Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Tímabundin breyting á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga

Mál 1509120 Fyrst á dagskrá 21. september 2015, síðast 1. október 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2015

    Bæjarráð, fundur 443 liður 12

    Fram lagt bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um tímabundna breytingu verkaskiptingar og framlengingu á gildistíma viðauka við samkomulag rikis og sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til námsins á móti framlögum sveitarfélaga vegna annarra verkefna ríkisins.

    Bæjarráð telur að vegna framlaga til jöfnunar á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms þurfi að leiðrétta þann mismun sem er vegna raunkostnaðar sveitarfélagsins til tónlistarskóla sem taka við nemendum frá Fjarðabyggð og þeirra framlaga sem koma frá Jöfnunarsjóði. Sveitarfélagið á að fá miðað við núverandi reglur úthlutað frá Jöfnunarsjóðs að hámarki 50% kostnaðarins greiddan rúmist hann innan fjárheimilda sjóðsins vegna málaflokksins, þ.e. 7. greinar. Er að mati bæjarráðs með öllu óviðunandi að ekki sé að fullu tryggt fjármagn vegna þeirra nemenda sbr. reglur en framlag hefur ekki náð tilgreindum 50%.

  2. Bæjarstjórn, fundur 186 liður 1.12

    Fundargerðin „Bæjarráð - 443“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is