Hafnarstjórn, fundur 155
6. október 2015, kl. 16:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Árni Þórhallur Helgason, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 187 liður 9
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 6. október staðfest með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2015
Mál 1501066 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 376 dags. 24. águst 2015. Lögð fram til kynningar.
-
2. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2015
Mál 1501066 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 377 dags. 21. september 2015. Lögð fram til kynningar.
-
3. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu Samskip Hoffell
Mál 1508084 Allur ferill málsins
Erindi frá Samskipum dags. 25. ágúst 2015 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Dmytro Pahu skipstjóra á Mv. Samskip Hoffelli að og frá Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Dmytro Pahu skipstjóra á Mv. Samskip Hoffelli
-
4. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu Samskip Skaftafell
Mál 1508083 Allur ferill málsins
Erindi frá Samskipum dags. 25. ágúst 2015 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Danilov Aleksandr skipstjóra á Mv. Samskip Skaftafelli að og frá Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Danilov Aleksandr skipstjóra á Mv. Samskip Skaftafelli.
-
5. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Sergey Ivanov skipstjóra á Mv Marmaui
Mál 1510012 Allur ferill málsins
Erindi frá Thor Ship dags. 2. október 2015 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Sergey Ivanov skipstjóra á Mv. Marmaui að og frá Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Sergey Ivanov skipstjóra á Mv. Marmaui.
-
6. Umsókn um hafnsögumannsskírteini
Mál 1508088 Allur ferill málsins
Umsögn vegna umsóknar Ingva Rafns Guðmundssonar starfsmanns Fjarðabyggðarhafna um hafnsögumannsskírteini. Hafnarstjórn staðfestir umsögnina.
-
7. 101.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015-2026
Mál 1509155 Allur ferill málsins
Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um þingsálygtunartillögu um landsskipulagsstefnu 2015 - 2026, 101 mál.
Erindið kynnt.
-
8. Ósk um að gerður verði rampur fyrir neðan húsnæði Sjósportsklúbbs Austurlands
Mál 1508072 Allur ferill málsins
Bréf frá Sjósportklúbbi Austurlands dags. 17. ágúst 2015 þar sem óskað er eftir að hafnarsjóður útbúi ramp utan og neðan við fyrrverandi síldarsöltun Sæbergs þar sem klúbburinn er til húsa.
Málinu frestað.
-
9. Aðstöðuhús við smábátahafnir
Mál 1503148 Allur ferill málsins
Hafnarstjórn samþykkir að bjóða út að nýu smíði þjónustuhúss á Stöðvarfirði. Verkið var áður boðið út í júli sl. en þá barst eitt tilboð í verkið sem var hafnað. Framkvæmdastjóra falið að bjóða verkið út að nýju.
-
10. Smábátahöfn Stöðvarfirði - Umhverfisfrágangur
Mál 1211017 Allur ferill málsins
Fyrir liggur samþykki í áætlun fyrir því að fara í framkvæmdir við fyllingu og grjótvörn á Stöðvarfirði sem er hluti umhverfisverkefnis á hafnarsvæðinu þar. Hafnarstjórn samþykkir að bjóða verkið út.
-
11. Fyrirhuguð bygging frystigeymslu á Fáskrúðsfirði
Mál 1505078 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað frá Siglingasviði Vegagerðarinnar dags. 17. september 2015, vegna nýs bryggjukants á Fáskrúðsfirði. Í minnisblaðinu er lagt til að um verði að ræða stálþilskant Hafnarstjórn samþykkir að fela framkvæmdastjóra að óska eftir við siglingasvið Vegagerðarinnar að hefja hönnun stálþils og útboð á stáli fyrir kantinn.
Framkvæmdastjóra falið að vinna að efnistökumálum í fyllingu samhliða verkefnum á öðrum höfnum Fjarðabyggðar.
-
12. Skýrsla um áhrif innflutningsbanns Rússsa
Mál 1509122 Allur ferill málsins
Skýrsla Byggðastofnunar um áhrif innflutningsbanns Rússa frá september 2015. Lögð fram til kynningar
-
13. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2016 ásamt gjaldskrá og langtímaáætlun
Mál 1508040 Allur ferill málsins
Vinna við gerð fjárhagsáætlunar 2016 og langtímaáætlun fyrir hafnarsjóð Fjarðabyggðar og gjaldskrá. Hafnarstjórn samþykkir að gjaldskrá hafnarsjóðs hækki um 6,1% í samræmi við hækkun byggingavísitölu síðustu 12 mánaða. Einnig samþykkir hafnarstjórn framkvæmdaáætlun fyrir 2016 ásamt langtímaáætlun 2017 til 2019.
Hafnarstjórn mun skoða hvort forsendur áætlunarinnar hafi breyst þegar kemur fram á árið með endurskoðun á áætluninni i huga. Áætluninni er vísað til bæjarráðs.