Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 441

31. ágúst 2015, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 184 liður 7

    Til máls tóku

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 441 frá 31.ágúst 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Lagning háspennustrengs um Norðfjarðargöng.

    Mál 1505123 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Landsnets frá 25.ágúst er varðar háspennustreng um Norðfjarðargöng. Bæjarráð ítrekar nauðsyn þess að lagður verði háspennustrengur um Norðfjarðargöng eins og gert er ráð fyrir. Bæjarstjóra falið að funda með Landsneti á næstunni.

  2. 2. Samgöngunefnd SSA - Fundargerðir 2015

    Mál 1507089 Allur ferill málsins

    Fundargerð 5.fundar samgöngunefndar SSA, lögð fram til kynningar.

  3. 3. Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2015

    Mál 1506090 Allur ferill málsins

    Ofanflóðasjóður hefur samþykkt lánveitingu í samræmi við umsókn Fjarðabyggðar að upphæð 40,8 milljónir króna vegna ofanflóðaframkvæmda á árinu 2014. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  4. 4. Kaup á endurskoðunarþjónustu Fjarðabyggðar

    Mál 1505092 Allur ferill málsins

    Á fundi bæjarstjórnar 18.júní sl. var samþykkt með 9 atkvæðum að gengið verði til samninga við KPMG endurskoðun um endurskoðunarþjónustu Fjarðabyggðar og stofnana árin 2015 til 2019. Lagður fram til kynningar samningur vegna endurskoðunarþjónustu er óskast staðfestur af bæjarráði. Bæjarstjóra falin undirritun samnings.

  5. 5. Fundargerðir stjórnar SSA 2015

    Mál 1501271 Allur ferill málsins

    Fundargerð 13.stjórnarfundar SSA lögð fram til kynningar.

  6. 6. Aðalfundur SSA 2015

    Mál 1503140 Allur ferill málsins

    Lagðar fram ályktanir aðalfundar SSA sem haldinn verður í haust. Bæjarráð mun fara yfir ályktanir sem fyrir liggja og meta hvort ástæða sé til að leggja fram fleiri ályktanir f.h. sveitarfélagsins.

  7. 7. Ofanflóðavarnir Eskifirði. Verkhönnun árfarvega

    Mál 1403026 Allur ferill málsins

    Hafsteinn Pálsson frá Ofanflóðasjóði og Hugrún Hjálmarsdóttir frá Eflu verkfræðistofu sátu þennan lið fundarins og fóru yfir framkvæmdir við ofanflóðavarnir í árfarvegum á Eskifirði.

  8. 8. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016

    Mál 1506139 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sat fjármálastjóri. Áframhald vinnu við fjárhagsáætlun 2016. Lagðir fram, með fyrirvörum, fjárhagsrammar vegna fjárhagsáætlunar 2016. Bæjarstjóra falið að úthluta fjárhagsrömmum til fastanefnda með skýringum.

  9. 9. Fjárhagsáætlun 2015 - viðauki 4

    Mál 1508095 Allur ferill málsins

    Framlagður viðauki 4 við Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2015 vegna nýs starfsmats í samræmi við kjarasamninga frá 1. maí 2014 og vegna úthlutunar í símenntunarpotti 2015. Bæjarráð samþykkkir viðauka 4 og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  10. 10. Málefni flóttamanna

    Mál 1508097 Allur ferill málsins

    Með tilliti til umræðu síðustu daga um hugsanlega móttöku Íslands á flóttamönnum, óskar bæjarráð eftir við félagsmálanefnd að tekin verði umræða í nefndinni og framkvæmd greining á vegum hennar á innviðum samfélagsins vegna móttöku flóttamanna.

  11. 11. Efling millilandaflugs um Egilsstaðaflugvöll

    Mál 1402008 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu Jóna Árný Þórðardóttir frá Austurbrú auk markaðs- og upplýsingafulltrúa og verkefnastjóra í atvinnumálum. Rætt um markaðssetningu Egilsstaðaflugvallar í tengslum við millilandaflug 2016.

  12. 12. Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2014 - 2018

    Mál 1406124 Allur ferill málsins

    Magni Þór Harðarson tekur sæti í fræðslunefnd í stað Þórdísar Mjallar Benediktsdóttur en Þórdís hefur tekið við stöðu aðstoðarleikskólastjóra í Neskaupstað.

  13. 13. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 125

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 125, lögð fram til kynningar.

  14. 14. Hafnarstjórn - 154

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 154, lögð fram til kynningar.

  15. 15. Menningar- og safnanefnd - 16

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og safnanefndar nr. 16 lögð fram til kynningar.

  16. 16. Íþrótta- og tómstundanefnd - 13

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar nr. 13 lögð fram til kynningar.