Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 460

18. janúar 2016, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, varamaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 193 liður 6

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 457, 458, 459 og 460 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 460 frá 18. janúar 2016, utan 1.liðar, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. 735 Strandgata 122 - Umsókn um stækkun á lóð

    Mál 1601062 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Sævars Guðjónssonar, f.h. Ferðaþjónustunnar á Mjóeyri ehf. dagsett 7. janúar 2016, þar sem sótt er um 583 m2 stækkun á lóðinni að Strandgötu 122 á Eskifirði þar sem fyrirhugað er að byggja tvö smáhýsi.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt fyrir sitt leyti að úthluta Ferðaþjónustunni á Mjóeyri stækkun á lóðinni að Strandgötu 122 og vísaði umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

    Bæjarráð samþykkir stækkun lóðar.

  2. 2. Bréf til sveitarfélaga vegna vinnu um samræmda afmörkun lóða

    Mál 1601068 Allur ferill málsins

    Bréf frá 8.janúar þar sem óskað er eftir afstöðu til ákveðinnar nálgunar, vegna vinnu um samræmda lóðaafmörkun. Frestur til athugasemda er til 1.mars nk. Vísað til afgreiðslu eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.

  3. 3. Stjórnarfundir Skólaskrifstofu Austurlands 2015 og 2016

    Mál 1601140 Allur ferill málsins

    Þrjár fundargerðir framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu Austurlands frá 22.desember, 30.desember og 12.janúar sl. lagðar fram til kynningar. Vístað til fræðslunefndar.

  4. 4. Útgáfa bókar í minningu Árna Steinars

    Mál 1511108 Allur ferill málsins

    Fyrirhugað er gefa út bók til minningar um Árna Steinar Jóhannsson. Bæjarráð samþykkir að styrkja útgáfu bókarinnar um kr. 300.000.

  5. 5. Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Fjarðabyggðar 2016 - 2020

    Mál 1512064 Allur ferill málsins

    Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Fjarðabyggðar 2016 - 2020 lögð fram ásamt minnisblaði slökkviliðsstjóra. Áætluninni er vísað til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd og til afgreiðslu í bæjarstjórn.

  6. 6. Fjárhagsáætlun 2015 - viðauki 6

    Mál 1601146 Allur ferill málsins

    Framlögð gögn vegna undirbúnings viðauka nr.6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2015. Viðauki þessi tekur á tilflutningi liða innan áætlunar varðandi samþykktir bæjarráðs, endurmenntun og veikindalaun en einnig áhrif nýrra kjarasamninga á áætlunina. Bæjarráð samþykkir að víðauka nr. 6, við fjárhagsáætlun ársins 2015, verði vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  7. 7. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 135

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 135 frá 11.janúar 2016, lögð fram til kynningar.

  8. 8. Fræðslunefnd - 24

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar nr. 24 frá 13. janúar 2016, lögð fram til kynningar.

  9. 9. Menningar- og safnanefnd - 20

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og safnanefndar nr. 20 frá 14. janúar 2016, lögð fram til kynningar.

  10. 10. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2015

    Mál 1501273 Allur ferill málsins

    Fundargerðir barnaverndarnefndar nr. 61 frá 14. janúar 2016, lögð fram til kynningar.