101.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015-2026
Mál 1509155 Fyrst á dagskrá 28. september 2015, síðast 15. október 2015. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Hafnarstjórn.
Í heiti málsins: Skipulag
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Bæjarráð, fundur 444 liður 10
Fram lögð til kynningar tillaga til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015 til 2026.
Stjórnvöld á árunum 2015 - 2026 vinna að skipulagsmálum í samræmi við landsskipulagsstefnu sem felur í sér:
1. Stefnu um skipulag á miðhálendi Íslands.
2. Stefnu um skipulag í dreifbýli.
3. Stefnu um búsetumynstur og dreifingu byggðar.
4. Stefnu um skipulag á haf- og strandsvæðum.
Í landsskipulagsstefnu er eftirfarandi lagt til grundvallar auk markmiða skipulagslaga:
1. Að skipulag byggðar og landnotkunar stuðli að sjálfbærri þróun.
2. Að skipulag byggðar og landnotkunar sé sveigjanlegt og stuðli að seiglu gagnvart
samfélags- og umhverfisbreytingum.
3. Að skipulag byggðar og landnotkunar stuðli að lífsgæðum fólks.
4. Að skipulag byggðar og landnotkunar styðji samkeppnishæfni landsins alls og einstakra
landshluta.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Bæjarstjórn, fundur 186 liður 2.10
Fundargerðin „Bæjarráð - 444“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Hafnarstjórn, fundur 155 liður 7
Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um þingsálygtunartillögu um landsskipulagsstefnu 2015 - 2026, 101 mál.
Erindið kynnt.
-
Bæjarstjórn, fundur 187 liður 9.7
Fundargerðin „Hafnarstjórn - 155“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.