Hafnarstjórn, fundur 154
25. ágúst 2015, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
- Árni Þórhallur Helgason, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 441 liður 14
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 154, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 184 liður 10
Til máls tóku
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 154 frá 25.ágúst 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Grendarkynning, óveruleg breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis 5 á Fáskrúðsfirði
Mál 1508061 Allur ferill málsins
Grenndarkynning, óveruleg breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis 5 á Fáskrúðsfirði. Grendarkynning hefst 21. ágúst 2015 og skal athugasemdum skilað inn eigi síðar en fyrir 18. september 2015.
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við deiliskipulagsbreytinguna.
-
2. Umhverfisstefna hafna
Mál 1111100 Allur ferill málsins
Lögð fram frumdrög að umhverfisstefnu fyrir Fjarðabyggðarhafnir til áframhaldandi vinnu. Þennan lið fundarins sat Ásta Kristín Sigurjónsdóttir. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra áframhaldandi vinnu við áætlunina.
-
3. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2016 ásamt gjaldskrá og langtímaáætlun
Mál 1508040 Allur ferill málsins
Undirbúningur að gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016 ásamt lantímaáætlun. Farið yfir tímaáætlun og vinnu framundan.