Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

50.ára afmæli Sambands sveitarfélaga á Austurlandi

Mál 1603027 Fyrst á dagskrá 7. mars 2016, síðast 17. mars 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2016

    Bæjarráð, fundur 466 liður 10

    Í tilefni af 50 ára afmælis Sambands sveitarfélaga á Austurlandi á þessu ári, verður haldið málþing fimmtudaginn 31. mars nk. frá kl. 10:00 - 17:00. Meginþema málþingsins er uppbygging þekkingarsamfélags á Austurlandi og verður Frank Rennie, prófessor við University of Highlands and Islands í Skotlandi, með aðalframsögu. Þá munu fulltrúar háskólastofnana á Íslandi, mennta- og menningarmálaráðuneytis og Alþingis taka til máls. Nánari upplýsingar um dagskrá og staðsetningu verða sendar síðar.

    Bæjarráð samþykkir að Fjarðabyggð verði gestgjafi þingsins og felur bæjarritara undirbúning þess í samstarfi við Samband sveitarfélaga á Austurlandi.

  2. Bæjarstjórn, fundur 197 liður 1.10

    Fundargerðin „Bæjarráð - 466“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is