Bæjarstjórn, fundur 193
21. janúar 2016, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður
- Ævar Ármannsson, varamaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, varamaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Jens Garðar Helgason, aðalmaður
- Sævar Guðjónsson, varamaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Dagskrá
-
1. Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Fjarðabyggðar 2016 - 2020
Mál 1512064 Allur ferill málsins
Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Fjarðabyggðar 2016 - 2020 lögð fram ásamt minnisblaði slökkviliðsstjóra. Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði. Enginn tók til máls. Bæjarstjórn samþykkir Brunavarnaráætlun Slökkviliðs Fjarðabyggðar með 9 atkvæðum en framkvæmd og framgangur áætlunarinnar er skilyrt fjárhags- og starfsáætlun hvers árs og staðfestingu bæjarstjóra á útgjöldum slökkviliðs er áætluninni tengjast.
-
2. Fjárhagsáætlun 2015 - viðauki 6
Mál 1601146 Allur ferill málsins
Viðauki nr.6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2015, lagður fram til samþykktar. Viðauki þessi tekur á tilflutningi liða innan áætlunar varðandi samþykktir bæjarráðs, endurmenntun og veikindalaun en einnig áhrif nýrra kjarasamninga á áætlunina.
Viðaukinn felur í sér ráðstöfun af liðnum Óráðstafað í málaflokki 21 kr. 6.925.000 á ýmsa málaflokka í samræmi við samþykktir bæjarráðs á árinu 2015. Ráðstöfunin hefur engin áhrif á heildarniðurstoðu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2015. Sömuleiðis felur viðaukinn í sér ráðstöfun af sameiginlegum kostnaði í málaflokki 21 kr. 1.163.698 á ýmsa málaflokka í samræmi við reglur um námsstyrki. Ráðstöfunin hefur engin áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2015. Einnig felur viðaukinn í sér ráðstöfun af sameiginlegum kostnaði í málaflokki 21 kr. 10.928.300 á ýmsa málaflokka í samræmi við reglur um langtímaveikindi starfsmanna. Ráðstöfunin hefur engin áhrif á heildarniðurstoðu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2015. Að lokum hefur viðaukinn í för með sér aukinn launakostnað í flestum málaflokkum Fjarðabyggðar og stofnana að upphæð kr. 79.149.162 og hækkar fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2015 um sömu upphæð.
Samtals eru áhrifin af auknum rekstrarkostnaði á árinu 2015 kr. 79.149.162 og mun rekstrarniðurstaða samstæðu Fjarðabyggðar lækka um sömu niðurstöðu. Jafnframt er lagt til að fjármagna aukinn rekstrarkostnað með lækkun á eigin fé samstæðu Fjarðabyggðar.
Handbært fé aðalsjóðs mun lækka um sömu upphæð eða kr. 79.149.162 til samræmis við ofangreint og verða kr. 240.630.000 í árslok 2015.
Bæjarstjóri fylgdi viðauka úr hlaði. Til máls tóku Jens Garðar Helgason og Einar Már Sigurðarson. Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2015 með 9 atkvæðum.
-
3. Bæjarráð - 457
Fundargerðir bæjarráðs nr. 457, 458, 459 og 460 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson, Sævar Guðjónsson og Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð bæjarráðs nr. 457 frá 21. desember 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
-
4. Bæjarráð - 458
Fundargerðir bæjarráðs nr. 457, 458, 459 og 460 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson, Sævar Guðjónsson og Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð bæjarráðs nr. 458 frá 4. janúar 2016, utan 3.liðar, samþykkt með 9 atkvæðum.
