Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 454

30. nóvember 2015, kl. 09:00 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 191 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 453 og 454 teknar til afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 30. nóvember s.l., staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umhverfisstefna hafna

    Mál 1111100 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sátu framkvæmdastjóri hafna og verkefnastjóri atvinnumála.

    Hafnarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 10. nóvember sl. umhverfis-, heilsu- og öryggisstefnu fyrir Fjarðabyggðarhafnir. Stefnunni var vísað til staðfestingar í bæjarstjórn. Meðfylgjandi er stefnan ásamt minnisblaði framkvæmdastjóra hafnanna.

    Bæjarráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. 2. Beiðni um stuðning

    Mál 1511144 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá Félagi eldri borgara á Fáskrúðsfirði þar sem óskað er eftir endurgjaldslausum afnotum af Félagsheimilinu Skrúð fyrir Bingó þann 1. desember nk.

    Bæjarráð samþykkir að styrkja félagið sem nemur húsaleigu af Skrúði. Tekið af liðnum óráðstafað 21690.

    Vísað til félagsmálastjóra.

  3. 3. Fjarðabyggð til framtíðar - Trúnaðarmál

    Mál 1411075 Allur ferill málsins

    Rætt um framvindu verkefna tengdum verkefninu Fjarðabyggð til framtíðar.

  4. 4. Leiðbeiningar um störf almannavarnarnefnda

    Mál 1511154 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um gerð leiðbeininga um störf almannavarnarnefnda á grundvelli stefnumörkunar sambandsins þar sem það leggur áherslu á að tryggð sé aðkoma sveitarfélaga við áætlanagerð í almannavörnum vegna gerð hættumats og viðbragðsáætlana vegna náttúruvár. Vísað til bæjarstjóra.

  5. 5. Tilkynning um breytingar á lögræðislögum

    Mál 1511138 Allur ferill málsins

    Framlögð tilkynning um breytingu sbr. lög nr. 84/2015 þar sem gerðar voru breytingar á lögræðislögum nr. 78/1997. Breytingarnar öðlast gildi 1. janúar 2016. Vísað til félagsmálastjóra.

  6. 6. Loftslagsmál og endurheimt votlendis

    Mál 1511155 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá Náttúruverndarsamtökum Austurlands þar sem vakin er athygli á mikilvægi endurheimtingu votlendis en samtökin hafa sótt um styrk til til Umhverfisráðuneytis til að vinna tillögu að tíu svæðum á Austurlandi þar sem endurheimta mætti ónýt votlendissvæði. Óskað er eftir samvinnu við sveitarfélögin í verkefninu. Framlagt og kynnt. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  7. 7. 263.mál til umsagnar frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði)

    Mál 1511095 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna frumvarps til laga um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, 263 mál.

  8. 8. Beiðni um styrk vegna samstarfsverkefnisins"Bændur græða landið" á árinu 2015

    Mál 1511141 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Landgræðslu ríkisins þar sem óskað er eftir framlagi til samstarfsverkefnisins "Bændur græða landið" en óskað er eftir framlagi að upphæð 18.000 kr.

    Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  9. 9. Tillaga að breyttri legu hringvegar um Berufjarðarbotn

    Mál 1511132 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar athugasemd við tillögu um breytta legu hringvegar um Berufjarðarbotn vegna hönnunar á gatnamótum við veginn um Öxi.

    Bæjarráð staðfestir athugasemd og vísar til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  10. 10. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2015

    Mál 1502053 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð 832. stjórnarfundar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

  11. 11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 132

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 23. nóvember sl., lögð fram til kynningar.