Hafnarstjórn, fundur 157
8. desember 2015, kl. 16:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Árni Þórhallur Helgason, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 192 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 8. desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjarðabyggð til framtíðar - Trúnaðarmál
Mál 1411075 Allur ferill málsins
Þennan lið sat Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri og fór yfir málefni tengd "Fjarðabyggð til framtíðar" sem lítur að starfsemi hafna og þjónustumiðstöðva.
-
2. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2015
Mál 1501066 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 379 dags. 16. nóvember 2015 lögð fram til kynningar.
-
3. Fundargerðir CI á árinu 2015
Mál 1501065 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland dags. 6. nóvember 2015 lögð fram.
Hafnarstjórn ræddi þátttöku á sölusýningum næsta árs og samþykkir þátttöku í sýningu í Fort Lauderdale 14. til 17. mars 2016, einnig samþykkir hafnarstjórn að senda fulltrúa á sölusýningu skemmtiferðaskipa 21. til 23. september 2016.
Þá var rædd fyrirhuguð endurnýjun á bæklingi Cruise Iceland og hugmyndir um gjald fyrir þátttöku í bæklingnum og sölu auglýsinga. Fjarðabyggðarhafnir verða með í bæklingnum.
-
4. Þátttaka á sölusýningu skemmtiferðaskipa í Fort Lauderdale 14. til 17 mars 2016
Mál 1511123 Allur ferill málsins
Erindi frá Cruise Iceland dags. 23. nóvember 2015 þar sem boðin er þátttaka á sölusýningu skemmtiferðaskipa í Fort Lauderdale dagana 14. til 17. mars 2016 með sameiginlegum fulltrúa. Sjá bókun í liðnum hér á undan.
-
5. Aðstöðuhús við smábátahafnir
Mál 1503148 Allur ferill málsins
Fundargerð dags. 11. nóvember 2015 frá opnun tilboða í smíði þjónustuhúss á Stöðvarfirði ásamt minnisblaði vegna málsins. Í verkið barst eitt tilboð og var það frá Launafli ehf. Hljóðaði það upp á 19,7 millj.kr. eða 204% af kostnaðaráætlun sem var 9,6 millj. kr. Hafnarstjórn staðfestir höfnun á innkomnu tilboði í gerð þjónustuhúss. Framkvæmdastjóra er falið að finna úrlaus vegna byggingu hússins um leið og biðtími er liðinn.
-
6. Smábátahöfn Stöðvarfirði - Umhverfisfrágangur
Mál 1211017 Allur ferill málsins
Fundargerð frá opnun tilboða í fyllingu, grjótvörn og lagnir á Stöðvarfirði dags. 1. desember 2015. Í verkið bárust þrjú tilboð og voru þau frá Þ.S verktökum ehf., Ylur ehf/Jónsmenn ehf. og Héraðsverki ehf. Lægst tilboð átti Héraðsverk ehf að upphæð 37 millj.kr.eða 68,2% af kostnaðaráætlun sem var 54,2 millj.kr.
Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðandi.
-
7. Svæði til geymslu tómra og fullra gastanka
Mál 1111103 Allur ferill málsins
Fundargerð frá fundi þann 16. nóvember sl. þar sem fjallað var um geymslusvæði fyrir færanlega gastanka út á Mjóeyrarhöfn. Fundargerðin kynnt og farið var yfir málið.
-
8. Tjón á Norðfirði - Scombrus siglir á tunnu á skjólgarði
Mál 1511125 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir tjóni sem varð á tunnu á enda grjótvarnargarðs þegar siglt var utan í hana þann 12. nóvember sl. en málið er í skoðun hjá hönnuði.
-
9. Umsókn um byggingarlóð - Hraun 8
Mál 1511112 Allur ferill málsins
Lóðarumsókn frá Olíuverslun Íslands dags. 19. nóvember 2015 þar sem sótt er um lóð nr. 8 að Hrauni undir sjálfsafgreiðslustöð fyrir eldsneyti.
Fyrir liggur jákvæða umsögn Alcoa sem skv. samningi þar um hefur umsagnarrétt um úthlutanir lóða að Hrauni.
Hafnarstjórn samþykkir tillöguna fyrir sitt leiti.
-
10. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir capt. Grinchenko Gennady á Marmakira
Mál 1511114 Allur ferill málsins
Erindi frá Thor Ship dags. 20. nóvember 2015 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Grinchenko Gennady skipstjóra á Marmakira að og frá Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Grinchenko Gennady skipstjóra á Marmakira.