-
5. Bæjarráð - 459
Fundargerðir bæjarráðs nr. 457, 458, 459 og 460 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson og Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð bæjarráðs nr. 459 frá 11. janúar 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 5.1 Rekstur málaflokka 2015 - TRÚNAÐARMÁL1503049
- 5.2 Bréf til stofnaðila ásamt fjárhagsáætlun Austurbrúar 20161601065
- 5.3 Eistnaflug 20161510059
- 5.4 Beiðni um afnot íþróttahúss vegna þorrablóts1601067
- 5.5 Rekstur Egilsbúðar1012090
- 5.6 Uppgröftur í Stöð1509028
- 5.7 Útboð meðhöndlunar úrgangs í Fjarðabyggð1506058
- 5.8 Erindi íbúðalánasjóðs til sveitarstjórnar1510071
- 5.9 Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES1411143
- 5.10 Hafnarstjórn - 1581601002F
-
6. Bæjarráð - 460
Fundargerðir bæjarráðs nr. 457, 458, 459 og 460 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jens Garðar Helgason og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs nr. 460 frá 18. janúar 2016, utan 1.liðar, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 6.1 735 Strandgata 122 - Umsókn um stækkun á lóð1601062
- 6.2 Bréf til sveitarfélaga vegna vinnu um samræmda afmörkun lóða1601068
- 6.3 Stjórnarfundir Skólaskrifstofu Austurlands 2015 og 20161601140
- 6.4 Útgáfa bókar í minningu Árna Steinars1511108
- 6.5 Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Fjarðabyggðar 2016 - 20201512064
- 6.6 Fjárhagsáætlun 2015 - viðauki 61601146
- 6.7 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1351601004F
- 6.8 Fræðslunefnd - 241601003F
- 6.9 Menningar- og safnanefnd - 201601007F
- 6.10 Fundargerðir barnaverndarnefndar 20151501273
-
7. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 135
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 135 frá 11. janúar 2016, utan 4.liðar, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 7.1 730 Ægisgata 9 - Framlenging á lóðaleigusamningi1601006
- 7.2 735 Strandgata 96 Byggingarleyfi - rífa og endurreisa viðbyggingu1512038
- 7.3 740 Bakkabakki 6a - Byggingarleyfi - breytinga á glugga1601022
- 7.4 735 Strandgata 122 - Umsókn um stækkun á lóð1601062
- 7.5 Lóðamörk við Strandgötu 95 og Strandgötu 97; 7351507071
- 7.6 Útleiga fasteigna til ferðamanna1601064
- 7.7 Fortitude1504147
- 7.8 Ósk um umsögn vegna starfsleyfisvinnslu fyrir Vélhjólaíþróttahklúbb Fjarðabyggðar1601028
- 7.9 Óveðurstjón í desember 20151512096
- 7.10 Leikskóli Neseyri - lóðar- og gatnaframkvæmdir1510088
- 7.11 740 Byggingareftirlit leikskóli Neseyri1505026
- 7.12 Jarðsig á Sandskeiði á Eskifirði1512093
- 7.13 Afgreiðslur byggingafulltrúa - 711601005F
-
8. Hafnarstjórn - 158
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 158 frá 5. janúar 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 8.1 Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 20151501066
- 8.2 Fundargerðir CI á árinu 20151501065
- 8.3 Norðfjörður - Fylling og stálþil á þróunarsvæði1503131
- 8.4 Óveðurstjón í desember 20151512096
-
9. Fræðslunefnd - 24
Til máls tók Pálína Margeirsdóttir.
Fundargerð fræðslunefndar nr. 24 frá 13. janúar 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 9.1 Kynning skólastjórnenda1511071
- 9.2 Sumarlokun leikskóla 20161601041
-
10. Menningar- og safnanefnd - 20
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð menningar- og safnanefndar nr. 20 frá 14. janúar 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 10.1 Menningarstefna
- 10.2 Málefni Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar 2016
- 10.3 Óveðurstjón í desember 2015
- 10.4 Rekstur Egilsbúðar
- 10.5 Uppgröftur í Stöð
- 10.6 Menningarstyrkir menningar- og safnanefndar 2016
-
11. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2015
Mál 1501273 Allur ferill málsins
Enginn tók til máls.
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 61 frá 14. janúar 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.