Eftirfylgni með úttekt á Grunnskólanum á Eskifirði
Mál 1508022 Fyrst á dagskrá 20. september 2015, síðast 1. október 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: EskifjörðurSkólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Fræðslunefnd, fundur 20 liður 1
Haustið 2013 gerði mennta- og menningarmálaráðuneytið úttekt á Grunnskóla Eskifjarðar og var úttektin hluti af ytra eftirliti ráðuneytisins en nokkrir skólar á landinu fara í úttekt á hverju ári. Eins og fram kom í skýrslu um úttektina sem finna má á vef ráðuneytisins kom skólinn vel út úr úttektinni en jafnframt voru settar fram hugmyndir um úrbætur. Unnið hefur verið að úrbótum og orðið við flestum hugmyndum sem fram voru settar og svar sent til ráðuneytis. Fræðslunefnd þakkar skólastjórnendum og starfsfólki fyrir góða vinnu.
-
Bæjarstjórn, fundur 186 liður 4.1
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 20“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.