Bæjarstjórn, fundur 192
17. desember 2015, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Ævar Ármannsson, varamaður
- Kristín Gestsdóttir, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, varamaður
- Stefán Már Guðmundsson, varamaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Dagskrá
-
1. Bæjarráð - 455
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O Hermannsson, Stefán Már Guðmundsson.
Fundargerð bæjarráðs 7. desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
-
2. Bæjarráð - 456
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 14. desember s.l. utan liðar 11 staðfest með 9 atkvæðum.
Lið 11 er vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs ásamt mati á gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð.
Samþykkt með 9 atkvæðum.
-
3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 133
Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Jón Björn Hákonason.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar 11. desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
-
4. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 134
Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 14.desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
-
5. Hafnarstjórn - 157
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 8. desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
- 5.1 Fjarðabyggð til framtíðar - Trúnaðarmál1411075
- 5.2 Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 20151501066
- 5.3 Fundargerðir CI á árinu 20151501065
- 5.4 Þátttaka á sölusýningu skemmtiferðaskipa í Fort Lauderdale 14. til 17 mars 20161511123
- 5.5 Aðstöðuhús við smábátahafnir1503148
- 5.6 Smábátahöfn Stöðvarfirði - Umhverfisfrágangur1211017
- 5.7 Svæði til geymslu tómra og fullra gastanka1111103
- 5.8 Tjón á Norðfirði - Scombrus siglir á tunnu á skjólgarði1511125
- 5.9 Umsókn um byggingarlóð - Hraun 81511112
- 5.10 Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir capt. Grinchenko Gennady á Marmakira1511114
-
6. Fræðslunefnd - 23
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 9. desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
-
7. Menningar- og safnanefnd - 19
Til máls tóku: Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 10.desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
- 7.1 Afnot af Félagsheimilinu Valhöll
- 7.2 Afnot af félagsheimilinu Valhöll fyrir jólatrésskemmtun
- 7.3 Beiðni um Bókasafn Náttúrustofu Austurlands verði vistað sem safnadeild undir bókasafni Neskaupstaðar
- 7.4 Eistnaflug 2016
- 7.5 Safnaleiðsagnarkerfi
- 7.6 Skilti og merkingar
- 7.7 Umsókn um styrk til menningarstarfs - leiksýning
- 7.8 Úrsögn úr stjórn Safnaráðs
- 7.9 Rekstur Egilsbúðar
- 7.10 Minjar úr Norðfjarðargöngum
- 7.11 Fjölnotavarðveisluhús
-
8. Íþrótta- og tómstundanefnd - 17
Til máls tóku: Kristín Gestsdóttir, Stefán Már Guðmundsson, Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 10.desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
- 8.1 Íþróttamaður Fjarðabyggðar 2015
- 8.2 Samgöngumál íþróttafólks
- 8.3 Starfsemi Ungmenna og íþróttasambands Austurlands, UÍA 2015
- 8.4 Framtíð útivistarsvæða á Eskifirði
- 8.5 Akstur milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar vegna sundæfinga
- 8.6 Fundur ungmennaráðs Fjarðabyggðar
-
9. Fundargerðir félagsmálanefndar 2015
Mál 1501132 Allur ferill málsins
Enginn tók til máls:
Fundargerð félagsmálanefndar nr.78 frá 8. desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
-
10. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2015
Mál 1501273 Allur ferill málsins
Enginn tók til máls.
Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 60 frá 10.desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
-
11. 750 Deiliskipulag urðunarstaðar í Þernunesi
Mál 1509171 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagstillögunni úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa tillögu að deiliskipulagi urðunarstaðar í Þernunesi.
Tillagan er sett fram á uppdrætti, greinargerð og umhverfisskýrslu, dags. 26. nóvember 2015. Deiliskipulagstillagan afmarkar um 31,1 ha svæði í landi Þernuness Þar sem gert er gert ráð fyrir urðun á allt að 4.000 tonnum á ári á tveimur urðunarsvæðum, Mýrdal annars vegar, þar sem gert er ráð fyrir að urða almennan úrgang, og Auratúni hins vegar, þar sem timbur og óvirkur úrgangur er urðaður. Urðun hefur átt sér stað á svæðinu samkvæmt starfsleyfi sem rennur út 1. júlí 2018. Tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
-
12. Reglur Fjarðabyggðar um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks
Mál 1210150 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Reglur um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks samþykktar með 9 atkvæðum.
