Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 462

1. febrúar 2016, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 194 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 461 og nr. 462 teknar til afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 1. febrúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Endurskoðun starfsmannastefnu Fjarðabyggðar

    Mál 1106083 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár fundar sat forstöðumaður stjórnsýslu.

    Framlagt minnisblað um vinnu við endurskoðun á starfsmannastefnu Fjarðabyggðar.

    Rætt um framgang stefnunnar og áframhaldandi vinnu stjórnsýslu- og þjónustusviðs ásamt starfshóp sem unnið hefur að endurskoðun stefnunnar.

    Forstöðumanni stjórnsýslu og bæjarritara falið að vinna áfram að stefnunni ásamt starfshópnum á grundvelli minnisblaðsins og upplýsa bæjarráð um framgang hennar síðar.

  2. 2. Framtíð gömlu Hulduhlíðar

    Mál 1302140 Allur ferill málsins

    Til umræðu tillaga að auglýsingu um sölu gömlu Hulduhlíðar.

    Bæjarráð sammála um að kannað verði hvort vilji og áhugi sé fyrir því að byggð verði upp öldrunartengd þjónusta og/eða íbúðir, með almennri opinberri auglýsingu.

    Bæjarstjóra falið að rita hlutaðeigandi ráðuneytum bréf um hugmyndirnar og fá afstöðu til þeirra. Jafnframt að ganga frá auglýsingu þar sem gamla Hulduhlíð er auglýst til sölu.

  3. 3. Tímabundin gisting í húsnæði gömlu Hulduhlíðar

    Mál 1601272 Allur ferill málsins

    Fyrirspurn Ferðaþjónustunnar á Mjóeyri um tímabundna gistingu í húsnæði gömlu Hulduhlíðar á Eskifirði.

    Bæjarráð samþykkir að húsið verði ekki leigt út meðan unnið er að ráðstöfun húseignarinnar.

    Verði eigninni ekki ráðstafað í söluferli kemur til greina að auglýsa nýtingu hússins til annarra nota.

  4. 4. Leiga/ rekstur á Félagslundi á Reyðarfirði

    Mál 1601182 Allur ferill málsins

    Tekin umræða um útboð og rekstrarfyrirkomulag Félagslundar á Reyðarfirði.

    Aðilar hafa lýst áhuga sínum á að taka húsið á leigu til lengri tíma.

    Bæjarráð samþykkir að félagsheimilið verði auglýst samkvæmt samningskaupalýsingu.

  5. 5. Styrktarumsókn - Málfundafélag Menntaskólans á Egilsstöðum

    Mál 1601255 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni frá Málfundafélagi Menntaskólans á Egilsstöðum þar sem óskað er eftir styrk til mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskólanna. Farið er fram á 100.000 kr. styrk.

    Bæjarráð getur ekki orðið við beiðninni.

  6. 6. Rammasamningur - 41315TLA

    Mál 1601181 Allur ferill málsins

    Framlagður til staðfestingar samningur við IBM Danmark um fjármögnunarsamning vegna kaupa á tölvubúnaði fyrir kennara leikskóla Fjarðabyggðar.

    Kaup á búnaði er innan fjárhagsáætlunar 2016 í fræðslumálum.

    Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  7. 7. Samningur um framlag

    Mál 1601038 Allur ferill málsins

    Framlagður til staðfestingar samningur við Skemmtifélag starfsmanna Fjarðabyggðar um árlegan styrk til félagsins. Fyrsta greiðsla er vegna ársins 2015.

    Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  8. 8. Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES

    Mál 1411143 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi sveitarstjóra á Austurlandi og verkefnastjóra sveitarstjórnarmála hjá Sambandi sveitarfélagi á Austurlandi um ljósleiðaravæðingu.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt bæjarritara að vinna að málinu áfram og leggja tillögu fyrir næst fund um áframhaldandi forvinnu.

  9. 9. Áfangastaðurinn Austurland - kynning

    Mál 1503052 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat markaðs- og upplýsingafulltrúi

    Minnisblað markaðs- og upplýsingafulltrúa lagt fram sem fjallar um næstu skref við áfangastaðahönnun. Farið yfir verkefni sem eru framundan sem tengjast innleiðingu.

  10. 10. 400.mál til umsagnar frumvarp til laga um um vatnsveitur sveitarfélaga (skilgreining og álagning vatnsgjalds)

    Mál 1601265 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar frumvarp til laga um breytingu á lögum um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 32/2004 (skilgreining og álagning vatnsgjalds). Í frumvarpi þessu er kveðið á um tilteknar breytingar á lögum nr. 32/2004, um vatnsveitur

    sveitarfélaga. Breytingarnar varða skilgreiningu og álagningu vatnsgjalds, sem lagt er á allar fasteignir sem tengdar eru vatnsveitum sveitarfélaganna. Frumvarpið er flutt samhliða frumvarpi umhverfis- og auðlindaráðherra til breytinga á lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009, en þær breytingar varða skilgreiningu og álagningu fráveitugjalds með sambærilegum hætti. Tilefni frumvarpsins eru tveir dómar Hæstaréttar (mál nr. 396/2013 og 397/2013) sem báðir lutu að álagningu vatnsgjalds samkvæmt lögum um vatnsveitur sveitarfélaga. Vísað til fjármálastjóra sem greini áhrif af frumvarpinu á sveitarfélagið.

    Vísað til næstu funda eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og bæjarráðs með greinargerð fjármálastjóra.

  11. 11. 404.mál til umsagnar frumvarp til laga um um uppbyggingu og rekstur fráveitna

    Mál 1601266 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar frumvarp til laga um breytingu á lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009 (gjaldtökuheimildir, réttindi og skyldur fráveitna). Samkvæmt 14. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009, er heimilt að innheimta fráveitugjald af öllum fasteignum sem tengdar eru eða munu tengjast fráveitu sveitarfélags. Vísað til fjármálastjóra sem greini áhrif af frumvarpinu á sveitarfélagið.

    Vísað til næstu funda eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og bæjarráðs með greinargerð fjármálastjóra.

  12. 12. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 136

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 136 frá 25.janúar 2016, lögð fram til kynningar.