Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 21

7. október 2015, kl. 16:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Pálína Margeirsdóttir, formaður
  • Lísa Lotta Björnsdóttir, varaformaður
  • Magni Þór Harðarson, aðalmaður
  • Óskar Þór Guðmundsson, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Bryndís Guðmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 187 liður 7

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 7.október s.l. staðfest með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. 16.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um styrkingu leikskóla og fæðingarorlofs

    Mál 1509193 Allur ferill málsins

    Fram er lögð til kynningar og umsagnar þingsályktunartillaga um skipan starfshóps sem geri tillögur um a) hvernig staðið skuli að lengingu fæðingarorlofs í 18 mánuði og fjármögnun verkefnisins, b)afmörkun þess tímaskeiðs sem sveitarfélög hafi til að byggja upp leikskóla sína þannig að þeir geti tekið við öllum 12 mánaða börnum í gjaldfrjálsan leikskóla og hvernig það verkefni verði fjármagnað og c) nauðsynlegar lagabreytingum til að styrkja stöðu leikskólanna sem fyrsta skólastigsins í menntakerfi landsins. Fræðslunefnd gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

  2. 2. Skólaþing sveitarfélaga 2.nóvember 2015

    Mál 1509198 Allur ferill málsins

    Lögð er fram til kynningar dagskrá skólaþings sveitarfélaga sem haldið verður í Reykjavík 2. nóvember 2015. Meginviðfangsefni þingsins eru læsi og vinnumat kennara. Formaður fræðslunefndar mun sitja fundinn.

  3. 3. Gjaldskrár í fræðslumálum 2016

    Mál 1510013 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur samanburður fræðslustjóra á gjaldskrám í fræðslumálum hjá sex sveitarfélögum sem flest eru af svipaðri stærð og Fjarðabyggð. Fræðslunefnd fór yfir gjaldskrár í fræðslumálum og leggur til við bæjarráð að gjaldskrár 2016 hækki um 4,3% en það er í samræmi við forsendur fjárhagsramma nefndarinnar. Vísað til bæjarráðs.

  4. 4. Starfs- og fjárhagsáætlun 2016 í fræðslumálum

    Mál 1508025 Allur ferill málsins

    Farið var yfir drög að starfsáætlun 2016 í fræðslumálum. Nefndin samþykkir drögin og vísar þeim áfram til bæjarráðs. Farið var yfir tillögu að skiptingu fjárheimilda milli fræðslustofnana. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og vísar henni áfram til bæjarráðs. Óskað hefur verið eftir lengri opnunartíma í leikskólum Fjarðabyggðar um 15 mínútur að morgni og 15 mínútur seinni hluta dags. Lagt fram minnisblað fræðslustjóra um áætlaðan kostnað. Kostnaður við lengri opnun rúmast ekki innan fjárheimilda nefndarinnar en nefndin vill gjarnan verða við þeirri ósk og beinir því til bæjarráðs að auka fjárheimildir nefndarinnar sem nemur kostnaði við lengri opnun.