Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 156

10. nóvember 2015, kl. 16:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, varamaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 452 liður 16

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 156, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 190 liður 4

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 10. nóvember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umhverfisstefna hafna

    Mál 1111100 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um drög að stefnu Fjarðabyggðarhafna í umhverfi. heilsu og öryggi. Drögin voru áður til umfjöllunar á fundi hafnarstjórnar 25. ágúst sl. Þennan fundarlið sat verkefnisstjóri atvinnu- og þróunarmála Fjarðabyggðar.

    Hafnarstjórn samþykkir stefnuna og felur framkvæmdastjóra gera nokkrar minni háttar lagfæringar.

  2. 2. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2015

    Mál 1501066 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 378 dags. 23. október 2015. Lögð fram til kynningar.

  3. 3. Fundargerðir CI á árinu 2015

    Mál 1501065 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Cruise Iceland dags. 19. ágúst 2015 lögð fram til kynningar.

  4. 4. Aðalfundur Fiskmarkaður Austurlands 2015

    Mál 1510044 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar Fiskmarkað Austurlands dags. 22. október 2015 ásamt ársreikningi félagsins lögð fram til kynningar.

  5. 5. Ósk um að gerður verði rampur fyrir neðan húsnæði Sjósportsklúbbs Austurlands

    Mál 1508072 Allur ferill málsins

    Bréf frá Sjósportklúbbi Austurlands dags. 17. ágúst sl. og var frestað á fundi hafnarstjórnar þann 6. október 2015. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að ræða við bréfritara, en hafnarstjórn er hins vegar ekki mótfallin að klúbburinn komi sér upp aðstöðu á svæðinu en skal það þá gert í samráði við framkvæmdastjóra.

  6. 6. Áætlun hafnaryfirvalda um móttöku úrgangs og farmleifa frá skipum.

    Mál 1507017 Allur ferill málsins

    Erindi frá Umhverfisstofnun dags.29. júní 2015 þar sem minnt er á að komð er að endurskoðun áætlunar um móttöku úrgangs og farmleifa frá skipum og að taka þurfi tillit til nýrra laga frá 2014 vegna gjaldtöku fyrir móttöku úrgangs.

    Fyrir fundinum láu drög að endurskoðum áætlunum fyrir hafnirnar í Fjarðabyggð, Mjóafjörð, Norðfjörð, Eskifjörð, Reyðarfjörð, Fáskrúðsfjörð og Stöðvarfjörð.

    Hafnarstjórn samþykkir áætlanirnar.

  7. 7. Verkefnastjóri í atvinnumálum í Fjarðabyggð

    Mál 1310127 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til kynningar í hafnarstjórn.

    Stjórnkerfisnefnd vinnur enn að endurskoðun skipurits og ljóst að það verkefni mun taka einhvern tíma til viðbótar. Bæjarráð, sem starfar einnig sem stjórnkerfisnefnd, er sammála um að starf á vettvangi atvinnuþróunar og tengdra verkefna sé mjög mikilvægt fyrir sveitarfélagið þó starfið kunni að þróast frekar. Þá hafi núverandi fyrirkomulag gengið vel og því sé tímabært að eyða óvissu um framtíð starfsins og auglýsa það.

  8. 8. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2016 ásamt langtímaáætlun

    Mál 1508040 Allur ferill málsins

    Farið yfir fyrirliggjandi fjárhagsáætlun hafnarsjóðs fyrir 2016, en bæjarstjórn hefur tekið hana til fyrri umræðu á fundi sínum þann 29. október s.l.

  9. 9. Kynning á Bláfánaverkefni Landverndar

    Mál 1410021 Allur ferill málsins

    Fyrir fundinum liggur minnisblað verkefnisstjóra í atvinnumálum dags. 26. október 2015 vegna Bláfánaverkefnis Landverndar. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna áfram að málinu.

  10. 10. Norðfjörður - Fylling og stálþil á þróunarsvæði

    Mál 1503131 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að samningi um uppdælingu á efni í fyllingu á svæði utan fiskimjölsverksmiðju á Norðfirði. Hafnarstjórn samþykkir samninginn.

  11. 11. Umsókn um styrk til endurgerðar sjóhússbryggjunnar við Kaupvang - Fáskrúðsfirði

    Mál 1510187 Allur ferill málsins

    Erindi frá Birnu Baldursdóttur og Bæring Bjarna Jónssyni þar sem óskað er eftir styrk til endurgerðar sjóhúsbryggju við Kaupvang, Hafnargötu 15 Fáskrúðsfirði.

    Hafnarstjórn samþykkir að veita styrk til endurgerðar á bryggjunni í samræmi við reglur hafnarstjórnar um endurgerð gamalla bryggja.

  12. 12. Uppbygging sýningarsvæðis í útbæ Eskifjarðar

    Mál 1511047 Allur ferill málsins

    Erindi frá Sjóminjasafni Austurlands dags. 5. nóvember 2015 þar sem óskað er eftir styrk frá Hafnarsjóði Fjarðabyggðar. Hafnarstjórn samþykkir að veita styrk til undirbúnings- og hugmyndavinnu á árinu 2016 en óskar eftir að lögð verði fram kostnaðaráætlun fyrir þá vinnu áður en endanleg upphæð verður ákveðin.

  13. 13. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016

    Mál 1506139 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að svara erindinu í ljósi umræðu á fundinum.