Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

Forvarnir - Málþing um geðheilbrigði

Mál 1603034 Fyrst á dagskrá 9. mars 2016, síðast 17. mars 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2016

    Fræðslunefnd, fundur 26 liður 1

    Föstudaginn 11. mars og laugardaginn 12. mars verður haldið málþing um geðræktarmál í hátíðarsal Nesskóla, Neskaupstað. Verkmenntaskóli Austurlands, Foreldrafélag VA, Foreldrafélag Nesskóla og Fjarðabyggð standa fyrir námskeiðinu, en síðustu ár hafa þessi félög og stofnanir staðið saman að forvarnardegi. Í ár er málþingið tvískipt, föstudagurinn 11.mars er málþing fyrir nemendur VA og nemendur í 10. bekkjum grunnskólanna í Fjarðabyggð með dagskrá frá kl. 16:00 - 19:00 og síðan er málþing sem er öllum opið laugardaginn 12. mars frá kl. 11:00 - 14:00. Dagskráin er áhugaverð og fjölbreytt og snertir marga fleti geðheilbrigðis. Fræðslunefnd fagnar framtakinu og hvetur fólk til að nýta tækifærið og fjölmenna á málþingið.

  2. Bæjarstjórn, fundur 197 liður 5.1

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 26“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is