Fræðslunefnd, fundur 22
11. nóvember 2015, kl. 16:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Pálína Margeirsdóttir, formaður
- Lísa Lotta Björnsdóttir, varaformaður
- Óskar Þór Guðmundsson, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Hildur Ýr Gísladóttir, varamaður
- Þóroddur Helgason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 452 liður 17
Fundargerð fræðslunefndar nr. 22, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 190 liður 5
Til máls tóku: Pálína Margeirsdóttir, Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð fræðslunefndar frá 11. nóvember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Kynning skólastjórnenda
Mál 1511071 Allur ferill málsins
Á næstu fundum fræðslunefndar munu skólastjórnendur vera með kynningu á starfi skólanna og ræða um starfsemina við nefndina. Skólastjórar Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar og Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar hófu vegferðina og kynntu starf skólanna fyrir fræðslunefnd. Fræðslunefnd þakkar fyrir greinargóðar kynningar.
-
2. Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 2015
Mál 1510143 Allur ferill málsins
Fundargerð aðalfundar Skólaskrifstofu Austurlands 2015 ásamt endurskoðendaskýrslu og ársreikningi 2014 lögð fram til kynningar.
-
3. Samstarf skóla á Austurlandi um bættan námsárangur nemenda í læsi og stærðfræði
Mál 1406128 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri greindi frá vinnu við verkefnið bættur námsárangur á Austurlandi og framvindu verkefnisins í Fjarðabyggð. Verkefnið gegnur vel og samkvæmt áætlun.
-
4. Dagur leikskólans 6. febrúar 2016
Mál 1511001 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar bréf samstarfshóps um Dag leikskólans, en hann verður haldinn hátíðlegur í níunda sinn 6. febrúar 2016. Að þessu sinni er sjónum m.a. beint að sköpunarkrafti sem birtist í tónlistarmyndbandagerð. Fræðslunefnd lýsir ánægju með framtakið og óskar leikskólum velfarnaðar við undirbúning dagsins.
-
5. Breytingar á aðalnámskrá grunnskóla, kaflar 9.4, 9.5 og 18.4
Mál 1510094 Allur ferill málsins
Borist hefur bréf frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem tilkynnt er um breytingar á aðalnámskrá grunnskóla. Helsta breytingin er að við námsmatskvarðann er bætt B+ og C+ og námsmatskvarðinn því A, B+, B, C+, C og D og byggir námsmatskvarðinn á hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Kvarðinn fyrir námssvið og lykilhæfni er tekinn út og ekki gert ráð fyrir einkunn í lykilhæfni á vitnisburðarskírteini í lok grunnskóla. Áfram er unnið með lykilhæfni á öllum námssviðum og lagt mat á hana í öllum árgöngum. Lagt fram til kynningar.
-
6. Breyting á aðalnámskrá framhaldsskóla
Mál 1511037 Allur ferill málsins
Fyrir liggur bréf frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem vísað er í breytingar á aðalnámskrá grunnskóla hvað varðar námsmatskvarða og lykilhæfni, sjá mál nr. 1510094 framar í fundargerðinni. Aðalnámskrá framhaldsskóla hefur verið breytt í takt við þá breytingu og framhaldsskólar munu innrita samkvæmt nýjum námsmatskvarða vorið 2016. Lagt fram til kynningar.
-
7. Ungt fólk 2015 - Grunnskólar 5-7.bekk
Mál 1510165 Allur ferill málsins
Fyrir liggja niðurstöður úr æskulýðsrannsókninni Ungt fólk 2015, 5.-7. bekkur grunnskóla, menntun, menning, félags- íþrótta- og tómstundir, íþróttaiðkun, heilsuhegðun, heilsuvísar, líðan og framtíðarsýn ungmenna í 5.-7. bekk á Íslandi. Niðurstöður má finna á vef menntamálaráðuneytisins, www.mentamalaraduneyti.is og á vef Rannsókna og greiningar, www.rannsoknir.is. Lagt fram til kynningar.
-
8. Framlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda 2016
Mál 1509070 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga í Innanríkisráðuneytinu um framlög fyrir árið 2016 vegna sérþarfa fatlaðra nemenda. Áætlað framlag til Fjarðabyggðar er 13.200.000 kr. Lagt fram til kynningar.
-
9. Framlög vegna nýbúafræðslu 2016
Mál 1509071 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga í Innanríkisráðuneytinu um framlög fyrir árið 2016 vegna nýbúafræðslu barna með tvítyngi. Úthlutað var framlagi til 102 nýbúa í Fjarðabyggð að upphæð 13.260.000 kr. Lagt fram til kynningar.
-
10. Gjaldskrár í fræðslumálum 2016
Mál 1510013 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd leggur til breytingu á gjaldskrá í fræðslumálum 2016. Nefndin leggur til að aukagjald verði lagt á vistun umfram 8 stundir og boðið verði upp á hámark 9 stunda vistun í stað 8,5 stunda. Nefndin felur fræðslustjóra að semja minnisblað á grundvelli þeirrar umræðu sem fram fór í nefndinni.
-
11. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016
Mál 1506139 Allur ferill málsins
Fyrir liggur undirritað bréf bæjarstjóra til fræðslunefndar þar sem óskað er eftir því að fræðslunefnd vinni að frekari hagræðingu í fræðslumálum og kanni m.a. hvort svigrúm sé til staðar út frá úthlutunarmódeli kennslutímamagns. Óskað er eftir tillögum til bæjarráðs fyrir 13. nóvember. Einnig liggur fyrir minnisblað bæjarstjóra til bæjarráðs þar sem fram kemur m.a. að stefnt sé að því markmiði á milli fyrri og seinni umræðu um fjárhagsáætlun 2016 að hagræða í fræðslumálum um 12,5 - 15 milljónir frá áður úthlutuðum fjárhagsramma. Fræðslunefnd ásamt fræðslustjóra fór yfir stöðu málaflokksins og skoðaði leiðir til að ná fram settu markmiði. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að semja minnisblað á grundvelli þeirrar umræðu með tillögu að frekari hagræðingu uppá 12,5 -15 milljónir.
-
12. Starfs- og fjárhagsáætlun 2016 í fræðslumálum
Mál 1508025 Allur ferill málsins
Fyrir liggur drög að starfs- og fjárhagsáætlun sem fór til fyrri umræðu um fjárhagsáætlun 2016. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að gera breytingar á áætlunum í takt við niðurstöðu nefndarinnar um frekari hagræðingu uppá 12,5 - 15 milljónir og tillögu nefndarinnar um breytingu á gjaldskrá.