-
13. Reglur um fjárhagsaðstoð
Mál 1009112 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Reglur um fjárhagsaðstoð samþykktar með 9 atkvæðum.
-
14. Breytingar á stjórnskipulagi Fjarðabyggðar 2015
Mál 1410097 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fylgdi tillögum að breytingum á stjórnskipulagi Fjarðabyggðar úr hlaði.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson.
Tillaga bæjarráðs til bæjarstjórnar
Lögð fram tillaga bæjarráðs í greinargerð um endurskoðað skipulag stjórnsýslu Fjarðabyggðar. Bæjarráð hefur í umboði bæjarstjórnar sem stjórnkerfisnefnd unnið að skoðun stjórnsýslunnar og komið fram með tillögur að nýju skipulagi á framkvæmdasviði sveitarfélagsins ásamt tillögum að skilgreiningum starfa er breytingunni tengjast. Bæjarráð leggur til að starfsemi sveitarfélagsins verði áfram skipt í tvö stoðsvið, tvö fagsvið og að Fjarðabyggðarhafnir verði sem fyrr sjálfstætt B-hluta fyrirtæki og hluti af yfirstjórn Fjarðabyggðar
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
1.
Lagðar eru fram breytingar á framkvæmdasviði sveitarfélagsins sem framvegis beri heitið framkvæmda-, umhverfis- og veitusvið Fjarðabyggðar. Sviðinu verði annars vegar falið að annast alla tæknilega innviði Fjarðabyggðar og hins vegar að annast, á grundvelli þjónustusamnings, rekstur, viðhald og nýframkvæmdir við Fjarða-byggðarhafnir. Starfsemi framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs skiptist í fjórar starfseiningar; umhverfis- og landbúnaðarmál, eignaumsjón Fjarðabyggðar, veitur og framkvæmda- og þjónustumiðstöð. Lagt er til að gerðar verði viðeigandi breytingar á starfslýsingum og störfum sviðsins sem nauðsynlegar eru til að þau markmið sem stefnt er að nái fram að ganga.
2.
Þá er lagt til að byggingar- og skipulagsfulltrúi, slökkviliðsstjóri og Slökkvilið Fjarða-byggðar heyri undir bæjarstjóra.
Markmið ofangreindra breytinga er annars vegar að nýta betur þekkingu og reynslu starfsmanna, tæki og kaupkraft sveitarfélagsins á sviði framkvæmda, eignaumsýslu og við rekstur hafna. Hins vegar að færa hrein stjórnsýsluleg verkefni eins og skipulagsmál og byggingarmál frá framkvæmdasviði til bæjarstjóra, auk umsýslu og samskipta vegna Slökkviliðs Fjarðarbyggðar. Þannig geti sviðsstjóri framkvæmda- umhverfis- og veitusviðs einbeitt sér betur að rekstri tæknilegra innviða sveitarfélagsins og hafnarinnar og leitt þá samþættingu sem að er stefnt.
Þá verði atvinnu- og þróunarstjóri framvegis í skipuriti sveitarfélagsins, en bæjarráð ákvað á fundi sínum 12. október sl. að auglýsa starfið. Er starfið á vettvangi atvinnuþróunar og tengdra verkefna talið mjög mikilvægt fyrir sveitarfélagið þó starfið kunni að þróast frekar enda sé reynsla af starfi verkefnastjóra í atvinnumálum góð.
Bæjarstjórn samþykkir tillögur stjórnkerfisnefndar eins og þær koma fram í þeirri greinagerð sem meðfylgjandi er málinu og þær breytingar sem lagðar eru til á störfum er fylgja breytingunni. Þá er bæjarstjóra falið að framkvæma þær tillögur og ráðstafanir sem fylgja samþykkt tillögunnar.