakka 7 á Eskifirði.

  13. 13. Nefndaskipan Framsóknarflokks 2014 - 2018

    Mál 1406123 Allur ferill málsins

    Pálína Margeirsdóttir hefur óskað eftir ótímabundnu leyfi frá störfum í bæjarstjórn og nefndum frá og með deginum í dag.

    Svanhvít Yngvadóttir tekur sæti Pálínu sem aðalmaður í bæjarstjórn frá og með sama tíma.

  14. 14. Fundargerðir félagsmálanefndar 2016

    Mál 1601210 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 81 frá 7. mars 2016, lögð fram til kynningar.

  15. 15. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 139

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 139 frá 7. mars 2016, lögð fram til kynningar.

  16. 16. Hafnarstjórn - 160

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 160 frá 8. mars 2016, lögð fram til kynningar.

  17. 17. Fræðslunefnd - 26

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar nr. 26 frá 10. mars 2016, lögð fram til kynningar.