Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

Styrktarsjóður EBÍ 2016

Mál 1602136 Fyrst á dagskrá 9. mars 2016, síðast 1. september 2016. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Styrkir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2016

    Fræðslunefnd, fundur 26 liður 2

    Borist hefur bréf frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands frá 22. febrúar þar sem vakin er athygli á Styrktarsjóði EBÍ. Sjóðurinn styrkir sérstök framfaraverkefni á vegum sveitarfélaga, ekki almenn rekstrarverkefni. Umsóknarfrestur er til aprílloka. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að kynna bréfið fyrir sviðstjórum Fjarðabyggðar og hvetur sveitarfélagið til að senda inn umsókn.

  2. Bæjarstjórn, fundur 197 liður 5.2

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 26“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Fræðslunefnd, fundur 29 liður 2

    Borist hefur bréf frá styrktarsjóði EBÍ þar sem fram kemur að Fjarðabyggð hljóti styrk upp á 300.000 kr. til að vinna áfram að skólabúðaverkefni á Stöðvarfirði. Fræðslunefnd fagnar styrkveitingunni og vonast til að hún nýtist nemendum sem best.

  4. Bæjarstjórn, fundur 205 liður 4.2

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 29“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is