Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Breytingar á aðalnámskrá grunnskóla, kaflar 9.4, 9.5 og 18.4

Mál 1510094 Fyrst á dagskrá 11. nóvember 2015, síðast 19. nóvember 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2015

    Fræðslunefnd, fundur 22 liður 5

    Borist hefur bréf frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem tilkynnt er um breytingar á aðalnámskrá grunnskóla. Helsta breytingin er að við námsmatskvarðann er bætt B+ og C+ og námsmatskvarðinn því A, B+, B, C+, C og D og byggir námsmatskvarðinn á hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Kvarðinn fyrir námssvið og lykilhæfni er tekinn út og ekki gert ráð fyrir einkunn í lykilhæfni á vitnisburðarskírteini í lok grunnskóla. Áfram er unnið með lykilhæfni á öllum námssviðum og lagt mat á hana í öllum árgöngum. Lagt fram til kynningar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 190 liður 5.5

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 22“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is