Hafnarstjórn, fundur 159
9. febrúar 2016, kl. 16:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 463 liður 19
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 159 frá 9. febrúar 2016, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 195 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 159 frá 9.febrúar 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2016
Mál 1601010 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 381 dags. 18. janúar 2016 lögð fram til kynningar.
-
2. 730 Hraun 6 - umsókn um lóð
Mál 1412124 Allur ferill málsins
Gámaþjónusta Austurlands - Sjónarás ehf sótti um lóð nr. 6 við Hraun þann 18. desember 2014 og er umsóknin fallin úr gildi í dag. Nú hafa þeir óskað eftir vegna aðstæðna að hafa forgang að lóðinni fram undir árslok 2016.
Hafnarsstjórn mælir með að við beiðninni verði orðið en komi umsókn í lóðina á tímabilinu verði Gámaþjónusta Austurlands - Sjónarás að svara strax eða innan viku hvort þeir hyggist taka lóðina.
-
3. Aðalfundur Cruise Europe 31.maí til 2. júní 2016
Mál 1602007 Allur ferill málsins
Aðalfundur Cruise Europe 31. maí til 2. júní 2016 haldinn í Írlandi.
Hafnarstjórn samþykkir að framkvæmdastjóri fari á aðalfundinn.
-
4. Fyrirhuguð bygging frystigeymslu á Fáskrúðsfirði
Mál 1505078 Allur ferill málsins
Kynntar hugmyndir af bryggju á Fáskrúðsfirði, sem eru í vinnslu hjá siglingasviði Vegagerðarinnar.
-
5. Óveðurstjón í desember 2015
Mál 1512096 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu mála varðandi samantekt á tjónum sem urðu í lok árs 2015.
-
6. Samningur um þjónustu við Hafnarsjóð Fjarðabyggðar
Mál 1602038 Allur ferill málsins
Farið yfir málefni skipulagsbreytinga í tengslum við "Fjarðabyggð til framtíðar" og samþykktar hafa verið í bæjarstjórn og gerð samnings milli hafnasjóðs og Fjarðabyggðar í kjölfar þess. Fyrir fundinum lágu drög að samkomulagi. Framkvæmdastjóra falið að ganga frá samningnum og undirrita hann.
-
7. Svæði til geymslu tómra og fullra gastanka
Mál 1111103 Allur ferill málsins
Farið yfir málefni geymslusvæðis flutningsgeyma fyrir gas. Staðsetningu þess og aðgerðir sem fara þarf í.
Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram og ljúka því.
-
8. Þjónusta við olíuleit á Drekasvæði - kynningarmál
Mál 1210103 Allur ferill málsins
Farið yfir málið og vinnuskjal (trúnaðarmál) sem lá fyrir fundinum.
Hafnarstjórn samþykkti að fela framkvæmdastjóra hafnanna í samvinnu við bæjarstjóra að vinna málið áfram.
-
9. Tjón á Norðfirði - Scombrus siglir á tunnu á skjólgarði
Mál 1511125 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir stöðu mála og fór yfir minnisblað vegan tjónsins frá siglingasviði Vegagerðarinnar og greindi frá fundi með fulltrúum tryggingafélaga skipsins þann 2. febrúar sl.