Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 186

1. október 2015, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Kristín Gestsdóttir, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 443

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 21. september s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Atvinnulausir og sundstaðir1509084
    2. 1.2 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2015/20161509051
    3. 1.3 Umhverfismál og skilti1509093
    4. 1.4 Fundur með sveitarstjórnum haustið 20151509099
    5. 1.5 Islands.is og samstarf um rafræna upplýsingaveitu1509053
    6. 1.6 Íbúaþróun1509131
    7. 1.7 Afnot af íþróttahúsi á Neskaupstað v/árshátíðar Síldarvinnslunnar1509129
    8. 1.8 Jafnlaunaúttekt1508035
    9. 1.9 Skýrsla um áhrif innflutningsbanns Rússa1509122
    10. 1.10 Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 25.september1509075
    11. 1.11 Drög frumvarps um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga til umsagnar1509115
    12. 1.12 Tímabundin breyting á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga1509120
    13. 1.13 Boð á IX.Umhverfisþing 9.október 20151509105
    14. 1.14 Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 20151501235
  2. 2. Bæjarráð - 444

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 28. september s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Áfangastaðurinn Austurland - kynning1503052
    2. 2.2 Ályktun frá stjórn Skólastjórafélags Austurlands1509156
    3. 2.3 Beiðni um styrk fyrir endurhæfingahópa á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað1402088
    4. 2.4 Launakjör hlutastarfandi sjúkraflutningamanna1503101
    5. 2.5 Skíðasvæðið í Oddsskarði - útvistun rekstrar1507029
    6. 2.6 Viðhaldsþörf íbúða Fjarðabyggðar1509109
    7. 2.7 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2016 - eigna-,skipulags og umhverfisnefndar1509024
    8. 2.8 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2016 - barnavernd1509027
    9. 2.9 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2016 - félagsmálanefnd1509026
    10. 2.10 101.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015-20261509155
    11. 2.11 140.mál til umsagnar frumvarp til laga um náttúruvernd (varúðarregla, almannaréttur, sérstök vernd, framandi tegundir o.fl.)1509169
    12. 2.12 133.mál til umsagnar frumvarp til laga um landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum1509166
    13. 2.13 3.mál til umsagnar frumvarp til laga um almannatryggingar (hækkun lífeyris í 300 þús. kr.)1509141
    14. 2.14 4.mál til umsagnar frumvarp til laga um byggingarsjóð Landspítala (heildarlög)1509142
    15. 2.15 Fundargerðir barnaverndarnefndar 20151501273
    16. 2.16 Fundargerðir félagsmálanefndar 20151501132
    17. 2.17 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1271509009F
    18. 2.18 Fræðslunefnd - 201509012F
  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 127

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 21. september staðfest með 9 atkvæðum.

  4. 4. Fræðslunefnd - 20

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 23. september s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Eftirfylgni með úttekt á Grunnskólanum á Eskifirði1508022
    2. 4.2 Eftirfylgni með úttekt á Leikskólanum Lyngholti1508021
    3. 4.3 Starfs- og fjárhagsáætlun 2016 í fræðslumálum1508025
    4. 4.4 Efling hinsegin fræðslu í grunnskólum Fjarðabyggð - Tillaga Fjarðalistans á fundi bæjarstjórnar nr. 1831508032
  5. 5. Fundargerðir félagsmálanefndar 2015

    Mál 1501132 Allur ferill málsins

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 74 frá 21. september s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

  6. 6. 750 Hafnarsvæði 5 - Breyting á deiliskipulagi, grenndarkynnt

    Mál 1507069 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi breytingum á deiliskipulaginu úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Grenndarkynningu er lokið. Engar athugasemdir bárust.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum óverulega breytingu á deiliskipulaginu Hafnarsvæði 05, skipulagsuppdráttur með greinargerð dagsettur 10. júlí 2015. Málsmeðferð verði í samræmi við 43. gr. skipulagslaga.

  7. 7. Beiðni um umsögn skv. 52.gr.jarðalaga 81/2004

    Mál 1502165 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.

    Lagt fram bréf frá Hilmari Gunnlaugssyni fyrir hönd Björns Þorsteinssonar um umsögn vegna lausnar jarðarinnar Þernuness úr óðalsböndum. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir fyrir sitt leyti við að jörðin Þernunes verði leyst úr óðalsböndum og vísaði málinu til bæjarstjórnar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti að jörðin Þernunes verði leyst úr óðalsböndum.

  8. 8. Fjárhagsáætlun 2015 - viðauki 5

    Mál 1509194 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka úr hlaði.

    Viðaukinn felur í sér að lagt er til að viðhaldskostnaður félagslegra íbúða í málaflokki 57 verði hækkaður um kr. 12.500.000 í fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2015 þannig að hann verði samtals kr. 25.000.000 og að leigutekjur félagslegra íbúða í sama málaflokki lækki um kr. 5.000.000 og verði eftir lækkun kr. 60.395.155.

    Samtals eru áhrifin af auknum rekstrarkostnaði og lækkuðum tekjum á árinu 2015 kr. 17,500,000 og mun rekstrarniðurstaða málaflokksins lækka um sömu niðurstöðu og verða tap uppá kr. 15.291.000 í stað afgangs uppá kr. 2.209.000. Jafnframt er lagt til að fjármagna aukinn rekstrarkostnað og lækkaðar tekjur með lækkun á eigin fé Félagslegra íbúða og lántöku hjá aðalsjóði Fjarðabyggðar.

    Eigið fé málaflokksins Félagslegar íbúðir mun lækka um kr. 17.500.000 og handbært fé aðalsjóðs mun lækka um sömu upphæð eða kr. 17.500.000 til samræmis við ofangreint og verða kr. 319.360.000 í árslok 2015

    Viðaukinn staðfestur af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.