Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 459

11. janúar 2016, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 193 liður 5

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 457, 458, 459 og 460 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson og Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 459 frá 11. janúar 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2015 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1503049 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Framlagt sem trúnaðarmál málaflokkayfirlit um rekstur og framkvæmdir janúar - nóvember 2015 ásamt yfirliti yfir skatttekjur og launakostnað fyrir allt árið 2015.

  2. 2. Bréf til stofnaðila ásamt fjárhagsáætlun Austurbrúar 2016

    Mál 1601065 Allur ferill málsins

    Framlag til kynningar bréf Austurbrúar ses. til stofnaðila ásamt skýringum á fjárhagsáætlun fyrir árið 2016.

  3. 3. Eistnaflug 2016

    Mál 1510059 Allur ferill málsins

    Rætt um fyrirkomulag Eistnaflugs 2016 og ákvörðun um fyrirkomulag tjaldsvæðagjalds.

    Minnisblað lagt fram.

    Bæjarráð samþykkir tillögur sem lagðar er fram í minnisblaði.

  4. 4. Beiðni um afnot íþróttahúss vegna þorrablóts

    Mál 1601067 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá G.V. Hljóðkerfum ehf. þar sem óskað er eftir afnotum af íþróttahúsinu í Neskaupstað þann 30. janúar nk. undir Þorrablót Alþýðubandalagsins.

    Bæjarráð samþykkir að heimila afnot af íþróttahúsinu á Norðfirði á árinu 2016 fyrir Þorrablót Alþýðubandalagsins til samræmis við önnur afnot þorrablóta í Fjarðabyggð af íþróttahúsum.

    Vísað til forstöðumanns íþróttamiðstöðvarinnar til úrvinnslu og samráðs við hlutaðeigandi.

  5. 5. Rekstur Egilsbúðar

    Mál 1012090 Allur ferill málsins

    Ósk frá G.V. Hljóðkerfum ehf. um viðræður vegna leigu á félagsheimilinu Egilsbúð, en leiga á félagsheimilinu var boðin út skv. samningskaupalýsingu í desember 2015. Viðræður hafa farið fram. Lagt fram minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu auk draga að samningi Fjarðabyggðar og G.V. hljókerfa. Bæjarráð samþykkir drög að samningi um útleigu Egilsbúðar við G.V. hljóðkerfi ehf. og felur bæjarstjóra undirritun hans. Þá samþykkir bæjarráð tillögu bæjarstjóra er varðar viðhaldsmál félagsheimilisins. Þá er framlagður tölvupóstur frá Ragnheiði Helenu Ólfsdóttur fyrir hönd Pizzafjarðar ehf. vegna útboðsins, merktur trúnaðarmál.

  6. 6. Uppgröftur í Stöð

    Mál 1509028 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar yfirlýsing um uppgröft á Stöð í Stöðvarfirði og upplýsingar um framhald verkefnisins. Vísað til menningar- og safnanefndar.

  7. 7. Útboð meðhöndlunar úrgangs í Fjarðabyggð

    Mál 1506058 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Framlagður verksamningur um meðhöndlun úrgangs til samræmis við útboð á meðhöndlun úrgangs.

    Bæjarráð samþykkir verksamning við Íslenska gámafélagið hf. og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  8. 8. Erindi íbúðalánasjóðs til sveitarstjórnar

    Mál 1510071 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sátu forstjóri Íbúðalánasjóðs Hermann Jónasson og Ágúst Kr. Björnsson forstöðumaður fasteigna sjóðsins. Jafnframt sat Valur Sveinsson skipulags- og byggingarfulltrúi þennan lið fundarins.

    Farið yfir málefni sjóðsins í Fjarðabyggð og eignir sem sjóðurinn á.

  9. 9. Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES

    Mál 1411143 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sátu Gunnar Backmann, Kristinn Hauksson og Guðjón Már Jónsson frá Eflu verkfræðistofu.

    Fjallað um skýrslu Eflu verkfræðistofu um ljósleiðaravæðingu í Fjarðabyggð, merkt sem trúnaðarmál, sem unnin var í framhaldi af samþykkt bæjarráðs frá 24. ágúst og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 28.ágúst. Skýrslan er unnin eftir gátlista Póst- og fjarskiptastofnunar vegna 1.áfanga í ljósleiðaravæðingu sem nýtur ríkisstyrkja.

    Bæjarráð samþykkir að fela Eflu verkfræðistofu að leggja fyrir bæjarráð tilboð í áframhaldandi vinnu við greiningu á fjarskiptamálum í Fjarðabyggð og næstu skref í verkefninu.

  10. 10. Hafnarstjórn - 158

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 5. janúar sl. lögð fram til kynningar.