Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 158

5. janúar 2016, kl. 16:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 459 liður 10

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 5. janúar sl. lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 193 liður 8

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 158 frá 5. janúar 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2015

    Mál 1501066 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 380 dags. 14. desember 2015 lögð fram til kynningar.

  2. 2. Fundargerðir CI á árinu 2015

    Mál 1501065 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Cruise Iceland dags. 3. desember 2015 lögð fram til kynningar. Í fundargerðinni kemur fram að ekki verði tekið þátt í Evrópusýningunni haustið 2016 eins og ráð var fyrir gert. Hafnarstjórn tekur undir gagnrýni framkvæmdastjóra á þá ákvörðun, sem hann hefur þegar sent á stjórn Cruise Iceland.

  3. 3. Norðfjörður - Fylling og stálþil á þróunarsvæði

    Mál 1503131 Allur ferill málsins

    Gerð grein fyrir stöðu fyllingamála á Norðfirði.

  4. 4. Óveðurstjón í desember 2015

    Mál 1512096 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu mála vegna óveðurs þann 28. og 30. desember sl.