Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 20

20. september 2015, kl. 16:00 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Pálína Margeirsdóttir, formaður
  • Lísa Lotta Björnsdóttir, varaformaður
  • Magni Þór Harðarson, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Aðalheiður Vilbergsdóttir, varamaður
  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Ásta Ásgeirsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 444 liður 18

    Fundargerð fræðslunefndar frá 23. september s.l. lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 186 liður 4

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 23. september s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Eftirfylgni með úttekt á Grunnskólanum á Eskifirði

    Mál 1508022 Allur ferill málsins

    Haustið 2013 gerði mennta- og menningarmálaráðuneytið úttekt á Grunnskóla Eskifjarðar og var úttektin hluti af ytra eftirliti ráðuneytisins en nokkrir skólar á landinu fara í úttekt á hverju ári. Eins og fram kom í skýrslu um úttektina sem finna má á vef ráðuneytisins kom skólinn vel út úr úttektinni en jafnframt voru settar fram hugmyndir um úrbætur. Unnið hefur verið að úrbótum og orðið við flestum hugmyndum sem fram voru settar og svar sent til ráðuneytis. Fræðslunefnd þakkar skólastjórnendum og starfsfólki fyrir góða vinnu.

  2. 2. Eftirfylgni með úttekt á Leikskólanum Lyngholti

    Mál 1508021 Allur ferill málsins

    Haustið 2012 gerði mennta- og menningarmálaráðuneytið úttekt á leikskólanum Lyngholti og var úttektin hluti af ytra eftirliti ráðuneytisins en nokkrir leikskólar á landinu fara í úttekt á hverju ári. Eins og fram kom í skýrslu um úttektina sem finna má á vef ráðuneytisins kom skólinn vel út úr úttektinni en jafnframt voru settar fram hugmyndir um úrbætur. Unnið hefur verið að úrbótum og orðið við flestum hugmyndum sem fram voru settar og svar sent til ráðuneytis. Fræðslunefnd þakkar skólastjórnendum og starfsfólki fyrir góða vinnu.

  3. 3. Starfs- og fjárhagsáætlun 2016 í fræðslumálum

    Mál 1508025 Allur ferill málsins

    Unnið var í drögum að starfs-og fjárhagsáætlun 2016. Frestað til næsta fundar.

  4. 4. Efling hinsegin fræðslu í grunnskólum Fjarðabyggð - Tillaga Fjarðalistans á fundi bæjarstjórnar nr. 183

    Mál 1508032 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra þar sem fram kemur tillaga fræðslustjóra og skólastjóra um útfærsla á hinsegin fræðslu í grunnskólum Fjarðabyggðar. Lagt er til að samið verði um árlega heimsókn samtakanna "78 í skólana og jafnframt fengin ráðgjöf og námsefni frá samtökunum um hvernig best verði að frekari fræðslu staðið í hverjum skóla. Fræðslunefnd styður framkomna hugmynd.