Bæjarráð, fundur 461
25. janúar 2016, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 194 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs nr. 461 og nr. 462 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 25. janúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Skammtímafjármögnun Fjarðabyggðar 2016
Mál 1601186 Allur ferill málsins
Lagt er til að bæjarráð heimili að framlengja í allt að eitt ár yfirdráttarheimild hjá Íslandsbanka.
Bæjarráð samþykkir að framlengja í allt að eitt ár yfirdráttarheimild hjá Íslandsbanka á greiðslureikningi Fjarðabyggðar fyrir allt að 200 milljónir króna.
-
2. Átaksverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni - Ræsing
Mál 1601221 Allur ferill málsins
Átaksverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni - Ræsing. Verkefnið hefur það að markmiði að auka fjölbreytni starfa. Lagt til að sveitarfélagið taki þátt í verkefninu með framlagi upp á eina milljón kr. sem takist af liðnum óráðstafað.
Bæjarráð samþykkir að leggja til verkefnisins eina milljón kr. og felur bæjarstjóra undirritun samnings. Bæjarstjóri verður fulltrúi í nefndinni. Tekið af liðnum óráðstafað 21690.
-
3. Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES
Mál 1411143 Allur ferill málsins
Farið yfir málið og framgang verkefnisins.
Bæjarritar falið að yfirfara gögn frá Eflu og leggja tillögu fyrir bæjarráð.
Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
4. Starfshópur um þróun almenningsamgangna á Austurlandi ( SvAust )
Mál 1601217 Allur ferill málsins
Samkvæmt ákvörðun aðalfundar og stjórnar SSA verður unnið að þróun almenningssamganga á Austurlandi.
Lagt fram til kynningar erindisbréf fyrir starfshóp um þróun almenningssamganga á Austurlandi auk minnisblaðs bæjarstjóra.
Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
5. Eistnaflug 2016
Mál 1510059 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar drög að samningi við Millifótakonfekt ehf. vegna framkvæmdar Eistnaflugshátíðarinnar 2016.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningi við Millifótakonfekt ehf. um hátíðina.
-
6. Tillaga um afleysingu félagsmálastjóra í fæðingarorlofi
Mál 1601220 Allur ferill málsins
Tillaga bæjarstjóra lögð fram til kynningar og afgreiðslu.
Fræðslustjóri leysir félagsmálastjóra af í fæðingarorlofi og leiðir starf fjölskyldusviðs í afleysingu.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
-
7. Reglur um sérstakar húsaleigubætur 2016
Mál 1601144 Allur ferill málsins
Félagsmálanefnd samþykkti á fundi sínum þann 20. janúar sl. tillögur að breytingum á reglum vegna sérstakra húsaleigubóta og matskvarða og vísaði til bæjarráðs til umræðu og afgreiðslu.
Vísað til næsta fundar bæjarráðs.
-
8. Tillaga um breytingu á afslætti vegna heimaþjónustu
Mál 1601137 Allur ferill málsins
Félagsmálanefnd samþykkti á fundi sínum þann 20. janúar tillögur til breytinga á gjaldi vegna félagslegrar heimaþjónustu. Félagsmálanefnd vísar málinu til umræðu og afgreiðslu í bæjarráði.
Bæjarráð samþykkir tillögur um breytingu á gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu sem lagðar eru til í minnisblaðinu.
-
9. Aðalfundur Samorku 19.febrúar 2016
Mál 1601150 Allur ferill málsins
Aðalfundur Samorku verður haldinn föstudaginn 19. febrúar nk. kl. 10:30 á Icelandair Hótel Natura (Loftleiðir) Ársfundur samtakanna verður haldinn síðar sama dag kl. 13:00.
Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar til afgreiðslu.
-
10. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2016
Mál 1601200 Allur ferill málsins
Fundargerð Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 15.janúar 2016, lögð fram til kynningar.
Bæjarráð tekur undir bókun samtakanna hvað varðar viðskiptaþvinganir á Rússland.
-
11. Fundargerðir stjórnar SSA 2015
Mál 1501271 Allur ferill málsins
Fundargerðir stjórnar SSA frá 15. desember 2015 og 14. janúar 2016, lagðar fram til kynningar.
-
12. Fundargerðir félagsmálanefndar 2016
Mál 1601210 Allur ferill málsins
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 79 frá 20. janúar 2016, lögð fram til kynningar.
-
13. Íþrótta- og tómstundanefnd - 18
Fundargerð Íþrótta- og tómstundanefndar nr. 18 frá 20.janúar 2016, lögð fram til kynningar.