Fræðslunefnd, fundur 23
9. desember 2015, kl. 16:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Pálína Margeirsdóttir, formaður
- Lísa Lotta Björnsdóttir, varaformaður
- Óskar Þór Guðmundsson, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Hildur Ýr Gísladóttir, varamaður
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Bryndís Guðmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Einar Már Sigurðarson, áheyrnarfulltrúi
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 192 liður 6
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 9. desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Kynning skólastjórnenda
Mál 1511071 Allur ferill málsins
Skólastjórar Nesskóla, Grunnskóla Reyðarfjarðar, Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar og Tónskóla Neskaupstaðar kynntu starf skólanna og ræddu við nefndina um starfsemi þeirra. Fræðslunefnd þakkar skólastjórum fyrir greinargóðar kynningar.
-
2. Niðurstöður úr Skólavoginni
Mál 1311034 Allur ferill málsins
Farið var yfir nýjar upplýsingar úr Skólavoginni, en Skólavogin er upplýsinga- og greiningakerfi fyrir sveitarfélög. Farið var yfir niðurstöður úr nemendakönnun grunnskóla frá haustinu 2015 og rekstrarupplýsingar fyrir árið 2014. Farið er yfir niðurstöður nemendakönnunar í hverjum skóla og niðurstöður birtar á heimasíðum þeirra.
-
3. Fundur fræðslustjóra og forstöðumanna skólaskrifstofa með mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Jöfnunarsjóði
Mál 1512016 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri gerði nefndinni grein fyrir fundi fræðslustjóra og forstöðumanna skólaskrifstofa með mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Jöfnunarsjóði, sem haldinn var 27. nóvember. Minnisblað fræðslustjóra lagt fram til kynningar.