Bæjarráð, fundur 453
23. nóvember 2015, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, varamaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 191 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs nr. 453 og 454 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 23. nóvember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Menningarstefna
Mál 1306017 Allur ferill málsins
Formaður menningar- og safnanefndar og markaðs- og upplýsingafultrúi sátu þennan lið fundarins og kynntu vinnu við menningarstefnu. Reiknað er með að stefnan verði tekin til endanlegrar afgreiðslu í menningar- og safnanefnd fyrir áramót, en að því loknu verður stefnunni vísað til bæjarráðs að nýju.
-
2. Fjölskyldustefna Fjarðabyggðar
Mál 1411001 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fór yfir vinnu við fjölskyldustefnu. Vísað til áframhaldandi vinnu í bæjarráði.
-
3. Fjarðabyggð til framtíðar - Trúnaðarmál
Mál 1411075 Allur ferill málsins
Áframhaldandi umræða um mál sem hafa verið til umfjöllunar á síðustu vikum.
-
4. East Iceland Summer Academy 2016
Mál 1510181 Allur ferill málsins
Härjedalens Kulturcentrum, Flavia Devonas hefur sótt um 7.000 evra styrk ( um 1 milljón ISK) frá Fjarðabyggð, til að halda viðburð í formi vinnustofa sumarið 2016 í Neskaupstað. Búið er að sækja um styrk til Kultur Kontakt Nord. Menningar- og safnanefnd tók vel í erindið en hefur ekki fjármuni til að leggja í verkefnið. Því vísar nefndin málinu til bæjarráðs með ósk um framlag til verkefnisins, verði af því. Minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu lagt fram. Bæjarráð samþykkir að styrkja atburðinn ef af honum verður og aðrir styrkir til hans fást. Tekið af liðnum óráðstafað.
-
5. Styrkbeiðni - Leikfélag Norðfjarðar
Mál 1510104 Allur ferill málsins
Beiðni Leikfélags Norðfjarðar um styrk vegna húsaleigu sem hlaust af leiksýningum. Bæjarstjórn vísaði þessum lið í fundargerð menningar- og safnanefndar frá 12. nóvember sl. til bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir að styrkja sýninguna sem nemur greiddri húsaleigu.
-
6. Leyfi um aðstöðu í íþróttahúsi Reyðarfjarðar fyrir þorrablót 2016
Mál 1511110 Allur ferill málsins
Beiðni formanna Þorrablótsnefndar á Reyðarfirði um afnot af húsinu fyrir Þorrablóti í janúar 2016, með sama hætti og verið hefur undanfarin ár. Bæjarráð samþykkir afnot af húsinu fyrir þorrablótið.
-
7. Útgáfa bókar í minningu Árna Steinars
Mál 1511108 Allur ferill málsins
Stjórn samtaka garðyrkju- og umhvefisstjóra sveitarfélaga hyggur á útgáfu bókar til minningar um Árna Steinar Jóhannsson. Leitað er eftir þátttöku sveitarfélagsins. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til forstöðumanns stjórnsýslu til afgreiðslu.
-
8. 263.mál til umsagnar frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði)
Mál 1511095 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Í frumvarpi þessu er lagt til að auknum tekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna álagningar sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki samkvæmt lögum nr. 155/2010 frá miðju ári 2014 og út árið 2017, verði úthlutað til sveitarfélaga í samræmi við hlutdeild þeirra í álögðu heildarútsvari til að vega á móti þeim áhrifum sem lög nr. 40/2014, um séreignarsparnað og ráðstöfun hans til greiðslu húsnæðislána og húsnæðissparnaðar, hafa á útsvarstekjur sveitarfélaganna. Frumvarpið hefur hins vegar ekki áhrif á heildarframlög Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaganna.
-
9. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2015
Mál 1502135 Allur ferill málsins
Fundargerð 23. fundar frá 5.nóvember sl., lögð fram til kynningar.
-
10. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2015/2016
Mál 1509051 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra umboð til að staðfesta fyrirliggjandi samninga um vinnslu afla, vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2015/2016, sem og aðra þá samninga sem berast síðar til staðfestingar.
-
11. Vatnsveita Fjarðabyggðar - vatnsból Norðfirði
Mál 1103156 Allur ferill málsins
TRÚNAÐARMÁL. Jón Björn Hákonarson vék af fundi undir þessum lið. Minnisblað Hilmars Gunnlaugssonar lögmanns lagt fram sem trúnaðarmál. Málið er á dagskrá fundar eigna- skipulags- og umhverfisnefndar í vikunni og vísar bæjarráð málinu til afgreiðslu nefndarinnar.
-
12. Fundargerðir félagsmálanefndar 2015
Mál 1501132 Allur ferill málsins
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 77 frá 16. nóvember 2015, lögð fram til kynningar.